Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Lífstíll

Sjúkraliði á næturvakt

Þessa dægilegu mynd tók hann Per vinnufélagi minn af mér einu sinni þegar hann mætti til vinnu að morgni dags, en ég á leið heim af næturvakt, galvösk eins og sjá má. Mig minnir að þetta hafi verið 1999. Mér hefur alltaf þótt voða vænt um þessa mynd,...

Öryrkjamálið

Ég tók út færsluna sem ég skrifaði vegna öryrkjamálsins sem Gerður Kristný talaði um í ræðu sinni á baráttu- og mótmælafundinum á Austurvelli síðast liðinn laugardag; ég kunni ekki við að hafa þessa færslu þarna inni, þar sem það mátti túlka hana sem...

Jólaálfur

Þessi sæti jólaálfur heitir Tinna og er í sambúð með Úlfi jólasveini.

Þetta er æðislegt!

Vonandi fáum við margar fréttir sem þessar í framtíðinni. Ég segi eins og fleiri, ég hlakka til að smakka... Heilhveitið er selt í versluninni Góð Heilsa Gulli Betri, Njálsgötu 1, Reykjavík.

Fúlustu jólagjafirnar

Dagblaðið DV er í dag með pistil þar sem fólk segir frá skrítnustu jólagjöfum sem það hefur fengið. Þar kennir ýmissa grasa. Ég man reyndar ekki eftir að hafa fengið jólagjafir sem mér þóttu skrítnar, en ég man eftir tveimur sem ég varð frekar fúl yfir....

Piparkökur

Á þessum tíma í fyrra skreyttum við pabbi piparkökur, eins og við höfðum gert mörg undangengin jól. Nú er allt breytt, hann er farinn á annan stað, og heilsan mín hefur versnað til muna. Kannski fer ég samt upp eftir til mömmu og set glasúr á nokkur...

Klikkaðir vitleysingar

Maður á ekki önnur orð um svona rugl. Sumir ættu að væla aðeins meira um kreppu og blankheit.

Úlfur sonur minn...

...er óforbetranlegur grínisti... Nú er hann kominn í jólaskapið! Fyrir: Eftir:

Núna...

...ætla ég að biðja bloggvini mína að senda mér góða strauma. Ég fékk að vita í gær að nýja lyfið sem ég fékk fyrir rúmum mánuði síðan virkar ekkert á krabbameinsvöxtinn sem tekist hefur að halda niðri með daglegri lyfjatöku s.l. 8 ár, en sem er kominn...

Bíbí Ólafsdóttir

Ég var að horfa á sunnudagsviðtal Evu Maríu við Bíbí Ólafsdóttur, miðil. Þetta var ólíkt betra viðtal en viðtalið sem ég gagnrýndi svo harðlega s.l. mánudag. Þetta viðtal var opið og einlægt (hvernig er annað hægt með viðmælanda eins og Bíbí?) og gaf mér...

Næsta síða »

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.