Leita í fréttum mbl.is

Halló

bloggvinir góðir. Mér  datt í hug að henda hér inn einni færslu, sé til með fleiri. Mig hefur ekki langað að  blogga lengi, og hef reyndar eki verið tölvutebgd nema það sem bráðnauðsynlegt telst - kannski er áhuginn að vakna á ný? Smile

Kjósið nú besta lagið í kvöld...Wink


Bergmál - Ljósið

Kæru bloggvinir,

nú ætla ég að rjúfa langt blogghlé til þess að segja ykkur frá því að í gær kom ég heim eftir vikudvöl á vegum Líknar- og vinafélagsins Bergmál að Sólheimum í Grímsnesi. Þar var í einu orði sagt dásamlegt að dvelja.

Í dag skrapp ég svo í Ljósið og fékk mér hádegisverð. Því miður treysti ég mér ekki með svo stuttum fyrirvara í berjatínsluferð sem nokkrar konur voru að leggja af stað í upp í Skorradal, þó svo  að aðalsprautan í þeirri ferð væri ein kvennanna sem daginn áður hafði haft til morgunmatinn fyrir mig fyrir austan, það er að segja mín kæra Þóranna.

Venjulega fer ég svo í slökun eftir matinn, en þar sem óvenjulega lítið var um að vera í Ljósinu þennan föstudag (konurnar stroknar í berjamó! ;)) gekk ég bara heim til mín eftir matinn, og hef svo dundað mér hér heima.

Keypti í Ljósinu handverksmuni sem ekki verður nánar greint frá hér, þar sem ég hef hugsað mér að nota þá til jólagjafa. Þeim sem langar til að fræðast meira bendi ég á handverksmarkað sem Ljósið ætlar að efna til í vetur, um hann má lesa á vefsíðu félagsins.


Áfram góðir dagar

vor_rvik09.jpgSælinu, bloggvinir góðir!

Tvisvar í viku fer ég nú í dagvist hjá Líknardeildinni í Kópavogi, þar sem gott er að vera, yndislegt viðmót, góður matur, sjúkraþjálfun og svo er föndrað af hjartans list, svo gamlir listaspírutaktar rifjast upp og halda mér fanginni yfir viðfangsefnunum tímunum saman.

Ég er ekki í sprautumeðferð lengur, það verður séð til þangað til í maí og staðan metin þá. Þangað til tek ég andhormónalyf sem vinnur á móti sjúkdómnum.

Sjónin er öll að lagast, þetta er að verða allt annað líf, og svo aðlagast maður breyttum aðstæðum. Í dag átti ég að koma til augnlæknis, en það frestaðist um viku þar sem hann er veikur. Þá ræði ég við hann um að fá mér ný gleraugu með aðeins lituðum glerjum sem dökkna í sólskini, það myndi hjálpa mikið upp á ljósflekkina sem enn eru ofanvert til hægri á hægra auga, sem trufla sjónina þó mun minna en þeir gerðu til að byrja með. Kannski á þetta eftir að lagast enn meir þegar lengra líður.

Myndinni sem prýðir þessa færslu gerðist ég svo djörf að ræna á síðu þessarar konu, mér fannst hún svo vorleg og falleg.


Góðir dagar

Dagarnir mínir núna eru hver öðrum betri. Það er yndislegt að finna heilsuna batna og finna hvað allir í kringum mig eru boðnir og búnir að hjálpa mér á allan hátt, það er ómetanlegt. Ég er ótrúlega hress og orkumikil þessa dagana og sjónin og líðanin fer stöðugt batnandi.

vetrargosi_vi_hraunstein_09_05_08_123.jpgÉg fór í gær í viðtal hjá tauglækni vegna blóðtappans sem ég fékk, það er ekki afráðið hvort ég fer í blóðþynningarmeðferð til að fyrirbyggja að þetta endurtaki sig, eða hvort hjartamagnýlið verður látið duga. Það voru ekki komnar niðurstöður inn í tölvuna úr rannsóknum sem ég fór í meðan ég lá inni, sem mér þykir dálítið mikill seinagangur, en læknirinn ætlar að hringja í mig í næstu viku þegar hann verður búinn að sjá þær og ráðfæra sig við Jakob, krabbameinslækninn minn.

Tími hjá auglækni á þriðjudaginn. Síðan hitti ég Jakob á fimmtudaginn kemur og þá verður afráðið með hvernig meðferð verður hagað í framtíðinni. En ég er alla vega alveg ákveðin í því að ég vil heldur lifa góða daga það sem eftir er, heldur en að lifa einhverjum mánuðum lengur með harmkvælum og sárlasin.

Í dag var hann Úlfur minn að snúast með mér í bænum, fyrst að hjálpa mér við að skipta úr Vodafone yfir í Símann (!), sækja nýjan router, og svo fóru við í Ikea og ég keypti mér nýtt náttborð, hvítt með góðum hillum, og voða fallegan hvítan lampa með skermi með blómamyndstri til þess að hafa á nýja náttborðinu og nú er ég er alsæl með þetta.

Mikið óskaplega andar maður léttar að finna að vorið er á næsta leyti og vetrargosarnir eru komnir upp úr moldinni. Bráðum fer allt að springa út.


Komin heim aftur :)

heidloa.jpgKæru vinir, ýmislegt hefur gerst síðan ég skrifaði færsluna á sunnudaginn var.

Um kvöldið var ég orðin svo lasin að ég fór á bráðamóttökuna á Hringbraut og var þaðan lögð inn á krabbameinsdeildina, 11-E, þar sem ég hef dvalið þangað til í dag að ég var útskrifuð.

Heilsan er orðin ólíkt betri, og komin eru á tengsl við aðila, þ.e.a.s. Karitas líknarþjónustuna fyrir langveika og deyjandi, sem ég get leitað til hvenær sem ég vil og finnst ég hafa þörf fyrir að tala við einhvern um smátt og stórt. Það er mikill léttir að því að hafa slíka aðila í bakhöndina, því þó fjölskylda manns sé góð og öll af vilja gerð að hjálpa, þá eru það starfskonurnar þar sem hafa sérþekkinguna og kunna ótal ráð og úrræði til að létta sjúklingum lífið.

Það kom í ljós þegar tekið var scann af höfðinu að ég hef fengið blóðtappa í heilann, líklegast í janúar, þegar ég vaknaði upp með sjóntruflanirnar sem hafa hrjáð mig síðan. Eftir helgina standa til nánari rannsóknir á orsökinni fyrir að þetta gerðist. En góðu fréttirnar eru þær að sjónin er smátt og smátt að verða betri og til dæmis nota ég bæði augun við að skrifa þetta sem ég skrifa núna!

Krabbameinsmeðferðinni hefur verið slegið á frest þangað til seinna í mánuðinum, 26. mars á ég tíma hjá sérfræðingnum mínum og þá verður framhaldið ákveðið. Þetta kemur allt í ljós með tímanum. Þangað til  er ég staðráðin í að láta að láta mér líða sem best og láta jákvæðni og vongleði ráða ferðinni. Nú hækkar sól á lofti og vorið er á næsta leyti - þá léttast sporin hjá okkur öllum.

Megi ljós hins hæsta umvefja ykkur öll.

Bestu kveðjur.


Elsku bloggvinir

2-3-hlgbaby.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi meðferð sem ég er í sýnir sig að vera meira töff en haldið var til að byrja með að hún yrði. Við myndatöku fyrir hálfum mánuði kom í ljós að allan tímann frá því að ég byrjaði í meðferðinni eru búin að vera tvö lítil æxli í lifrinni minni, sem sjást á eldri myndum, á nýjustu myndinni hafa þau afmarkast svo þau greindust loksins, en þau hafa ekki stækkað á henni frá því á þeim eldri.

Sprautulyfið virkar ekki á þessi æxli, svo nú er ég komin á tvöfalda meðferð, pillur og sprautur, takk fyrir. Í dag er ég búin að vera ansi lasin, flökurt og með svima, svo bætist við að sjónin er í klessu, ég geng hér um með sjóriðu alla daga, misslæmt, stundum skárra stundum verra. Jæja, mér líður ekki vel í dag, ég ætla ekki að skrifa meira núna, en það er léttir að setjast við tövuna og skrifa þetta, þó svo það sé með lepp fyrir öðru auga til að halda haus.

Elsku vinir, ég þigg alla orku og góða strauma til þess að komast í gegnum þessa þraut.

Guð blessi ykkur öll.

Myndin hér fyrir ofan er af mér og stóru systrum mínum. Erum við ekki sætar?


Hæ og hó!

kanari_002.jpgFerðafélagar mínír á Kanarí: Linda, Fríða og Ásta (mamma).

kanari_008.jpgFyrir neðan: Linda kisumamma

Kæru bloggvinir, bara stutt færsla til að láta vita af mér.

Karnarí-ferðin gekk vel í alla staði, það var yndislegt að dveljast í heitara loftslagi í þessar tvær vikur og slappa af.

Ég fór í sprautu strax daginn eftir að ég kom heim, og svo í aðra í dag, þá er meðferðin hálfnuð, og í þarnæstu viku fer ég í CT-scann þar sem staðan verður skoðuð. Það verður gaman að vita hvað kemur út úr því, allt það besta á ég vona á, mér finnst þetta ganga það vel.

Ég var töluvert lasin seinustu viku, sjálfsagt að hluta til af lyfjagjöfinni, en svo hallast ég líka að því að ég hafi fengið í mig einhvern flensuvírus, það eru víst alls konar vírusar á ferð um borgina.

Greta risafluga - ég tók þessa mynd út, því hún er ömurleg! ;)

Svo bætti ekki úr skák að ég er búin að vera hálfblind á hægra auga, fékk einhverja óútskýrða bólgu í augað á meðan ég var úti, það er hálfóþægilegt að hafa ekki fulla sjón, maður verður óttalega ringlaður. Ég fór tvisvar til augnlæknis úti. Nú finnst mér þetta byrjað að lagast, enda hef ég reynt að hlífa sjóninni, - hef meðal annars gengið um allvígaleg hér heima með risasólgleraugu sem ég átti og notaði til að setja yfir titaniumgleraugum við akstur, - ég held að ég líti út eins og risafluga með þau!

Ég á tíma hjá augnlækni í augndeild Landspítalans á þriðjudaginn kemur, hann getur vonandi sagt mér meira um af hverju þetta stafaði, læknirinn á Kanaríeyjum vildi lítið gefa út á það og sagði að ég yrði að láta læknana hér heima segja hvað væri að, en sagði samt að þetta væri eitthvað sem gæti komið eins og hendi sé veifað og verið svo margar vikur að lagast aftur.


Húrra!

Kæri bloggvinir! Gleðifréttir af mér. Ég fór í blóðprufu og sprautu í gær, og það sýndi sig að allt gengur vel, líkaminn stenst álagið og lyfið er að virka. Andlega heilsan er líka orðin miklu betri, ég hef fengið frábæra aðstoð og stuðing frá systur minni og mági í þeim efnum, svo og hefur mágur minn, sem er listakokkur, keppst við að troða í mig hollum mat, þar sem ég var orðin mjög lystarlítil, en nú er matarlystin að koma til baka. Svo fór ég til kínversks læknis í dag og fékk meðferð og góð ráð um hvernig ég get styrkt mig til að takast á við sjúkdóminn. Svo nú er allt á uppleið hjá þessari konu sem hér skrifar.

Næsta sprauta 15. janúar, og 21. janúar flýg ég síðan til Kanarí með vinkonu minni, móður minni og tveimur systrum hennar. Það verður gott að baða sig í sólinni í tvær vikur, sólskin og gróður hafa alltaf verið hollvinir mínir hvað heilsuna varðar, eins og svo margra annarra.


2009

Kæru bloggvinir, það er víst löngu kominn tími á nýja færslu. Af mér er það að frétta að ég átti frekar tíðaindalítil, en ánægjuleg jól, þar sem ég er búin að vera frekar lasin yfir hátíðirnar, ég held ég sé samt að byrja að skríða saman núna. Sem er ágætt, þar sem þriðja lyfjameðferðin verður eftir tæpa viku. Ég hef mest verið hér heima í rólegheitum að horfa á sjónvarp og láta mér líða vel.

Aðfangadagskvöld var ég heima hjá yngri syni mínum Úlfi og Tinnu sambýliskonu hans (jólasveinka og jólaálfinunum). Við áttum mjög gott og notalegt kvöld, borðuðum yndælis steikta önd og svo frúmas á eftir. Á gamlárskvöld vorum við mamma svo hjá systur minni og mági uppi í Breiðholti, þá var snædd íslensk lambasteik og frúmas á eftir, það var indælt líka.

Gaman að horfa á Skaupið, sem mér fannst takast vel í ár. Gott útsýni þarna uppfrá til að horfa á flugeldana, þó ég verði að segja að þeir eru hættir að hrífa mig, þar sem mér finnst allt þetta sprengjuverk kringum áramót komið út í algjörar öfgar, þó svo það hafi víst verið eitthvað minna í ár en í fyrra. Réttast væri að hafa einungis opinberar flugeldasýningar og brennur, almenningur gæti svo dundað sér með stjörnuljós og blys af minni gerðinni, það væri alveg nóg.

Í gær vorum við mamma svo í afmæli lítillar frænku minnar sem varð 5 ára, nýársbarn og fyrsta barnabarn systur minnar.  


Gleðileg jól!

100_0594Ég óska öllum bloggvinum og lesendum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs með þökk fyrir ánægjuleg samkipti á árinu. Lifið heil!

Gamaldags jólakúla

100_0602_755461.jpgSvona jólakúlur voru til heima í gamla daga.

Fyrst þarfað opna valhnetuna (varlega, til að ná henni heilli) og borða innan úr henni. Svo þarf að gylla hana og líma saman, með borða á milli til að hengja hana. Skreyta svo með slaufu, eða einhverju öðru. Fínt og ódýrt jólaskaskraut. 

Það er líka hægt að baka piparkökuhjórtu með gati, skreyta þau og hengja þau með fallegum borð á geinar jólatrésins.

Svo eru "kínverskar luktir" líka flottar, þær er auðvelt að búa til úr fallegum pappír, kannski set ég aðferðina hér inn seinna.


Meira að segja...

skor2.jpg...á litla Íslandi taka menn sér skókastið til fyrirmyndar og henda skóm í Alþingishúsið. Enginn var þó handtekinn hér fyrir tiltækið. Smile

Mér hefur alltaf þótt hrikalega dónalegur sá siður, sé eitthvað að marka bíómyndir, sem sumir ameríkskir "bossar" virðast viðhafa, sem sé sá að slengja fótunum upp á skrifborð og láta sólana jafnvel vísa að viðmælandanum. Ímyndið ykkur ef konur gerðu þetta! Eins og hér á myndinni. Annars held ég ekki að Íslendingar geri þetta almennt, þeir eru betur siðaðir en svo, hvað þetta varðar.


mbl.is „Bush-skór“ vinsælir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólasveinar á ýmsum aldri

ulli_jolasveinn2.jpgulli_joli_751953.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

eydikatur.jpgEydi jólasveinnjolasveinar.jpg


Þannig sé ég...

...íslenska valdastétt + auðmenn:

bjorgun.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 ...íslenskan almenning:

bjorgun2.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 En þetta mun gerast áfram:

hsc2036l.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Wink...


Sjúkraliði á næturvakt

sjukrali_i_a_naeturvakt.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessa dægilegu mynd tók hann Per vinnufélagi minn af mér einu sinni þegar hann mætti til vinnu að morgni dags, en ég á leið heim af næturvakt, galvösk eins og sjá má. Wink Mig minnir að þetta hafi verið 1999.

Mér hefur alltaf þótt voða vænt um þessa mynd, þetta var svo góð deild að vinna á, þó oft væri hún þung. 

Svínn Per var engill deildarinnar, bráðadeild fyrir aldraða, eða öldrunarmatsdeildina, þann tíma sem hann vann þar. Hann vann í ræstingunum, alltaf með bros á vör handa öllum sem hann mætti, ljúflingur sem vann verkin sín óaðfinnanlega og hjálpaði okkur sjúkraliðum við umönnun sjúklinganna sem mest hann mátti, alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd. Hann bræddi meira að segja svo hjarta einnar gamallar, fatlaðrar og geðstiðrar konu, sem yfirleitt hreytti í okkur hin ónotum, ef henni þótti hægt ganga eða við ekki nógu fljót að skilja hvað hún vildi eða hana vantaði, að á endanum sinnti Per henni alfarið á sínum vinnutíma þann tíma sem hún var hjá okkur, og var þá á móti litið framhjá því þó eitthvað yrði eftir hvað varðaði ræstinguna sem hann átti að sjá um.

Því miður var Per einn af þeim sem eru of góðir fyrir þennan heim, eða heimurinn of harður fyrir þá, og að lokum fór það svo að hann hætti hjá okkur. Vonandi hefur hann samt náð sér á strik aftur.

Kæri Per, hvar sem þú ert núna, þá sendi ég þér bestu þakkir fyrir samveruna á 32-A.

Þá var bráðmóttaka aldraðra staðsett á 32-A í Geðdeildarhúsi Landspítalans við Hringbraut, á sama stað og tauglækningadeildin var þá á, enda átti starfsfólk þessara tveggja deilda mikil samskipti, þar sem þær deildu aðstöðu að mörgu leyti. Enda fór það svo að seinna tók ég til starfa á taugalækningadeildinni, einmitt vegna þess hve vel ég hafði kynnst starfinu og starfsfólkinu þar á þessum tíma. Sem veldur því að ég ruglaðist í seinustu færslu þegar ég sagði að ég hefði byrjað aftur á gömlu deildinni minni eftir veikindin, því þannig var tilfinningin, þá minnir mig að bráðadeild fyrir aldraða hafi þegar verið komin í Fossvoginn, en tauglækningadeildin var aftur á móti til bráðbirgða á A-7, í elsta hluta spítalans, beint á móti þar sem nú er göngudeild krabbameinssjúkra.

tvaer_go_ar.jpg

 

Tvær góðar á árshátið Lansans í apríl (?) árið 2000, önnur á tauginni en hin á öldrun. Joyful


Vampírur?

vampire.jpgEru mótmælendur vampírur , sem ráðast á lögreglumenn og bíta þá?

Mér finnst það eiginlega brjálæðislega fyndin hugmynd. W00t

Ætli það hafi ekki frekar verið á hinn veginn, að sá/sú sem beit hafi gert það í sjálfsvörn.

Sjálf myndi ég ekki telja mig slasaða, þó einhver (ekki vampíra) biti mig í öxlina. En ég er auðvitað ekki lögga.

En auðvitað er sjálfsagt að fara á slysó og fá sprautu við stífkrampa eftir að hafa verið bitinn, hvort sem er af dýri eða manni.

*Á annars að skrifa "vampýra", með ypsiloni?


mbl.is Mótmælendur eiga ekki að bíta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oscar Wilde og Stephen Fry

Ég horfði í gærkvöldi á merkilegan þátt um HIV á RÚV. Það var breski leikarinn Stepen Fry sem ræddi við alls konar fólk um HIV og AIDS, bæði í Bretlandi og Suður-Afríku. Þetta var fyrri þáttur af tveimur, seinni þátturinn verður næsta mánudagskvöld (held ég).

Ég hef alltaf haldið mikið upp á Stephen og fundist hann frábær leikari. Mér hefur líka alltaf fundist hann furðulega líkur Oscar Wilde í útliti, eftir myndum að dæma. Báðir voru/eru þess utan samkynhneigðir. Enda var leikarinn fenginn til að leika rithöfundinn í kvikmynd um hann (frá 1997), hver annar? Greinilega fleirum sem finnst það sama og mér! Mig minnir að þessi mynd væri mjög góð, enda ekki við öðru að búast þegar annar eins afbragðs leikari tekur að sér aðalhlutverkið.

oscar-wilde-pic.jpgstephenfry.jpg


Næsta síða »

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband