Leita í fréttum mbl.is

Esaú

Margt er skrítið í kýrhausnum, segir máltækið.

prestur

Einkennileg þykir mér staða biskupa og presta íslensku þjóðkirkjunnar. Þeir rembast við, sumir hverjir, að segja manni að þeir starfi fyrir/við stofnun sem sé algjörlega sjálfstæð í öllum sínum málum. Einn þeirra er Svavar Alfreð Jónsson, bloggvinur minn. Þetta hefur hann um málið að segja:

"[...] Líka má benda á að ríki og kirkja eru í raun aðskilin. Kirkjan ræður sínum málum, bæði ytri og innri. Að minni hyggju er fráleitt að tala um Þjóðkirkjuna sem ríkiskirkju eins og stundum er gert. Hins vegar eru tengsl milli ríkis og kirkju og auðvitað er fyrirkomulagið á þeim tengslum ekki heilagt. [...]"
Þetta segir séra Svavar HÉR.

Samt sem áður njóta starfsmenn kirkjunnar (þjóðkirkjunnar) réttinda og bera skyldur sem opinberir starfsmenn, sambanber eftirfarandi, úr lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar: 61. gr. Þeir starfsmenn þjóðkirkjunnar, sem þiggja laun úr ríkissjóði, sbr. 60. gr., njóta réttinda og bera skyldur sem opinberir starfsmenn eftir því sem nánar er mælt fyrir um í lögum nr. 70/1996, svo og öðrum lögum er kveða á um réttarstöðu opinberra starfsmanna, sbr. þó 12. og 13. gr." Sjá nánar hér: Lög nr. 78/26.

Eins og mönnum er kunnugt eru starfskjör opinberra starfsmanna að mörgu leyti mun tryggari en gerist á frjálsum markaði, þó launagreiðslur séu í mörgum tilfellum lægri. Samt sem áður teljast kjörin ekki slök þegar kemur að starfsmönnum kirkjunnar, að því er mér hefur skilist, til dæmis ef borin eru saman laun presta og kennara.

Staðhæft er að íslenska þjóðkirkjan sé alls ekki ríkiskirkja. Í mínum eyrum hljómar sú staðhæfing sem hringavitleysa, þegar tekið er tillit til þess sem ég hef rifjað upp hér að ofan, ásamt því sem fer hér á eftir:

Í færslu hjá Jóni V. Jenssyni kemur fram að þjóðkirkjan hafi afsalað sér eignum til ríkisins, í skiptum fyrir þann kost að starfsmenn hennar þiggi laun sem opinberir starfsmenn og njóti réttinda sem slíkir:

"Að Þjóðkirkjuprestar séu á launaskrá ríkisins kemur hins vegar til af því fyrirkomulagi varðandi ráðstöfun kirkjueigna, sem innsiglað var með lagasetningu 1907 og 1997. Öll trúfélög fá í sinn hlut safnaðargjöld eftir höfðatölu sinni, en Þjóðkirkjan að auki árlegar greiðslur vegna gríðarmikilla jarðeigna (um sjöttu hverrar jarðar á landinu 1907), sem ríkið hefur nú fengið lýstar sem eign sína, en með þessum skilmála, að e.k. afborgun eða afgjalds-ígildi af þeim skuli goldið með því að borga laun presta og Biskupsstofu."(leturbreyting mín). Sjá má færslu Jóns Vals í heild sinni HÉR.

Laun prestastéttarinnar og starfsmanna Biskupsstofu frá ríkinu eru sem sé látin heita afgjald af þeim eignum kirkjunnar sem hún hefur nú afsalað sér til þess (ríkisins). Hvernig sem því nú víkur við að hægt sé að fá afgjald af eign sem maður hefur afsalað sér (?). Lúti kirkjunnar þjónar enda þeim reglum sem ríkið hefur sett um framboð og eftirspurn, þegar kemur að stöðugildum. Sem mér þykir óeðlileg krafa, þegar kemur að trúarlífi fólks, og alls ekki sambærileg við slíka kröfu innan heilbrigðisgeirans, er lýtur að líkamlegri (og andlegri) velferð. Vissulega mætti þó gera kröfu til trúboðs af hálfu læknastéttarinnar, til eflingar almenns heilbrigðis landsmanna, - þar sem slíkt myndi leiða til fækkunar stöðugilda innan þess geira, og þar af leiðandi sparnaðar fyrir ríkið, öfugt við það sem ætla má að gerist við trúboð kirkjunnar!

Þegar ég fór að spá í þessi gjörð (samning) milli ríkis og þjóðkirkju rifjaðist einhverra hluta vegna upp fyrir mér sagan af því þegar Esaú seldi bróður sínum frumburðarrétt sinn fyrir baunadisk (IM 25:29) Svona er að hafa verið dugleg að læra Biblíusögurnar í gamla barnaskólanum. Þess vegna heiti færslunnar. Að vísu kom einnig orðið "hrossakaup" upp í huga mér, en mér fannst smekklegra að gefa færslu minni nafn úr Biblíunni.

Ég held að það hljóti stundum að vera erfitt að vera stundum og stundum ekki opinber starfsmaður.  Prestar eiga samúð skilið fyrir sitt erfiða hlutskipti.

*Myndinni rændi ég af þessari síðu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Hér eru 11 ástæður þess að Þjóðkirkjan er ríkiskirkja.  Af nógu er að taka.

Þakka þér fyrir að geta heimilda varðandi myndina.  Á henni er séra Valgeir í Seljakirkju að taka á móti leikskólabörnum.

Matthías Ásgeirsson, 31.12.2007 kl. 15:08

2 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Hm, ég er reyndar búin að skipta um mynd, Matti, vildi hafa hana aðeins hlutlausari...

Takk annars fyrir upplýsingarnar.

Ég sá á síðunni þinni (örvitanum) að þú ert lagtækur kokkur, ég fékk vatn í munninn við lýsingarnar! Og að þú hefur átt notaleg og góð jól.

Mig langar til að nota tækifærið og þakka þér góða viðkynningu á árinu og óska þér og þínum velfarnaðar á nýja árinu.

Greta Björg Úlfsdóttir, 31.12.2007 kl. 15:23

3 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Æ, ég var nú búin að gleyma aftur innbrotinu þegar ég skrifaði þetta hér fyrir ofan. Ég votta þér samúð mína yfir horfnum munum og innrás í einkalíf ykkar, þetta hlýtur að vera skelfileg lífsreynsla. Og ekki hefur bætt úr að lenda í flóði þar á ofan.

Vonandi er lakkið ekki skemmt.

Kveðja

P.s. Best ég setji samt aftur tengil á fyrri myndina (myndina hans Matta), ef fólk skyldi verða forvitið við að lesa athugasemdina hans: Prestur

Greta Björg Úlfsdóttir, 31.12.2007 kl. 16:06

4 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Nú er búið að ná glæpamönnunum og þýfið (eða mest af því) vonandi komið í leitirnar.  Ég heimsæki lögregluna á morgun og kemst að því.  Þannig að ég enda árið þokkalega bjartur!

Matthías Ásgeirsson, 31.12.2007 kl. 18:13

5 Smámynd: Jens Guð

  Góð færsla hjá þér og þörf í umræðunni.

Jens Guð, 2.1.2008 kl. 01:02

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Takk Jens.

Ég vonaðist hálfpartinn eftir athugasemdum frá kirkjunnar mönnum, en þær láta á sér standa, af hverju sem það stafar, - kannski hafa þeir einfaldlega ekki lesið þetta. 

Greta Björg Úlfsdóttir, 2.1.2008 kl. 12:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband