Leita í fréttum mbl.is

Garg!

Geir lýsir yfir fullu trausti til Davíðs...!!!

Vangefið!

Hvaða tök hefur maðurinn á Sjálfstæðisflokknum?

Ég trúi því ekki að þar á bæ séu allir jafn hrifnir af DO og formaður flokksins.

Sem stendur með aldavininum frekar en sjálfum sér OG ÍSLANDI!

Þessi stuðningsyfirlýsing + aðgerðaleysið jafngildir pólitísku sjálfsmorði GH. Það er ég nokkuð viss um.

Það mun nefnilega fyrst og femst vera aldavinurinn sem er á mót IMF láni.

Sem virðist þó okkar síðasta haldreipi þessa dagana. Kannski telur DO að verið sé að svínbeygja sig persónulega?

Það hlýtur að koma að því að flokkurinn klofni.

(23/10 - fjarlægði setningu sem stóð hér, því hún var ómakleg. Ríkisstjórnin stendur í ströngu þessa dagana. Svo sjáum við til hvað gerist í næstu kosningum!)

Vísa að öðru leyti til færslu minnar hér fyrir neðan frá í gær um Davíð.

 


mbl.is Engin niðurstaða enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Segi arg, garg og hneyxl með þér ....  Úff, mann langar að æpa.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 19.10.2008 kl. 21:59

2 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

...þetta fer að minna á Stalínstímann í Rússíá...sveimérþá...

Greta Björg Úlfsdóttir, 19.10.2008 kl. 22:12

3 Smámynd: Steingrímur Helgason

Það kemur að því að einhver byrjar að kjafta frá ...

Steingrímur Helgason, 19.10.2008 kl. 22:16

4 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

...kannski eftir 100 ár...

Greta Björg Úlfsdóttir, 19.10.2008 kl. 22:23

5 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

P.S. Ég vona að þeir sem hafa kommentað séu enn sammála þó ég sé búin að bæta aðeins við upphaflegu færsluna.

Greta Björg Úlfsdóttir, 19.10.2008 kl. 22:35

6 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Sammála eins og í Sóvet. Allir bugta sig og beygja. En kannski klæðist hann hempu á leynilegum samkomum. Er kannski jafnvel æðstiprestur! Kannski er ég bara paranojd. En það þýðir ekki að ég hafi rangt fyrir mér.

Rut Sumarliðadóttir, 19.10.2008 kl. 23:33

7 Smámynd: molta

kemur ekki beint á óvart :P Geir er jafn sekur og jafn gagnlaus (óvinveittur?) þjóðinni og Davíð, það þarf að ryðja alþyngi.

molta, 20.10.2008 kl. 20:35

8 Smámynd: Gústaf Níelsson

Óskhyggja þín Greta er skelfileg. Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei klofnað um málefni, bara menn, og þá í skamman tíma. Og hann mun ekki klofna vegna Davíðs, enda er hann hættur í stjórnmálum, eins og þú veist. Ég skil illa þetta hatur þitt á manninum, hefur hann gert þér eitthvað? Ok hann hefur verið höfuðandstæðingur vinstri manna á Íslandi í aldarfjórðung, en fyrr má nú aldeilis fyrr vera. Hann er hættur í stjórnmálunum, en þið eruð enn með manninn á heilanum.

Gústaf Níelsson, 21.10.2008 kl. 01:19

9 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Að tala um að ég hati Davíð er ekki svaravert. Hefur þú ekki fylgst með fréttum undanfarið? Veist þú ekki að bankakerfi lansins er hrunið, vegna þess að það fékk að þenjast út án eftilits? Veistu ekki að við erum rúin trausti erlendis? Hvar hefur þú verið?

Og eitt get ég sagt þér, Davíð Oddsson hætti aldrei í pólitík, hann hefur haldið áfram að ráða því sem hann vildi ráða á bak við tjöldin, í núverandi embætti. Þeir sem ekki sjá það eru blindir.

Greta Björg Úlfsdóttir, 21.10.2008 kl. 10:56

10 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Það sem aldrei hefur gerst mun aldrei gerast, samkvæmt þinni speki Gústaf. Er þá ekkert nýtt undir sólinni? Að vísu nefnir þú í leiðinni að hann HAFI klofnað um menn - ég myndi halda að það væri einmitt það sem myndi gerast í þessu tilviki. Og væntanlega klofnaði hann þá vegna þeirrar stefnu sem þessir menn héldur fram og þær leiðir sem þeir vildu fara.

Hins vegar er ég fegin á meðan stjórnin heldur velli í gegnum þessa krísu, þó ég setti þetta í færsluna, ég er samt ekkert að breyta því. Svo verður að koma í ljós hvað gerist þegar það verst er afstaðið.

Ég er á því að við eigum eftir að sjá Davíð og hina tvo í stjórn víkja úr Seðlabankanum vegna þrýstings frá IMF, annað getur ekki verið. Þó flokkurinn haldi yfir þeim hlífiskildi mun Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vilja þá burt, þó það verði líklega ekki sagt opinberlega, aðeins er talað um "uppstokkun í bankamálum".

Greta Björg Úlfsdóttir, 21.10.2008 kl. 11:12

11 Smámynd: Gústaf Níelsson

Ég er nú ekki innanbúðar hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, en svo mikið er víst að hann mun ekki vera mikið í því að ráða og reka. Auðvitað veistu að varhugavert er að persónugera vanda Íslands, sem er ærinn, í einum manni. En augljóst er að hann hefur á löngum ferli, stigið á svo margar tær, að margir hugsa honum þegjandi þörfina, þegar hann liggur vel við höggi. Drengilegt? Varla.

Gústaf Níelsson, 21.10.2008 kl. 21:27

12 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Gústaf, vegna þess að ég sé að þér er fyrirmunað að skilja hvað um ræðir og hvers vegna við erum mörg sem treystum ekki Davíð lengur til að gegna embætti sínu sem skyldi, hef ég ákveðið að munnhöggvast ekki við þig um þetta mál.

Davíð hefur aldrei stigið á mínar tær persónulega, ég hef ekki einu sinni orðið þess heiðurs aðnjótandi að hann byði mér upp í dans í þau fá skipti sem ég hef verið í nálægð hans, var þó stiginn dans við þau tækifæri, ekki það að mig fýsti neitt sérstaklega að fara á dansgólfið með honum.

Greta Björg Úlfsdóttir, 21.10.2008 kl. 22:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband