Leita í fréttum mbl.is

Raddirnar

voicesÉg lifi með raddir innan í mér (held samt að ég sé ekkert mikið geðveik!). Lengi angraði mig á köflum rödd sem var iðin við að segja mér hvað ég væri ómerkilegur pappír, gera lítið úr afrekum mínum og minna mig á öll mistök sem mér hafa orðið á; segja mér hvað líf mitt væri misheppnað og tilgangslaust...

Sem betur fer fjarlægist og dofnar þessi rödd  meir og meir, en í staðinn heyri ég æ oftar glaðlega rödd sem segir mér hvað ég sé  bara skratti dugleg, skynsöm, hugguleg og kósý kona. Ég ætla ekki að lýsa því hvað það eru góð býtti að fá þessa vingjarnlegu rödd í heilabúið, í staðinn fyrir plötuna sem leiðindaskjóðan gamla, sem öllu vildi spilla, spilaði fyrir mig! Ég vildi óska að sem flestir fengju þessa nýju plötu spilaða í sínu höfði...

Illustration by Rebecca Kramer


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Já, þetta eru svo sannarlega góð býtti verst þegar þessar tvær raddir fara að rífast.....

Ragnhildur Jónsdóttir, 15.10.2007 kl. 13:34

2 Smámynd: Ragnheiður

Ég kannast vel við þennan niðurrifssegg. Það endaði með að ég henti honum tuðandi á dyr og ákvað að lifa lífinu jákvæð, hlusta á jákvæðar raddir og afneita hinum. Oft þarf maður ekki að leita lengi að sínum versta óvini, hann er stundum maður sjálfur !

Takk fyrir góða færslu Greta mín

Ragnheiður , 15.10.2007 kl. 13:38

3 identicon

Ég henti mínum út en enn reynir kvikindið að komast inn, en afar sjaldan en reynir  Takk fyrir þetta.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 15.10.2007 kl. 20:08

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já hann kemur víða við þessi leiðindapúki.  En það er gott að vita að maður er ekki einn um að vita af honum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.10.2007 kl. 08:47

5 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Þú ert nú með heilbrigðari konum sem ég þekki Gréta,en niðurrifs hugsanir geta eyðilagt líf fólks, lífið er of stutt til að vera ekki glaður og jákvæðni er allt sem þarf. 

María Anna P Kristjánsdóttir, 16.10.2007 kl. 11:06

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Já, stelpur mínar, það er um að gera að reyna að hafa svolitla stjórn á því sem kallað hefur verið "mindchatter" og mætti kannski þýða með "hugarmas"? Gera neikvæð hugsanaferli útlæg og skipta þeim út með jákvæðum og uppbyggilegum hugsunum.Það sem kallað er hugræn atferlismeðferð gengur víst út á einmitt þetta, þó ég hafi ekki kynnt mér það mikið. Gaman að fá þessi viðbrögð frá ykkur. Það er greinilegt að margir kannast við þennan vansældarpúka sem stundum tekur til við að tuða hið innra. Þá er um að gera að þagga niður í honum og leyfa honum ekki að taka við stjórninni. Bara rassskella greyið og henda honum út og stíga svo dans við lukkudísirnar kátu og góðu...

Greta Björg Úlfsdóttir, 16.10.2007 kl. 16:15

7 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Frábært að fóstra jákvæða viðhorfið... ... Við höfum nefnilega alltaf val, satt er það og rétt.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 19.10.2007 kl. 23:19

8 identicon

Takk fyrir að skrifa þetta elskan er að berjast við þessainnri rödd.Gengur illa að henda henda henni úr hausnum á mér.

Ásdís Ólafs (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 21:30

9 Smámynd: Bertha Sigmundsdóttir

Dugleg ertu, ég er enn að reyna að losa mig við minn leiðindarpúka, sem segir mér að hætta þessari leti og drullast til þess að grennast, eða segir mér að veikindin séu bara aumingjaveiki og ekkert annað. Ég er að vísu hætt að hlusta á þennan púka mest allan tímann, af því að ég veit að ég er ekki löt, og ég veit að kílóin fara þegar ég hef orku og tíma til þess að vinna í þeim. Ég tek undir með öllum að ofan, ég reyni bara að hlusta á jákvæðnina, og reyni að láta jákvæðni koma útúr mér, þó svo að stundum þarf ég að taka í börnin með smá skapi.......

Bertha Sigmundsdóttir, 25.10.2007 kl. 04:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband