Leita í fréttum mbl.is

Bobby Fischer

fischer1Robert James Fischer var meistari taflborðsins, en á sama tíma skrítin skrúfa, sem fór ekki að viðteknum venjum í samskiptum við aðra menn.

Það var mjög virðingarvert á sínum tíma að fá hann lausan úr japönsku fangelsi og fá honum hæli hér á landi, þau ár sem reyndust hans síðustu. Sjálfsagt þykir mér að hann hljóti legstað í því landi sem veitti honum skjól síðustu æviárin með því að gefa honum ríkisborgararétt.

Hins vegar þykir mér fráleit sú hugmynd að sá legstaður verði á Þingvöllum, á sama stað og okkar helstu þjóðhetjur eru grafnar. Robert Fischer getur varla talist til þeirra, þó hann hafi komið Íslandi á kortið með því að keppa hér um heimsmeistaratitil í skák árið 1972. Ég veit ekki betur en að hann hafi verið tregur til að koma hingað í það skiptið, það hafi þurft að beita hann fortölum til að hann fengist til að koma og að hingað kominn hafi hann haft allt á hornum sér, svo sem hans var háttur.

Eins fráleit þykir mér sú hugmynd að hann hljóti opinbera útför. Íslendingar eiga ekki að reyna að slá sig til riddara með útför skákmeistarans, í ljósi þess að honum sjálfum ber alls ekki sú tign í neinu tilliti, hans eini titill og tign var að hann var af mörgum talinn vera konungur skákborðisins.

Mér finnst að Skáksamband Íslands ætti að sjá sér sóma í að sjá um útförina og bjóða hingað þeim fáu eftirlifandi ættingjum sem hann átti frá Bandaríkjunum. Honum væri enginn vansi að því að hvíla í Gufuneskirkjugarði innan um aðra mæta Íslendinga. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þjóðargrafreiturinn er reyndar dauður í augum þjóðarinnar. Þar voru tveir menn grafnir með stuttu millibili en síðan hafa menn forðast að grafa menn þar. Og allt sem þú segir í þessari færslu finnst mér alveg sjálfsagt mál.

Sigurður Þór Guðjónsson, 20.1.2008 kl. 13:07

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hálfbróðir Bobbys Nemenyi, sem var strærðfræðingur, (faðir þeirra beggja var Paul Felix Nemenyi sem á tímabili var flóttamaður í Danmörku), dó fyrir nokkrum árum. Bobby og hann höfðu ekki teljanlegt samband. Systir Bobbys er einnig dáin og börn hennar höfðu víst lítið afskipti af Bobby, mest fyrir hans eigin ósk. Þau eru nefnilega yfirlýstir gyðingar. 

Kannski kemur Barbara Streisand. Hún og Fisher voru í sama menntaskóla, Erasmus Hall High School i Brooklyn, og sagt er að Barbi hafi verið dálítið skotinn í Fischer á skólaárunum. Hún gæti kannski sungið lög úr Yentl við útförina.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 20.1.2008 kl. 13:36

3 Smámynd: Júdas

Góður pistill og sagði allt sem ég hugsaði þegar ég las um þessar fáránlegu hugmyndir velunnara hans. 

 Við ættum kannski einnig að taka frá pláss þarna fyrir alla svokallaða "íslandsvini" og jafnvel strákana í handboltalandsliðinu.

Júdas, 20.1.2008 kl. 14:34

5 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Jinky Ong FISCHER was born in 2000 in Davao City, Philippines.

Ættartré Roberts James Fischer 

Greta Björg Úlfsdóttir, 20.1.2008 kl. 17:07

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Það verður nú gaman að sjá stelpuna. Hún gæti hafa erft góða hæfileika Bobbys.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 20.1.2008 kl. 19:38

7 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ætli það hafi ekki fyrst og fremst verið ætlun hans með því að búa hana til?

Á þessari síðu er íslenska ríkinu, sem vinir skákmeistarans ætlast nú til að sjái um útför hans, ekki vandaðar kveðjurnar. 

"[...] Furthermore, the filthy dirty CIA-controlled Icelandic government by failing to retaliate against UBS for UBS's brazen thefts and other crimes against Bobby (see the complete UBS--Bobby Fischer file above) is in complicity with UBS in those very thefts and other crimes against Bobby. Clearly, the Icelandic government is thoroughly rotten and corrupt and are nothing but pimps and whores for the giant transnational corporations like Alcoa and UBS, etc. Let the robbery in broad daylight of all of Bobby's hard-earned cash and assets at UBS to the tune of millions of swiss francs and other assets be a warning that no one should open a savings account at UBS or for that matter with any other Swiss bank..."

Ég veit ekki hvort Bobby Fischer hélt þessari síðu úti sjálfur, það kemur ekki fram, en það er auðséð að þarna skrifar veruleikafirrtur einstaklingur sem tæplega er hægt að telja heilan á geði. Hann sakar íslenska ríkið um að vilja ræna sig eigum sínum. Ríkið sem hann talar um þarna er ríkið sem gaf honum ríkisborgararétt af mannúðarástæðum, og það umfram marga aðra einstaklinga sem hafa sótt um slíkt, vegna þess hve frægur hann var. Þetta eru þakkirnar, þarna talar greinilega helsjúkur maður, illa haldinn af ofsóknaræði (paranoia).

Greta Björg Úlfsdóttir, 20.1.2008 kl. 20:47

8 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Þetta kemur fram á síðunni um hana, þar sem haldið er fram að þetta sé hin "eina sanna" síða um B.F. og að hann styðji hana:

"But either way that you get here don't forget that this is the ONLY authentic Bobby Fischer website and the ONLY Bobby Fischer website that Bobby himself recommends"

Ekki veit ég hverju maður á að trúa. Maðurinn er dáinn, svo ekki get ég spurt hann sjálfan! 

Greta Björg Úlfsdóttir, 20.1.2008 kl. 20:51

9 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Samkvæmt Villa pósti í Danveldi mun þetta vera síða sem eiginkona/unnusta Fischers heitins heldur úti.

Greta Björg Úlfsdóttir, 22.1.2008 kl. 11:18

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ef gengið er út frá því að orð Fischer sé helsjúkur af ofsóknaræði er þá rétt að gera hann siðferðilega ábyrgan fyrir orðum sínum og saka hann um vanþakkæti? Hvað er af völdum sjúkdómsins sem hann á enga sök á og hvað af völdum eigin persónuleika? Gömul spurning og ný.

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.1.2008 kl. 17:50

11 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Já, þetta er rétt hjá þér Sigurður, ég átti að sleppa þessu tali um þakkirnar. Vonandi ekkert slíkt sem vakti fyrir vinum hans, heldur aðeins að búa þjökuðum einstaklingi og vini bærilegri kjör en þau sem hann var í þegar honum bauðst að koma hingað.

Blessuð sé minning þessa sérstæða gáfumanns. 

Greta Björg Úlfsdóttir, 22.1.2008 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband