Leita í fréttum mbl.is

Afro-americans

Ég sá ábendingu á bloggi Guðmundar Steingrímssonar um þessa frábæru grein um Negrastrákana:

Einn lítill negrastrákur 

Ég verð að viðurkenna að lýsing Gauta á hugarheimi hvítra suðurríkjamanna eins og sjá má  og gera sér grein fyrir honum í Jim Crow Museum of Racist Memorabilia í New York vakti mér hroll og að eftir lesturinn sá ég fyrst kýrskýrt þann viðbjóðslega áróður sem viðhafður er í textanum. Það er að segja með gleraugum bandaríkjamanns!

Því á vissan hátt held ég að við "venjulegir" íslendingar séum of saklausir gangvart slíku og þvílíku til þess einu sinni að tengja þennan, að því er virðist saklausa bull-texta um vitlausa stráka, sem vill til að eru svartir, við þann boðskap, nema að fá hann inn með teskeið eins og þeirri sem Gunnar réttir okkur þarna. (Eða hverjir voru það í vesturheimi sem þáðu með þökkum aðstoð indíána og áttu við þá vinsamleg samskipti? Að vísu, eins og ég komst að í Vesturfarasetrinu í Hofsósi s.l. sumar, aðeins eftir að innflytjendur af öðru þjóðerni voru búnir að brjóta þá á bak aftur). Að því leyti held ég að við íslendingar séum flestir ennþá barnalega litblindir, kannski mætti segja blessunarlega . Og það þrátt fyrir að hafa haft vissar hugmyndir um þrælahald og kúgun svertingja í Bandaríkjum Norður-Ameríku gegnum bækur og kvikmyndir. En vitanlega er þó tímabært að láta af því sakleysi og barnaskap og fullorðnast í breyttum heimi þar sem slíkt sakleysi dugar skammt.

Ég ætla rétt að vona að við nútímafólk, á 21. öldinni, flytjum ekki þessar hugmyndir inn hráar og innprentum börnum okkar þær, fyrst það tókst ekki með þessari þunnu "skemmtibók" á þeirri 20.! 

Takk fyrir að opna augu mín fyrir þessu, Gauti! 

Ég er sammála þeim sem segja í athugasemdum að þessi grein þyrfti að birtast sem blaðagrein. 

MoshiSet hér að gamni mynd af einni þeirra negrastelpna sem ég hef umgengist, ekki í BNA eða á Íslandi, heldur í hennar heimalandi, Tanzaníu í Austur-Afríku. Þessi mynd er tekin á kósý stund í garðinum okkar í Moshi (við rætur Kilimanjaro), þar sem vinnustúlka nágrannans er í hárgreiðslu (fléttun) hjá kærustu garðyrkjumannsins (sem allir msungu, norrænir sem aðrir, kölluð reyndar umhugsunarlaust shamba-boy, að hætti breta).

Þeim sem kynnu að hneykslast á því að við höfðum vinnufólk vil ég segja það að í raun var það litið hornauga ef fólk gerðist ekki vinnuveitendur og réð sér starfsfólk. Sem reyndar var líka alveg þörf á þar sem í Afríku berst mun meira af ryki inn í híbýli manns, ekki eru sjálfvirkar þvottavélar heldur þar á hverju strái. Og ekki kunni maður mikið til garðyrkju í svo suðlægu landi, get varla sagt að ég geri það hér heima, einu sinni.

Hér er svo mynd af litlum hvítingjastrák, inni í röri í garðinum í Tabora...SmileHeartÚlfur í Tabora


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ég las einmitt færslu Gauta, var bara að enda við það. ég sé þetta í allt öðru ljósi núna. Hafði ekki ætlað mér að kaupa bókina né lesa hana fyrir börn næst mér.

Þetta er glatað lesefni...ég hef bara verið búin að gleyma þessu að mestu leyti

Ragnheiður , 31.10.2007 kl. 15:22

2 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Já, þetta er skrítin tilfinning að komast að því  að það sem maður upplifði sem barn sem sára saklaust grínkvæði sýnir sig í raun og veru að vera argasta rasistaáróðurs, þegar augu manns opnast fyrir það því umhverfi, kringumstæður og hugsunarhátt sem það er sprottið . - Alltaf dálítið sárt að missa sakleysið, en það heitir víst að vitkast.

„Þegar ég var barn, talaði ég eins og barn, hugsaði eins og barn og ályktaði eins og barn. En þegar ég var orðinn fulltíða maður, lagði ég niður barnaskapinn.“

Greta Björg Úlfsdóttir, 31.10.2007 kl. 16:20

3 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

He, he, þarna var ég víst búin að grauta heldur mikið í því sem ég skrifaði, án þess að lesa vel yfir í lokin - vonandi skilst þetta samt hjá mér!

Greta Björg Úlfsdóttir, 31.10.2007 kl. 16:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.