Leita í fréttum mbl.is

Brúður með sorgarslör?

bildeAf hverju var Bónus-og-Hagkaupa-brúðurin með SVART slör þegar hún giftist milljarðaprinsinum? Hingað til hef ég haldið að svarti liturinn táknaði sorg í okkar heimshluta. Ég varð eiginlega alveg forviða að sjá þetta í fréttunum, ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum og fannst þetta alveg stórfurðulegt, en ég er líka bara venjulegur íslenskur fjölyrki.

Annars finnst mér nú dálítið snemmt að útnefna þetta brúðkaup aldarinnar, þar sem það eru nú aðeins liðin tæplega sjö ár af öldinni. Ætli það verði nú ekki búið að toppa þetta brúðkaup fyrir næstu aldamót? 

 


Saumakonan

k79INNILI~2

 

 

 

 

 

 

 Uppi í háu húsi... er gamla bloggið mitt á Blogger. Svona er þetta blessaða saumakonu-nafn til komið, á bloggum konu sem aldrei saumar (nánast): Nafnið var sem sé skírskotun í vísnaleikinn "ein ég sit og sauma, inni í litlu húsi" og bloggið hét í upphafi "inni í litlu húsi" (áður en það breytti um útlit og saumakonan gerðist vitavörður), tilvísun í að "enginn kemur að sjá mig, nema litla músin".

Ef við förum enn lengra aftur þá byrjaði ég að blogga á ensku á Blogger og kallaði mig þá "the millenium mouse", eða þúsaldarmúsina....þaðan kom sko nefnilega litla músin að sjá saumakonuna...svona er nú minn húmor...Tounge

Já, ég var víst eitthvað svolítið einmana í sálinni þegar ég byrjaði saumkonu-bloggið, fannst að minnsta kosti fáir kíkja við. Ýmislegt hefur breyst síðan, en ég verð nú víst áfram nokkuð sérvitur og hlédrægur einfari, þó þeir sem mig þekkja viti að ég get alveg sýnt af mér kæti í góðra vina hópi, ef svo ber undir. Joyful

Að sumu leyti býður Blogger upp á möguleika sem eru þægilegri og léttari í vöfum en þeir sem hér bjóðast, en þar er náttúrulega ekki fyrir að fara því sérstaka samfélagi bloggara sem hér er að finna. Þess vegna er ég nú flutt hingað á moggabloggið...Halo...þó hér geti reyndar líka verið dálítið einmanalegt, þegar fáir nenna að kommenta, þó maður skrifi hverja færsluna eftir aðra...Woundering


Góður Dagur og Flott Stelpa

8-12-2006-500

Langholtsskóli, sumar 2005

Í þessari frétt er rætt við alveg stórkostlega efnilega unga stúlku, Önnu Sigurrós, nemanda í 7. bekk í Langholtsskóla. Það er sko ekki verið að tvínóna við hlutina á þeim bæ, heldur drifið í þeim og talað við rétta aðila. "Ég kom heim, - brjáluð - , og sagði mömmu að ég þyrfti að hringja - í borgarstjórann - og Morgunblaðið". Þetta kalla ég mjög jákvæða brjálsemi! Kannski verður þessi "brjálaða" unga kona einhvern tíma borgarstjóri í Reykjavík?

"Svo vildi til" (orð blaðamanns) að nýjar tillögur að skólalóð við Langholtsskóla voru ræddar á fundi borgarráðs þennan morgun - og svo mætti Dagur á lakkskónum, með sæta og skilningsríka læknabrosið á sínum stað, í fylgd myndatökumanna, að skoða aðstæður og ræða við stelpurnar - Gaman hjá krökkunum - og eins og einhver sagði, geðveikt PR-móment - og allir ánægðir. Wink 


mbl.is Nemendur Langholtsskóla fá loks skólalóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. nóvember 2007

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband