Leita í fréttum mbl.is

Klukk um Gretu Björgu

 

424069295_866c340db0

 1. Ég er miðhollið í dætrahópi foreldra minna (2 eldri, 2 yngri). Já, ég er þessi minnsta á myndinni!

Í Danmörku 19632. 11 ára (tæpra 12), vorið sem ég flutti frá Kirkjubæjarklaustri til Reykjavíkur, var ég send til Kaupmannahafnar til að passa þar um sumarið börn íslensks frænda míns og danskrar konu hans. (Þau eru því miður bæði látin fyrir aldur fram). Hann vann hjá Flugleiðum (Flugfélagi Íslands), svo það var lítið mál fyrir hann að fá senda barnapíu að heiman.

3. 13 ára (tæpra 14), vorið sem ég fermdist var ég vinnumaður (ekki kona!) að Hnausum í Meðallandi hjá bændunum þar, Eyjólfi og Sigurlínu og syni þeirra Vilhjálmi. Gekk þar í öll sveitaverk, nema slátt, keyrði traktor og jeppa, rak kýrnar, rakaði, smalaði, rúði kindur og fór niður að Eldvatnsós með Villa að huga að reka. Veiddi þar eina fiskinn sem ég hef veitt um ævina, vænan sjóbirting. Mikið bragðaðist hann vel!

Kom ekki aftur að Hnausum fyrr en 40 árum seinna, á ferð um Skaftafellssýslu, og var standandi hissa hversu vel ég mundi alla staðhætti og líka hvað það var gaman að hitta hann Villa aftur. Það sem átti að vera smástopp og kaffispjall varð að kvöldverði, gistingu, hádegisverði og heimsókn á nágrannabæi, eins og ég fór með honum í fyrir öllum þessum árum. 

4. Ég var í öðrum árganginum sem settist í hinn nýstofnaða Menntaskóla við Hamrahlíð, sem þá var enn í byggingu. Þegar ég byrjaði var búið að byggja tvær álmur, síðan bættist ein álma við á ári, svo að árið sem ég útskrifaðist var skólinn fullbyggður. Ég var líka í hópnum sem gekk til liðs við kórinn fyrsta veturinn sem hann starfaði, Þorgerður Ingólfsdóttir þá nýkomin heim frá námi í Bandaríkjunum. Þetta var lærdómsríkur tími og margs að minnast frá þessum árum.

gretanorge5. Sumarið 1970 dvaldi ég í Noregi, vann við ávaxtaræktunardeild Norges Landbrukshögskole. Yndislegt sumar, og það sem maður gat í sig látið af ávöxtum. Bjó á "Tivoli" og ferðaðist um á reiðhjóli. Skrapp til Osló með lestinni og skoðaði eitt og annað. Fór með lest til Bergen og sigldi þaðan inn Sognefjord til Flåm, þar sem ég gisti í eina nótt og fór svo með "Flåmbanen" yfir til Myrdal, þar sem ég tók lestina aftur til Osló.

6. Ég hef búið á 3 stöðum sunnanlands: Kirkjubæjarklaustri, Hveragerði og Reykjavík. Og 4 bæjum norðanlands: Þórshöfn á Langanesi í einn vetur, Húsavík, Akureyri og Sauðárkróki. Þess utan að Hofi í Hjaltadal í eitt sumar. 

7. 4 ára gömul harðneitaði ég að borða kjöt og lýsti yfir að "ég lil ekki kjöt!" Var það látið eftir mér og er ég foreldrum mínum þakklát að reyna ekki að pína mig til þess. Hins vegar tók ég upp kjötát um tvítugt, einfaldlega til að reyna að vera eins og annað fólk - nennti ekki að svara spurningum um það af hverju ég borðaði ekki kjöt! Hef svo nú í seinni tíð tekið upp fyrri sið aftur og líður fantavel með það.

Berjablá!8. Þegar ég var lítil ætlaði ég mér annað hvort að verða leikkona eða söngkona, en varpaði leikkonudrauminum fyrir róða þegar ég fékk fyrstu gleraugun við nærsýni 8 ára gömul, gerðist sem sagt GLERAUGNAGLÁMUR (eins og það hét þá og heitir kannski enn?) - ég sá mig víst ekki fyrir mér að leika Ófelíu með gleraugun á nefinu. Lék nú samt síðar á lífsleiðinni í skólaleikritum, bæði Grasa-Guddu (með gleraugun falin á bak við skuplu) og fagra álfkonu, gleraugnalaus, enda rölti blessuð álfkonan hálfblindandi inn á sviðið og flutti þar textann sinn í þokumóðu. Held að linsur hafi ekki verið komnar inn í dæmið á þessum árum. Flugfreyjudraumar fóru sömu leið, eins ballerínudraumar (þetta var á dögum flugfreyjubóka og Möttu-Maju). Söngkonudraumurinn datt ekki uppfyrir með svo afgerandi hætti, heldur fjaraði út smátt og smátt, en kannski ekki alveg, því konan er aftur komin í kór þessa dagana og er á leiðinni á æfingu í þessum skrifuðum orðum.

Ég ætla að klukka Matta, Heidi, Ragnhildi, Ragnheiði, Birnu, Maríu Önnu, Siggu(worry) og Óskar: Halo

Þú ljóstrar upp átta atriðum um þig (á blogginu þínu) sem ekki margir vita og klukkar síðan átta aðra bloggvini... Wizard


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þetta skemmtileg og fróðleg lesning, á einni myndinni sést greinilega svipur af föður þínum Gréta Björg mín. 

Fyrirgefðu en ég hló heilmikið af lýsingunum á leikkonuupplifun þinni

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.10.2007 kl. 09:36

2 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Takk fyrir þetta,gaman að fá aðeins meiri innsýn í vinahópinn,þú segir líka svo skemmtilega frá.

María Anna P Kristjánsdóttir, 11.10.2007 kl. 14:02

3 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Skemmtilegt að heyra svona meira um þig Gréta. Oh eru þetta ekki týpískir barnadraumar að ætla að verða flugfreyja eða ballettdansmær haha krúttlegt Efsta myndin af ykkur systrum er alveg dásamlega falleg.

Takk takk

Ragnhildur Jónsdóttir, 11.10.2007 kl. 15:14

4 Smámynd: Heidi Strand

Takk fyrir pistilinn. Gaman að lesa um hvað þú hefur verið að gera. Þegar þú varst á Landbúnaðarháskóla Noregs. Það er dásamlegur staður og ég gisti þar nokkrum sinnum þegar við vorum að keppa í kappróðri á  Årungen rostadion.

Heidi Strand, 11.10.2007 kl. 20:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband