Leita í fréttum mbl.is

Blómálfur

LFUROG~2Gáðu að því, maður, að lítill blómálfur, sem þú sérð flögra grein af grein og á milli blóma á sólríkum sumardegi, er sterkari en þig grunar. Mundu, að hann hefur lifað af vetrarhörkur, þó hann eigi ekki í nein hús að venda. Það er flestum dauðlegum mönnum hulin ráðgáta hvernig þetta má vera, en sé blómálfurinn spurður um þetta hristir hann einungis höfuðið, dularfullur á svip og skellihlær.

Ást

"...Það er nefnilega þannig að ef ástin fær ekki að flæða í gegn, þá staðnar hún og breytist í söknuð, sorg og biturð. Þess vegna þarf maður alltaf að leyfa henni að renna til annara og endurnýja sig.  Hún er lífsvatnið, sem þarf sína hringrás til að haldast ferskt."

Prakkarinn (Jón Steinar Ragnarsson)

 Svo satt, svo satt. Þetta var gott að lesa á erfiðum tíma. Takk!


Sko!

Þetta ættum við alveg eins að geta, eins og danir. Setjum okkur markmið: Íslendingar 1 milljón árið 2050!

mbl.is Dönum sagt að eignast fleiri börn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. mars 2007

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband