Leita í fréttum mbl.is

Tiltekt

Tók aðeins til í bloggvinalistanum mínum til að stytta hann aðeins og gera hann auðveldari. Vona að enginn móðgist. Ef einhver sem ég eyddi út hefði vill vera á listanum áfram bið ég viðkomandi um að biðja mig um að verða bloggvinur áfram, það er minnsta mál.

Vörubílstjórar

truckdriverOft hefur mér verið um og ó vegna aksturs stórra trukka í umferðinni hér innanbæjar. Nú er mér enn meira um og ó, eftir að hafa séð hversu geggjaðir menn sitja bersýnilega undir stýri sumra þeirra, samanber átök undangenginna daga...

Feneyska höfnin í Chania, Krít

100_0385-2100_0393-2Þegar ég sá að Steini Briem, nýjasti bloggvinur minn, er búinn að setja inn sem höfundarmynd af sér mynd sem tekin var af honum við feneysku höfnina í Chania, Krít, rifjaðist upp fyrir mér yndislegur dagur og kvöld sem ég átti einmitt á þeim stað síðast liðið haust, með foreldrum mínum og Lindu vinkonu minni. Þetta var 84. afmælisdagur pabba heitins, 29. september, og jafnframt hans síðasti í þessu lífi. Minning sem yljar mér um hjartarætur og er mér mjög dýrmæt.

100_0397-2100_0396-2100_0399-2100_0401-2

Á þessum litla bar á myndunum hér fyrir neðan, sem er í einni af litlu götunum í gamla hverfinu upp af höfninni, fengum við okkur hressingu seinna um kvöldið, áður en við héldum heim á hótelið.


This is My Life

north-by-northwestHér var komin kveðja áður en ég færði textann í færsluna hér fyrir neðan, svo þessi færsla er endurbirt í breyttu formi...LoL

Góða nótt! Heart Sleeping

<- P.s.  Þessa frábæru mynd horfði ég á í kvöld í boði Sólheimabókasafns... Wink

North by Northwest á YouTube 


This is My Life...

 
...og this is my life (tengill)...

...já, this is my life...(tengill)

og þetta líka...This is My Life(tengill)... 

...og svo auðvitað þetta: 


Heilir og sælir...

...bloggvinir góðir. Ég biðst forláts á litlum og lélegum bloggum þessa dagana. Málið er það að ég er sérlega andlaus þegar kemur að bloggskrifum núna og einnig er ég að reyna að venja mig af of miklu tölvuhangsi, heilsunnar vegna, bæði andlegrar og líkamlegrar og taka til hendi á öðrum sviðum. Svo ég segi þetta gott í bili og bið ykkur vel að lifa, elsku dúllurnar mínar, hafið það gott á meðan ég safna kröftum. Heart

Jæja...

...það er víst kominn tími á almennilegt bogg hjá mér, annað en bara eitthvert dót af YouTube, þó gott sé...LoL

Af mér er það að frétta að mamma mín er búin að vera á sjúkrahúsi í síðan á mánudaginn var, en hún fer heim á morgun. Hún virðist hafa fengið lítinn blóðtappa í heilann, sem olli henni talörðugleikum og máttleysi, en sem betur fer hefur þetta allt gengið til baka, og hún útskrifast á morgun.

Það má líta á þetta sem áminningu til okkar allra um hverfulleika lífsins og verðmæti þess að þakka það sem maður hefur hér og nú. Eins og mamma sagði í dag við lækninn: "Það hefðu allir gott af að leggjast hér inn (á tauglækningadeildina) þó ekki væri nema til þess að læra að meta hvað þeir hafa það gott" Heart (það er að segja þeir sem ná að útskrifast fljótlega heilir heilsu).

Fyrir mig hefur það á vissan hátt verið frábært að snúast í kringum múttu mína á deildinni sem ég vann á fyrir u.þ.b. 7 árum síðan og fá að upplifa að þar mundi samstarfsfólkið sem ég vann með ljóslega eftir mér og spurði jafnvel hvort ég væri ekki til í að koma að vinna þar aftur (það er að segja á einni af erfiðistu deildum Lansans! :)) Það getur vel verið að ég fari að vinna þar aftur sirka 1-2 vaktir í viku, það kveikti þvílíkt í mér að vera þarna aftur, ég sem hélt að ég væri algjörlega búin á því að vinna við hjúkrun! Whistling ...SmileHeart

En til þess að ég fari að gera það verður að fást botn í það hvað er að mér í hægra hnénu mínu, þar sem ég er með samfelldan spennuverk, sem ekki sést hvað veldur á myndunum sem teknar hafa verið í fjölmörgum rannsóknum, og hefur bara lagast aðeins pínu lítið við að vera ekki í vinnu s.l. 2 ár þar sem maður gengur yfirleitt fleiri fleiri marga kílómetra á dag, - en hefur ekki batnað!

Nú fer ég næsta miðvikudag til læknis til að fá endurnýjað heilbrigðisvottorð fyrir örorkumatið vegna lífeyris frá lífeyrissjóði ríksisstarfsmannna; þá ætla ég að heimta að fá þetta almennilega skoðað einu sinni enn, þó svo ég verði að leggjast á skurðarborð og láta fara inn í þetta verklega, (það er að segja að skera í  Bakers-cystuna sem ég veit sjálf að ég er með og þrýstir á taugar og æðar, en læknarnir fatta ekki), en ekki á mynd, til að kanna hvað í andskotanum veldur þessari eilífu spennu á svæðinu sem heldur iðulega fyrir mér vöku þegar ég er að fara að sofa og mun örugglega versna ef ég fer að vinna. 


Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.