Leita í fréttum mbl.is

Gera TRÚARBRÖGÐ þjóðirnar betri?

Ég horfði á myndband fyrir nokkru síðan á síðu DoctorE, sem hefur orðið mér svo minnisstætt að ég ákvað að birta það hér á síðunni minni.

Það er stór spurning hvort það séu eingöngu TRÚARBRÖGÐ sem valda því hvernig þjóðirnar raðast á listann á þessu myndbandi.

Hér á Íslandi hafa Norðmenn löngum vera taldir full heilagir fyrir okkar smekk (?). Og eins og mörgum er kunnugt sem hafa kynnst þeirri þjóð, þá verður að telja Breta mjög umburðarlynda svona yfirleitt, eitthvað í karakter þjóðarinnar, álít ég, sem gerir þá ekki ginnkeypta fyrir öfgum, hingað til að minnsta kosti, og eitt er víst að HÚMOR þeirra er óborganlegur. Japanir eru hins vegar ekki þekktir að því að vera miklir húmoristar hér á vesturlöndum, en kannski er þeirra húmor bara svona mikið öðruvísi en okkar?

Svo þykir mér þarna einum of mikil einföldun á ferð. Að mínu áliti er til dæmis BNA  alls ekki trúaðasta þjóð í heimi. Þau raða sér einfaldlega, ásamt ýmsum arabaþjóðum, á bekk með þeim ÖFGAFYLLSTU. Sem sést á því að í þessu myndbandi virðast þeir einir álitnir trúaðir sem eru KRISTNIR. Bara þessi setning í upphafinu "USA is one of the most religious countries in the world" finnst mér lýsa bæði mikilli einfeldni og hroka.

Og þetta hér: "The USA is the most religiously developed country in the world" (!) W00tW00tW00t

Sem er þó auðvitað rétt, sé átt við trú á veldi MAMMONS (og þar róa Gyðingar nú heldur betur undir, hefur mér sýnst; eru þeir þó alls ekki kristnir). 

Ætli Japanir séu til dæmis ekki alveg eins trúaðir og Bandaríkjamenn, það er að segja trúir sínum BÚDDISMA (þar sem ekki er boðuð trú á einn guð)? 

Gaman að spá í þetta...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mitt álit er að trú er mannskemmandi og ég stend við það, það verður aldrei von um frið í heimi okkar á meðan trúarBRÖGÐ eru til, simple as that.

En hey gleðilegt ár Gréta og takk kærlega fyrir kortið!!

DoctorE (IP-tala skráð) 2.1.2008 kl. 13:59

2 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Gleðilegt ár, DoctorE, þú yndislegi spaugari og samfélagsrýnir!

Greta Björg Úlfsdóttir, 2.1.2008 kl. 14:03

3 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Þó þú sért kannski/sennilega ekki hrifinn af því að vera kallaður "yndislegur"!


Greta Björg Úlfsdóttir, 2.1.2008 kl. 14:05

4 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Hef trú á trú og góðum hug, en finnst oft eins og allir púkar helvítis hafi fengið hempu í gegn um tíðina og etji mannfólkinu þannig gegn hvoru öðru, sem talsmenn Guðlegs máttar á jörðu.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 2.1.2008 kl. 15:56

5 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Gleðilegt ár Greta mín!  Við þurfum öll að muna að trú og trúarbrögð er alls ekkert það sama og stundum langt frá því.

Hafðu það gott á nýju ári, knús og kveðjur, sjáumst fljótlega Greta

Ragga

Ragnhildur Jónsdóttir, 2.1.2008 kl. 16:05

6 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Held að trú(sama á hvað) geti verið mjög öflugt vopn til ills en ekki síður til góðs. Allir stórir menn hafa notað eitthverskonar trú til að stjórna hópum, það getur verið trú á einræði/lýðræði, gegn ákveðnum hópum, með ákveðnum hópum á eitthvað yfirnátturulegt.  Sterkar skoðanir sem lætur fólk trúa því að hlutirnir geta verið betri ef þeir bara.... OG þar sem fullorðnir eru oft svo hræddir og þreyttir þá bara fylgja þeir blint á eftir.  Betur fer er til fullt af góðu fólki sem notar trúnna til góðs.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 2.1.2008 kl. 16:52

7 identicon

Ég líklega frekar húmanisti frekar en trúleysingi, þar sem ég trúi á sjálfan mig...

En ég trúi því að trú innan "skynsamlegra" marka sé góð því oftar en ekki, því eru það góð gildi sem kennd eru.

Það eru iðullega einhverjir öfgamenn innan ákveðinna sella í trúafélögum sem brengla og afmynda merkingu trúarbóka.

Fáfræði er líka það sem ógnar samfélaginu, eins og kom fram í þessu ágæta myndbandi(sem býður þó upp á mjög takmarkaða sýn).

Og ef að fólk er að fara með staðreyndir í trú þá er um að gera að kynna sér efnið.

Því Japanar eru ekki almennt búddatrúar, opinberlega eru það trúlaus þjóð og fer fólk afskaplega hversdagslega með þá trú sem iðkuð er í landinu.

Shinto og búddismi eru í raun iðkuð sem ein trú, og velur fólk bara í raun það því hentar að trúa.

Svo er líka kristniboð í Japan.

Bara að uppfræða þig ;)

Sindri Svan (IP-tala skráð) 2.1.2008 kl. 17:12

8 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Sindri, minntist ég einhvers staðar á opinbera, eða ríkis trú í Japan? Það að þeir hafi ekki "þjóðkirkju" þýðir ekki endilega að þeir séu trúlausir. Þó virst gæti að bæði þú og biskupinn haldi það.

Hefur þú handbærar einhverjar tölur um trúabrögð Japana, hvaða trúarbrögð þeir aðhyllast, eða ekki, almennt, í prósentum?

Ástæðan fyrir því að það kemur fram í myndbandinu að 80% þeirra trúa ekki á Guð er sú að Búddismi er einfaldlega ekki eingyðistrú. Það þýðir þó ekki að Japanir séu trú-lausir.

Ég veit ekki betur en að á Íslandi, og víðar, velji fólk einnig sjálft hverju það hentar að trúa. Það er helst í Bandaríkjunum að enn séu stundaðar "nornaveiðar" gegn þeim sem ekki játa kristna trú.

Greta Björg Úlfsdóttir, 2.1.2008 kl. 17:23

9 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Grein í Wikipediu:

"Shinto and Buddhist teachings are deeply entangled in Japanese everyday life, though the Japanese people themselves may not be aware of it.  "

Þýðing: Gildi (teachings) Shinto og Búddisma eru sterklega samofin hversdagslífi Japana, þó japanska þjóðin geri sér ef til vill ekki grein fyrir því. 

Ekki frekar en Íslendingar gera sér almennt grein fyrir því hve kristni er samofin menningunni hér á landi. 

Religion in Japan

Bara að uppfræða þig, Sindri

Þó vafalaust séu margir Íslendingar, Japanir OG Bandaríkjamenn fyrst og fremst materíalistar. Bandaríkjamennirnir fyrst og fremst mestu hræsnararnir.

Greta Björg Úlfsdóttir, 2.1.2008 kl. 18:17

10 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ragga mín, þú hefur hárrétt fyrir þér (#5)

Í ljósi þessa ætla ég að leyfa mér að breyta fyrisögninni og textanum mínum í samræmi við þessa ábendingu þína, þó maður eigi strangt til tekið ekki að fikta í texatanum sínum eftir að maður er búinn að birta hann hér. 

Breyting á fyrirsögn og texta kl. 18:33: Orðinu TRÚ breytti í TRÚARBRÖGÐ. 

Greta Björg Úlfsdóttir, 2.1.2008 kl. 18:34

11 identicon

Hmm kannski kem ég til með að brosa í gegnum tárin eftir þessa könnun hjá þér Gréta ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 2.1.2008 kl. 19:26

12 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Doksi á þig

Þorsteinn, það mætti stundum álíta það.

Tveir hinna guðlegu hafa nú dæmt mig til vísisloga, eða kannski ég sleppi með hreinsunareld, þar sem ég játa ekki trú á upprisu holdsins. Eða fara þeir vantrúuðu ekki þangað eftir dauðann, samkvæmt því sem þeir boða?

Reyndar var trúleysingi einn hér á blogginu búinn að gera slíkt hið sama, þar sem ég játast ekki undir að þurfa að kála nánum ættingjum mínum fari þeir ekki að vilja mínum, til að geta talist kristin.

Nanna, góð pæling hjá þér.

Greta Björg Úlfsdóttir, 2.1.2008 kl. 21:00

13 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Þetta átti náttúrulega að vera "víTisloga" en ekki "vísisloga"; ég held að það sé ekki nein hætta á að ég verði tekin á beinið á visir.is eftir andlátið!

Greta Björg Úlfsdóttir, 2.1.2008 kl. 21:41

14 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

http://binntho.blog.is/blog/binntho/entry/402516/#comment939043

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 3.1.2008 kl. 21:59

15 identicon

Anti-semitismi undir rós er ekkert fallegri en hinn. Jesús var gyðingur og það var engin tilviljun. Af mínum persónulegu kynnum af gyðingum, verð ég að segja að þessi hámenningarlega og gáfaða þjóð sem hefur oft þurft að líða fyrir að beygja sig hvergi undir meðalmennskulegar hugmyndir og hatur og afbrýðissemi vegna einstaklega góðs atgerfis hennar (meira en 30% af nóbelsverðlaunahöfum eru gyðingar (sem eru aðeins lítil þjóð að fjölda, þó þú teljir alla í heiminum saman), sérlega afreksmenn í læknavísindum sem hafa bjargað lífi milljóna, svo sem maðurinn sem fann upp pencilín, sem þú eins og flestir þekkir væntanlega einhvern sem væri dauður án), eru örlátasta og umburðarlyndasta fólk sem ég hef persónulega kynnst um æfi daga mína.......

Það er ekki heldur tilviljun að Karl Marx og aðrir hugmyndasmiðir velferðarkerfis þess sem þú lifir við, og höfundar okkar stjórnmálakerfis, voru nær allir (og allir þeir mikilvægustu) gyðingar að ætt rétt eins og hinn merki Jesús.

Öfund er smán þeim sem sýnir hana.

Shalom (IP-tala skráð) 6.1.2008 kl. 03:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband