Leita í fréttum mbl.is

Ballerína

Var að fá þessa mynd senda af ballerínunni í fjölskyldunni, er hún ekki barasta alveg æðisleg? InLove

Ferðalag&Partí 1231


Elvis

Fabulous Elvis - Lonely Elvis - Troubled Elvis - Poor Elvis :

 

HÉR er myndband með Elvis og Johnny Cash í upphafi ferils beggja og á betri tímum hjá Elvis, (en ekki Cash, sem virkar mjög ungur og hlédrægur þarna), það er misjafnt mannanna lánið og ekki fer alltaf saman gæfa og gjörvuleiki, það sannaðist á blessuðum rokk-kónginum.

Seinna hermdi Johnny Cash eftir Elvis, það er að segja, að eigin sögn þá hermdi hann eftir einhverjum að herma eftir honum, sem er nærri lagi, þar sem þetta er frekar mislukkað að mínum dómi. Þekkti sín takmörk kallinn, sýnist mér. Svo hermdi Elvis Presley eftir Johnny Cash, þó ég fái nú tæplega séð þennan performans sem eftirhermu, frekar að Elvis hafi pikkað ýmislegt upp frá Cash, enda held ég að Presley verði seint hælt sem stórkostlegum leikara eða eftirhermu.

Eftir lát kóngsins minntust  gömlu félagarnir hans frá upphafi ferilsins í þessum söng.

Kæru lesendur, eins og sjá má er ég algjörlega dottin í  YouTube og mun það líklega verða mín ástríða næstu vikur, fram yfir moggabloggið,  við heimkomu frá Prag, Tékkóslóvakíu. Mun  mjög sennilega verða að vænta endalausra pósta af YT frá þessari dellukellingu (og perfektionista) sem er hætt að kaupa allltof dýrar þjóðbúningadúkkur á eBay og stunda GóðaHirðinn, en er tekin til við YouTube í staðinn (sem er auðvitað mun ódýrara hobbý, ef út í það er farið). ShockingWhistling.

...það er að segja,nema hún hitti og fái dellu fyrir einhverjum mjög fabulous (þ.a.s. ofurkrúttlegum) TÉKKA, sem verður þó að teljast mjög ósennilegt...Tounge...þó svo, ævintýrin enn gerist, tralalala....(b.g.og ingibjörg?)


June Carter Cash

Ég undrast ekki (ekki það að ég hafi nokkurn tíma undrast!) að að Johnny Cash elskaði þessa konu ofur heitt þegar ég horfi á þetta yndislega  myndband um June og Carter fjölskylduna:

Keep on the sunny side of life Smile !
 
Þetta myndband segir manni enn meira, hér er það June sem er í aðalhlutverki:

Hér er gamalt myndband með Carter-fjölskyldunni: 

 ANNAÐ með sama lagi, aðeins yngra
 
...Og maður fær náttúrulega bara gæsahúð af því að hlusta á þetta: 
 

Johnny Cash

 Cash

 

 

Svanasöngur Johnny Cash, 5. júlí, 2003

Johnny Cash lést 12. september, 2003.

 

 

 

Þetta er alveg örugglega fallegasta ástarjátning sem ég hef séð! InLoveHeart
...nema ef vera skyldi ÞESSI SÖNGUR Heart

Heimatannlækningar

Upplagt fyrir þá sem annað hvort eru of sparsamir eða of hræddir til að fara til tannlæknis:

Gerðu-það-sjálf/ur-pakkinn - ódýrt og auðvelt! Devil


Raunasöngur tannlæknis

Mun Bohemian Rhapsody nokkurn tíma hljóma eins aftur fyrir mér, eftir að hafa hlustað á þetta? Crying
"The greatest song ever written! InLove
Ojú og jú...!!! 

Bloggfærslur 10. nóvember 2007

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.