Leita í fréttum mbl.is

Heilræði

a_isafir_i.jpg

 

 

 

 

Úr pistli sem ég rakst á í The Daily Telegraph (þegar ég setti "Iceland" í leit kom hann fyrstur upp), og mér fannst innihalda ágætt heilræði fyrir okkur í dag. Nenni ekki að hafa fyrir að þýða þetta, það skilja svo margir ensku hvort sem er, - here goes:

"On Sunday I'm back in London, hoping to see The Beautiful People, one of the great plays born out of the Great Depression. William Saroyan, prolific playwright and novelist, is another neglected master. He has a message for us all in these febrile times:

"Try to learn to breathe deeply, really to taste food when you eat, and when you sleep really to sleep. Try as much as possible to be wholly alive with all your might, and when you laugh, laugh like hell. And when you get angry, get good and angry. Try to be alive. You will be dead soon enough."

Cut it out and stick on the fridge door. I have."

Pistillinn er eftir Gyles Brandreth, sem mun vera glæpasagnahöfundur, tengill á pistilinn er HÉR.

Myndin fallega er tekin af bloggvinkonu minni Ásthildi Cesil á Ísafirði, ég fékk að hlaða henni niður þegar hún birti hana í blogginu sínu. Ég vona að það sé í lagi að setja hana hér, mig langaði svo til að setja einhverja virkilega fallega íslenska mynd með færslunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Var að horfa á Silfur Egils.

Sveimér þá,

ég er ekki sá vitleysingur í pólitík sem ég hef haldið í mörg ár að ég væri, vegna þess að ég skildi ekki neitt í neinu, og taldi mig ófæra um að sjá hvernig í pottinn væri búið og hvernig allt malið gæti staðist -  nú loksins opnast augu mín fyrir því að vitleysingarnir voru þeir sem maður þurfti að hlusta á, vegna þess að þeir snéru öllu á haus sem talið er almenn skynsemi í þeim kokkabókum sem ég hef lært af! Merkilegt - og sorglegt, því nú er svo margt sem er um seinan. En við byggjum upp nýtt og betra þjóðfélag á rústum þess gamla.Vonandi.

Greta Björg Úlfsdóttir, 20.10.2008 kl. 05:55

2 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Gott heilræði!

Ragnhildur Jónsdóttir, 20.10.2008 kl. 10:48

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þér er guðvelkomið að birta þessa mynd mín kæra Gréta.  Mín er ánægjan. Boðskapurinn er líka góður, takk fyrri hann.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.10.2008 kl. 11:50

4 Smámynd: Orgar

gott mál

http://bylting-strax.blog.is/admin/blog/?entry_id=679909

Orgar, 20.10.2008 kl. 11:57

5 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Gréta, það er einmitt markmið spunamaskínunnar að rugla fólk í ríminu. Vitandi það getur maður vinsað úr aukaatriðin að minnsta kosti á stundum.

Svo verða allir minnislausir í næstu kosningum. Margir hverjir setja ekkert samansem merki við stjórnvöld og það hvernig fólk hefur það í landinu. 

Rut Sumarliðadóttir, 20.10.2008 kl. 12:14

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Rugludallur, ég var nú reyndar að meina þáttinn með Jóni Hannibalssyni, o.fl.

Greta Björg Úlfsdóttir, 20.10.2008 kl. 18:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.