Leita í fréttum mbl.is

Fáránleg fyrirsögn

Mér finnst fyrirsögnin fáránlega orðuð.

Á ekki Samfylkingin, sem eykur fylgi sitt, fimm ráðherra í ríkisstjórn, eða hvað, þó forsætisráðherra og aðrir sex ráðherrar séu Sjálfstæðismenn? Auk þess sem aðeins 55% þeirra sem spurðir voru svöruðu spurningunni, samkvæmt því sem mér var tjáð hér á blogginu, þannig að þessi könnun er ekki marktæk. Þessa var þó ekki getið í frétt mbl.is. Auk þess sem spurningin virðist hafa verið um fylgi flokkanna hvers um sig, ekki hvort menn styddu ríkisstjórnina.

Leiðrétting: Sex og sex ráðherrar, ruglaðist á Kristjáni Möller, vegna þess að mér hefur alltaf fundist hann svo framsóknarlegur (eða kannski bláleitur), hann er alla vega frá Siglufirði. - Þess þá heldur!

Mér finnst svona uppsláttur í fyrirsögn á mbl.is villandi og bera vott um óvönduð vinnubrögð. Svo sem ekki í fyrsta sinn sem ég gagnrýni blaðamenn síðunnar fyrir slíkt.

Ég held að margir styðji ríkisstjórnina fram að næstu kosningum. Svo kemur í ljós hvenær þær verða haldnar og hver útkoman verður úr þeim.

Fyrst þegar ég las þessa fyrirsögn var ég að vona að meiningin í henni væri að stjórnarandstaðan hefði lýst yfir stuðningi við aðgerðir ríkisstjórnarinnar síðustu daga, sem mér fyndist vel. En til þess hefur að vísu ekki nægilega mikið komið fram um gang samningaviðræðna. Slík stuðningsyfirlýsing myndi væntanlega ekki koma fram nema búið væri að leggja fram skilyrðin og þing búið að koma saman.


mbl.is Minnihluti styður stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Af því að þú spurðir: Nei Samfylkingin á ekki 5 ráðherra í ríkisstjórn Geirs Hilmars Haarde.

Sigurður Þórðarson, 26.10.2008 kl. 12:31

2 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ingibjörg, Björgvin, Össur, Jóhanna og Þórunn. Er það ekki fimm?

Greta Björg Úlfsdóttir, 26.10.2008 kl. 13:17

3 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ókey, Kristján L. Möller (Kristján Lúðvík), þeir eru sex. Þess þá heldur.

Einhvern veginn hefur mér aldrei tekist að beintengja Kristján við Samfylkinguna, mér finnst hann eitthvað svo framsóknarlegur!

Greta Björg Úlfsdóttir, 26.10.2008 kl. 13:23

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Alveg rétt  5+1=6

Það vantaði Siglfirðinginn Kristján Muller.  

 Samfylkingin var hálfsofandi með allan hugann við öryggisráðið en er núna bæði í stjórn og stjórnaandstöðu og fylgi hennar á eftir að dala mikið þegar kreppan fer að skella á.

Sigurður Þórðarson, 26.10.2008 kl. 13:27

5 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ég er sannfærð um að Samfylkingin mun vinna mikið á í næstu kosningum, Sjálfstæðisflokkurinn mun tapa fylgi.

Ég skil nú ekki hvernig á að vera hægt að vera bæði í stjórn og stjórnarandstöðu á sama tíma. Þú þyrftir að útskýra það með dæmum, í líkingu við 5+1, fyrir tossanum.

Greta Björg Úlfsdóttir, 26.10.2008 kl. 13:32

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Enda er það Sjálfstæðisflokkurinn sem vill fá að sitja áfram, en Samfylkingin vill kosningar í vetur eða næsta vor.

Greta Björg Úlfsdóttir, 26.10.2008 kl. 13:39

7 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæl Gréta.

Ég var eitthvað að reyna að vera kaldhæðinn. 

Ég tók eftir því um daginn að þegar Árni Matt (óvinsælasti ráðherrann) fór út til að ræða við IMF sagði ISG við fjölmiðla að "semja ætti við IMF strax" þetta sagði hún áður en IMF hafði kynnt skilyrði sín fyrir viðsemjanda sínum sem var fjármálaráðherra, jafnframt vorum við enn að tala við Rússa.  Þetta svarar til  þess að hjón hugleiddu að kaupa íbúð og seljandinn, sem ætti eftir að verðleggja íbúðina, yrði vitni að samtali hjóna þar sem konan segði " ég vil að við kaupum þessa íbúð". 

Annars skrifaði ég færslu í  dag þar sem ég útskýri þetta betur.

Sigurður Þórðarson, 26.10.2008 kl. 22:07

8 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Já, mér finnst reyndar Samfó stundum vera full fljót til varðandi ESB til dæmis. Samt hef ég trú á því að við eigum eftir að enda þar inni og taka upp evru líka. Það liggur einhvern veginn fyrir í framhaldi af IMF láninu og því hvernig komið er fyrir okkur.

Greta Björg Úlfsdóttir, 26.10.2008 kl. 22:46

9 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Nú vill Valgerður sama og Imba: Vilja ESB viðræður strax.

Greta Björg Úlfsdóttir, 26.10.2008 kl. 22:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband