Leita í fréttum mbl.is

Var ekki búin að sjá þessa frétt.

Það er óskandi að þetta mál leysist í góðri sátt. Mér þykir afstaða Marilyn Young mjög virðingarverð. Arfurinn eftir Robert J. Fischer finnst mér þó að eigi fyrst og fremst að verða til þess að tryggja dóttur hans fjárhagslegt öryggi í framtíðinni, eins og "skákprinsessunni" ber, eða má ekki kalla hana það, fyrst pabbinn hefur verið kallaður "skákkóngurinn"? Joyful
mbl.is Vilja ná sátt um dánarbú Fischers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Nú detta mér allar dauðar lýs úr höfði.  Er Estimo að vinna fyrir skákmanninn (M/K)sem sendir upplýsingar til chessbase.com?

Marylin bjó á gistihúsi að Brúnavegi 8, þegar þær mæðgur voru hér á landi árið 2005. Þá máttu þær ekki búa hjá Fischer fyrir Miyoko Watai.

Já, hún er góð kona hún Marylin. Hún veit hvað Watai og Fischer voru náin - samkvæmt Estimo. En hvern er þessi Estimo að vinna fyrir? Þetta virðist vera vitlausasti lögmaður sem ég hefi heyrt um.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 12.2.2008 kl. 07:39

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vonandi fer þetta mál allt vel. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.2.2008 kl. 11:42

3 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Já, það er spurning, Vilhjálmur. Þessi fyrrverandi forseti skáksambands Japan virðist vera ansi viljasterk kona, seig að koma sínu fram og að fá menn á sitt band...

Meðan filippínska konan virðist afskaplega hógvær, og lítið fyrir að vera í sviðsljósinu, öfugt við hina. Vonandi stendur hún samt sem fastast á rétti dóttur sinnar. Sérstaklega ef það kemur í ljós að Watai getur ekki framvísað gildu hjúskaparvottorði og á ekki lagalega heimtingu á arfi. 

Ég er ekki viss um að Watai myndi falla frá því að sitja í búinu óskiptu, stelpunnar vegna, ef það kemur í ljós að þau hafi verið gift í raun og veru. Bara mín tilfinning. 

Svo getur svo sem verið að allur þessi feluleikur sé til þess gerður að vernda stelpuna frá sviðsljós fjölmiðlanna, það væri auðvitað alveg í anda Fischers, og líka Jinky litlu fyrir bestu. Ég syrgi það til dæmis þess vegna ekki, þó maður eigi kannski ekki eftir að fá að sjá mynd af henni í blöðum, ég held að það sé betra að hún fái að vera í friði heima á Filippseyjum en að vera með heimspressuna á hælunum, eins og faðir hennar var á stundum.

Greta Björg Úlfsdóttir, 12.2.2008 kl. 14:15

4 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Einhvern veginn finnst mér líklegra að lögmaðurinn, sem er einnig starfsmaður filippínska skáksambandsins, standi með löndum sínum í þessu máli, frekar en japanskri konu. Ég held ekki að það sé nein sérstök vinátta á milli þessara tveggja landa.

En auðvitað, eins og ég sagði hér að framan, er Miyoko Watai örugglega seig að koma ár sinni fyrir borð og hefur visst "prestige" sem virðing er borin fyrir í skákheiminum og gæti haft áhrif á menn í þá átt að draga hennar taum, frekar en algjörlega óþekktrar konu sem tengist skákheiminum ekki að öðru leyti en að vera móðir "skákprinsessunnar". Vonandi leysist þetta allt farsællega og réttlátlega.

Greta Björg Úlfsdóttir, 12.2.2008 kl. 14:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.