Leita í fréttum mbl.is

1-1-2

Vegna þess að að rætt var við starfsmann hjá 112 um símsvörun og viðbrögð við neyðarköllum á Rúv, rás 1, sl. laugardagsmorgun, (í umfjöllun um Rauða Kross Íslands og skyndihjálp) langar mig að segja frá eina skiptinu á ævinni sem ég hef þurft að hringja í það númer ( hingað til  og sem betur fer, 7-9-13). Því miður fannst mér þetta eftir á heldur neikvæð lífsreynsla, burtséð frá tilefninu, þar sem mér fannst viðbrögð þess sem svaraði í hæsta máta ankanaleg.


Tildrög voru þau að það var keyrt á ungan pilt á vélhjóli á gatnamótunum hér neðan við húsið, reyndar hélt bílstjórinn því fram að hann hefði keyrt á sig. Hvað um það, hávaðinn af þessu var það mikill að það heyrðist hingað inn og til slatta af nágranna líka, sem dreif að á hlaupum. Þar sem ég fékk ekki á hreint hvort búið væri að hringja á sjúkrabíl dreif ég mig í að hringja í 112 í gemsann minn sem ég hafði gripið með mér. Skýrði frá því að það lægi ungur maður slasaður í götunni eftir árekstur vélhjóls og bíls, sennilega fótbrotinn og óskaði eftir að sendur yrði sjúkrabíll á hornið á K. og K. (og lögregla, að sjálfsögðu). Hvaða frekari upplýsingum óskaði sá sem svaraði mér helst eftir? Getið upp á því...: "Hvaða tegund af bíl var það sem sem var "innvíklaður" í atburðinn?" Ég: "Ha? Tegund af bíl? (Hvað hefur það nú með það að gera að koma slösuðum manni til hjálpar?)...Ja, það veit ég ekki, þekki ekki bílategundir, en það liggur ungur, slasaður maður hér í götunni sem þarf að komast undir læknishendur sem fyrst!" Hann:"Nei, nei, góða mín, ég þarf að fá mynd af aðstæðum fyrst, vertu nú bara róleg og segðu mér hvaða tegund af bíl það var?"..."Ég: ...ja, já, þa, það er slasaður maður hérna..." Hann: "...já, já, góða mín, segðu mér fyrst frá aðstæðum, hvaða tegund af bíl var þetta?"...þá var undirritaðri nóg boðið og rétti næsta karlmanni símann... Sem betur fer kallaði svo fljótlega einhver að það væri búið að hafa samband við 112 úr öðrum síma.


Púff! Það lítur út fyrir að það sé betra að vera klár á bílategundum við svona aðstæður, skítt með alla fyrstu hjálp, eða hvað? Ætli hann hafi næst viljað fá að vita af hvaða tegund vélhjólið var áður en hann féllst á þörf fyrir sjúkrabíl? Kannsi líka árgerð og skráningarnúmer? Undarlegt, og alls ekki í samræmi við þau viðbrögð sem ég bjóst við. Vona að þau séu ekki dæmigerð.

Eins hef ég í framhaldi af þessum atburði velt því fyrir mér varðandi viðbrögð á slysstað þar sem saman er kominn hópur af fólki og allir með gemsana sína tilbúnir að hringja á aðstoð; hvernig er hægt að samhæfa það að hringja eftir hjálp, svo ekki berist ótal hringingar af sama staðnum?

Því miður er síðan mín hér enn heldur slétt og felld Woundering

Það rætist vonandi úr því þegar ég hef kynnt mér betur og lært á þá möguleika sem boðið er upp á hér Wink


Ég um mig...

Orri Harðarson skrifar í Moggablogg sitt um veikindi sín í frumbernsku:

"Sálfræðingar hafa talað um að atvik í frumbernsku geti haft varanleg áhrif á sálarlífið. Þegar ég kom inn í þennan heim var mér vart hugað líf. Ég kom fyrir tímann og var víst haldinn einhverju sem í dag kallast loftbrjóst. Það er ekki fallegt orð. Virkar á mann eins og einhver sérstök tegund af vindgangi. En þegar ég fæddist hét þetta keisaraveiki. Það er nú öllu meiri vigt í því, enda var ég í bráðri lífshættu. Læknar gátu ekkert gert og ég megnaði aðeins að draga andann með því að liggja á vinstri hliðinni. Svo beið fólk eftir því að ég læknaði mig sjálfur. Það hefði mér þótt ótíðindi, væri ég farinn að hugsa. En þarna var ég sumsé strax orðinn vinstrisinni og enn ekki farinn að hugsa heila hugsun. Vinir mínir á hægri vængnum bíða sjálfsagt enn eftir að af mér brái." (GBÚ:Feitletranir eru mínar.)

Ber að skilja hann Orra svo að það sé skárra að segja "ég" nokkuð oft í sama textanum, heldur en að segja "mér", "mig" og "mín" mjög oft?

Kannski væri, með hliðsjón af veikindum Orra í bernsku, lag fyrir Björn Bjarnason að reyna að tylla sér á vinstri hliðina, þar sem hann liggur nú fyrir á Landspítalanum, til að læknast af hægrivillu og egósentrisma, - að maður tali nú ekki um gölluðum stíl? Kannski heldur seint í rassinn gripið, eða ættum við heldur að segja brjóstkassann?

Það sem Bjössi kallinn virðist fara í fínu taugarnar á sumu fólki, þannig að það finnur meira að segja hjá sér hvöt til að krítisera það hvernig hann skrifar um veikindi sín og sjúkrahúsvíst. Því nægir víst ekki að vera á móti þeirri utanríkisstefnu sem hann stendur fyrir eða gjörðum hans sem menntamálaráðherra á árum áður. Jahénna.

Bróderí númer 1: Frábær mynd!

Sá spænsku myndina Völundarhúsið í Regnboganum s.l. föstudagskvöld . Hún býður upp á afar ofbeldisfullar senur og mörg atriðin eru blóði drifin. Þrátt fyrir það er myndin hrífandi fögur frásögn af lífsbaráttu og hugarheimi ungrar og hrifnæmrar stúlku á tímum spænsku borgarastyrjaldarinnar. Listræn blanda af raunsæjum hryllingi og fegurð ímyndunaraflsins. Og tónlistin er frábær.
- Það var klappað í bíósalnum í lokin! -

Svo sá ég auðvitað líka Pret-a-Porter (nenni ekki að leita að réttu kommunum á lyklaborðinu!) hjá Kvikmyndasafninu s.l. þriðjudag, sem var náttúrlega aldeilis og sérdeilis dægilegt.


Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

Bloggfærslur 11. febrúar 2007

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband