Leita í fréttum mbl.is

Leitin að Jinky Ong - og hin tvísaga Miyoko Watai

Einhverjir eru farnir að leita að Jinky Ong á Filippseyjum. Kannski fer bráðum eitthvað að skýrast...Smile

Einar S. Einarsson og Sæmundur "Rokk" Pálsson eru varla mjög kátir með Miyoko Watai þessa dagana. Ætli þeir séu ekki nú þegar í sambandi við Eugene Torre varðandi Jinky litlu og móður hennar, kannski búnir að tala við Justine Ong, en bíða með að segja fjölmiðlum og okkur frá neinu þangað til allt er klappað og klárt? Wink

DavaoatdayÉg vona það sannarlega. Ekki stendur alla vega til að Skáksambandið erfi kallinn, svo mikið er víst, svo ekki á það annarra hagsmuna að gæta en orðsporsins, og réttlætis- og mannúðarsjónarmiða, líkt og þegar stuðningshópurinn fékk Fischer lausan.

Davao City 

Bobby Fischer mun hafa farið annan hvern mánuð að hitta mæðgurnar, á meðan hann bjó í Japan. Til Japans fór hann vegna þess að hann var að hanna nýja gerð af taflklukku í samvinnu við Seiko. Hann var á leið til Manila á Filippseyjum þegar hann var handtekinn á flugvellinum 2004. 

Hm...

Þetta var haft eftir Miyoko Watai í Morgunblaðinu 22. mars, 2005:

„Við munum skoða síðar hvort við giftum okkur á Íslandi en því ferli hefur verið frestað," sagði hún og bætti við að Fischer hefði orðið afar glaður við að heyra fréttir af íslenskum ríkisborgararétti sínum."

Annaðhvort hefur hún Miyoko Watai skrökvað laglega að íslensku blaðamönnunum, eða að giftingaráformin hafa tekið kúvendingu eftir að hún sagði þetta, ef það er rétt sem haldið er fram, að þau skötuhjúin hafi gift sig í Japan. Shocking

Samkvæmt þessu, það er að segja ef gert er ráð fyrir að Miyoko hafi ekki bara verið að plata íslensku blaðamennina, má ætla að drifið hafi verið í japönsku brúðkaupi annað hvort seinna sama dag, eða einhvern tíma dags 23. mars, áður en Bobby Fischer steig upp í flugvél áleiðis til Íslands eftir miðnætti, eða um kl. 01, 24. mars, því hann kom til Íslands að kvöldi 24. mars, 2005, eftir tæplega sólarhrings ferðalag, skv. þáverandi bloggi Stefáns Fr. Stefánssonar:

"Skákmeistarinn Bobby Fischer kom til Íslands í gærkvöldi eftir tæplega sólarhringslangt ferðalag frá Japan. Var hann látinn laus úr útlendingabúðunum í Japan um klukkan eitt að nóttu að íslenskum tíma aðfararnótt 24. mars, eftir að pappírar hans höfðu verið staðfestir og dómari samþykkt lausn hans. Fór hann að því búnu í fylgd sendiráðunautar út á flugvöll þar sem hann fór af stað fyrsta spölinn með flugvél til Kaupmannahafnar."

Óneitanlega stingur ÞESSI frétt Morgunblaðsins, nú tæplega þremur árum síðar, í stúf við hina fyrri hér að ofan...Errm 

miyoko

 

 Hvað var svona fyndið 22. mars, 2005, Miyoko?

Varstu nýgift og nýbúin að gabba íslenska blaðamenn - eða alveg að fara að gifta þig, rétt á eftir -
 - allt í plati, eða hvað? 

Ekki finnst mér þetta ýkja snjöll taflmennska, en ég kann reyndar ekki mikil skil á þeirri íþrótt. 

 

Mér datt í hug gömul vísa sem ég lærði einu sinni, við að lesa þessar tvær fréttir úr Morgunblaðinu - sem þó er sagt að ljúgi ekki:

KandP10Satt og logið, sitt er hvað,

sönnu er best að trúa.

En hvernig á að þekkja það,

þegar flestir ljúga? 

 "I am a pawn, but in chess there is such a thing as pawn promotion,where a pawn can become a queen" - Miyoko Watai

 "At the end of the game, the King and the Pawn go back in the same box"- Italian Proverb 

Eftir öllu sólarmerkjum að dæma hefur Miyoko verið meira kona Bobbys, en Bobby maður Miyoko, ef menn skilja við hvað er átt...stundum er það nefnilega bara þannig... 

Grein í Guardian um erfðamálið eftir Robert J. Fischer 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ef þú trúir því að hvítt sé svart, ef þú trúir því sem að þér er sagt....

Steingrímur Helgason, 1.2.2008 kl. 02:26

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það hlýtur að vera lítið mál að sanna hvort þau hafi gifst eður ei.  Það hljóta að vera til löggiltir giftingarpappírar ef svo hefur verið. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.2.2008 kl. 09:44

3 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ásthildur, þar stendur hnífurinn víst í kúnni. Miyoko kom með einhver ljósrit til landsins sem sýslumaður tekur ekki gild, svo nú er beðið eftir að frumgögnin berist til landsins, væntanlega með löggiltri enskri þýðingu á þeim meðfylgjandi.

En alla vega hefur hún þá skrökvað að íslenskum blaðamönnum, ef þau hafa verið gift! Hún er náttúrlega ekki fyrsta manneskja í heimi sem gerir það, það er að segja skrökvar í pressuna, ef út í það er farið....

Hún hefur sagt að þau hafi viljað halda giftingunni leyndri. En af hverju hefðu þau átt að vilja leyna henni? Eru hjón vön að vilja hafa það leyndarmál að þau séu hjón? Þetta finnst mér frekar dularfullt, en Fischer var náttúrlega ekki venjulegur. Vinir hans hér á Íslandi segja að hann hafi alltaf talað um hana sem vinkonu sína en ekki eiginkonu.

Greta Björg Úlfsdóttir, 1.2.2008 kl. 09:58

4 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Gréta mín, þú gefst ekki upp!...gott mál, en ef þessi stúlka Fishersdóttir er til á hún að njóta þess...engin spurning!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 1.2.2008 kl. 19:30

5 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Vafalaust má treysta íslenskum yfirvöldum í þessum efnum, Erlingur, og að búið verði ekki gert upp fyrr en allar staðreyndir málsins liggja óyggjandi fyrir.

Greta Björg Úlfsdóttir, 2.2.2008 kl. 11:24

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Það er gaman að sjá hvað margir landar mínar virðast hafa óbilandi trú á styrk, árvekni og réttsýni íslenska réttakerfisins. Virkilega styrkir trú manns á innviðum samfélagsins, þegar ýmis deilumál hafa skekið það, til dæmis skipun dómara í embætti, o.s.frv.

Það er líka gleðiefni að loksins virðist byrjað að dæma menn eitthvað í líkingu við það sem þeir eiga skilið fyrir að ráðast að og nauðga konum, í stað þess nánast að klappa þeim á bakið og segja gerðu þetta ekki aftur, eða jafnvel að láta liggja að því að konan hafi boðið upp á þetta með því að hafa verið á staðnum. 

Greta Björg Úlfsdóttir, 2.2.2008 kl. 12:32

7 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ég reyndi að ná sambandi við varaforseta Skáksambands Íslands með fyrirspurn um hvort verið væri að vinna að því að hafa upp á dóttur Fischers, en hann (hún) hefur ekki séð ástæðu til að svara mér. Maður verður bara að vona að málið sé í réttum farvegi.

Greta Björg Úlfsdóttir, 2.2.2008 kl. 13:54

8 identicon

Sæl Gréta Björg,

Ég er varaforseti Skáksambands Íslands. Ég var að koma heim frá Frakklandi nú í vikulokin. Ástæða þess að þú hefur ekki náð sambandi er líklega sú að ég notaði þarlent símakort meðan ég var staddur í Frakklandi. Ég er hræddur um að sjálfur Arnaldur Indriðason hafi varla það hugmyndaflug sem þarf til að að láta sér detta í hug þá atburðarás sem orðið hefur. Það líkist ótrúlegri bíræfni af hálfu Garðars Sverrissonar að hlutast til um að lík skákheimsmeistarans var flutt austur fyrir fjall í myrkrinu að morgni mánudagsins 21. janúar, huslað þar niður í kirkjugarði á býli tengdaföður Garðars Sverrissonar og ekki einu sinni sóknarprestinum gert kunnugt um gjörningin, líklega í fyrsta skipti í íslenskri kirkjusögu!.  Þetta virðist kalla á lögreglurannsókn. Mér sýnist réttast að borgaryfirvöld biðji lögrelustjórann í Reykjavík að taka skýrslu af Garðari, lækni þeim er gaf út dánarvottorðið, ábyrgðarmanni þeirrar útfararstofu sem sá um kistulagninguna tæpum sólarhring eftir dauða Fischers og Jakobi Rolland kaþólska prestinum sem jarðsöng Fischer. Það lítur út fyrir að Garðar hafi gert sig myndugan í þessu máli gagnvart öllum aðilum, lækni þeim sem gaf út dánarvottorðið og sennilega afhent Garðari það og svo starfsmanni/mönnum útfararstofnunar þeirrar sem flýttu líksnyrtingu og kistulagningu sem fram fór föstudaginn 18. janúardaginn eftir dauða Fischers, svo og Jakobi Rolland kaþólska prestinum. Það virðist sem Garðar hafi látið í veðri vaka að hann hefði umboð eiginkonu hins látna. Líklegt verður að teljast  að Garðar Sverrisson hafi því haft áætlun um framangreinda atburðarrás strax við dauða Fishers. Mér var tjáð að Garðar hafi á fundi sínum viða aðila tengda RJF hópnum ekki minnst einu orði á  jarðsetninguna sem í vændum var Mér skilst að á kvöldi sunnudagsins hafi hann farið hann suður á Keflavíkurflugvöll að sækja Miyoko Vatani og fer með henni og fjölskyldu sinni austur að Laugdælum þar sem tengdafaðir hans og mágur búa. Þar gista þau og snemma morguns koma líkbíllinn og presturinn og jarðsetning fer fram skammt frá gangstéttarkanti kirkjustéttarinnar. Enginn kross , ekkert. Maður sá bara moldarhrúgu í sjónvarpinu í kvöldfréttunum og glaðbeittan mág Garðars á gröfu sinn sem virtist hinn ánægðasti.i Merking orðsin "líkrán" hlaut nýja og eiginlegri merkingu í mínum huga við frétt þessa. Hverjir eru aðstandendur? Ef Garðar Sverrisson segir " að þetta sé að ósk hins fallna meistara" þá læt ég mér fátt um finnast. Arfleifð Bobby Fischers og íslenskrar skáksögu er stærri en svo að hann geti huslað heimsmeistaranum  niður nánast kálgarðinum hjá tengdapabba sínum. Reykjavíkurborg, sem Fisher kom á heimskortið og Skákakademía Reykjavíkur eiga að fara þess á leit við lögregluyfirvöld að þau, í samvinnu við sýslumanninn á Selfossi flytja líkið í kirkjugarð í Reykjavík og þeir aðalmenn sem upphaflega hvöttu forsætisráðherra Davíð Oddson að beita sér fyrir lausn Fishers úr fangelsinu í Japan ( giftingarpappírar Miyoko Vatani reyndust ganslausir). Menn eins og Friðrik Ólafsson stórmeistari,  Guðmundur G. Þóararinsson foseti Skáksambands Íslands í heimsmeistaraeinvíginu og síðast en ekki síst Helgi Ólafsson sem ötulastur allra hért á landi hefur verið að halda merki Fishers á lofti. Þetta eru mennirnir sem bera eiga kistu Fishers til grafar með sæmd í Reykjavík, þar verði reist leiði sem skákáhugamenn hvaðanæva úr heiminum hafi aðgengi og geta vottað þessum merkasta heimsmeistara skáksögunnar virðingu sína. Garðar Sverrisson var alltaf í mínum huga aftaníossi þeirra manna er kölluðust RJF hópuinn. Þetta er svipað eins og Björgvin Halddórson vinur minn myndi orða það: "Söngvarinn er dáinn og nú er rótarinn búinn að reka alla í hljómsveitinni og tekur öll sólóin sjálfur, segir það vilja hins fallna meistara"

Óttar Felix Hauksson (IP-tala skráð) 2.2.2008 kl. 21:01

9 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Það var mikið að einhver þorði að opna munninn og tjá sig í fullri alvöru um þetta mál. Kominn tími til. Það er auðvitað algjör hneisa hvernig þetta gekk allt saman fyrir sig. Þakka þér fyrir þetta, Óttar Felix!

Greta Björg Úlfsdóttir, 2.2.2008 kl. 23:06

10 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ég hélt að svona óskir þyrftu að koma fram í erfðaskrá.

Hrannar Baldursson, 3.2.2008 kl. 11:22

11 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Hrannar, oft liggja fyrir munnlegar óskir varðandi útförina sem fólk hefur látið í ljós við aðstandendur fyrir andlátið. Það sem er á reiki í þessu tilviki er hverjir þessir aðstandendur raunverulega eru.

Fischer virðist ekki hafa látið eftir sig erfðaskrá. Svo æskilegt sem það hefði þó verið í tilviki þar sem framangreint atriði er ekki ljóst. Að þessu leyti getur þetta mál alls ekki talist hefðbundið erfðamál, eins og Erlingur heldur fram hér að ofan. Oftast er dagljóst hvort fólk hefur verið gift. Algengara er að fram komi einstaklingar eftir á sem segist vera afkomendur hins látna, jafnvel getur slíkt gerst mörgum árum síðar, eins og nýlegt dæmi sannar. 

Greta Björg Úlfsdóttir, 3.2.2008 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband