Leita í fréttum mbl.is

Bergmál

sólheimar

Ég kom heim í dag, endurnćrđ á sál og líkama, eftir vikulangt orlof ađ Sólheimum í Grímsnesi á vegum líknar- og vinafélagsins Bergmáls. Dvölin var í einu orđi sagt yndisleg! Ţarna kynntist ég mörgu góđu og skemmtilegu fólki og var umvafin ást og hlýju frá morgni til kvölds. Góđur matur í hvert mál, svo ég stóđ á blístri, og ég fór daglega í sundlaugina, ţar sem ég var tekin í međferđ (cranio-sacral). Ég fékk fótsnyrtingu viđ harmónikkuundirleik, og kvöldvaka var á hverju kvöldi, ţar sem fram komu listmenn hver öđrum betri. Og síđasta kvöldiđ var svo dansiball í bođi Vinabandsins!

Fariđ var í Skálholt, ţar sem tekiđ var á móti okkur međ tónleikum og frćđslu og indćlis máltíđ á eftir. Síđan lá leiđin í Dýragarđinn í Slakka, en ţađan var ekiđ til Hveragerđis, ţar sem viđ ţáđum síđdegishressingu í matsal H.N.L.F.Í., međ viđkomu í barnafataversluninni Do-Re-Mi á Selfossi, sem ein af félagskonum Bergmáls á og rekur. Voru ţar versluđ krúttleg barnaföt á vćgu verđi. Einnig gerđu sumar kvennanna í ferđinni góđ kaup í verslun ţar viđ hliđina á, sem ég man ekki hvađ heitir, ţar sem allt var selt á ađeins ţúsund krónur og virtist mér sem ţćr hefđu himin höndum tekiđ viđ ţau innkaup Tounge !

Allt ţetta var okkur ţátttakendum algjörlega ađ kostnađarlausu, ţar sem starfsemi félagsins byggir alfariđ á frjálsum framlögum og sjálfbođaliđsstarfi. Hjartans ţakkir, öll ţiđ sem gerđuđ allt ţetta kleift međ ykkar óeigingjarna starfi og framlagi Heart.

*Ţví miđur gleymdi ég myndavélinni heima, svo ég get ekki sett inn myndir frá dvölinni hér, en ţađ munu koma myndir síđar á heimasíđu Bergmáls, ef einhver hefur áhuga.

Ofstćki og áróđur

EwigerJudeFilm

"Der Ewige Jude": http://video.google.com/videoplay?docid=4664969119079760194&q=der+ewige+jude&hl=en

Einkennilegt ađ horfa á ţessa áróđursmynd nú nćstum 70 árum eftir gerđ hennar. Mađur verđur eiginlega ekki lengur hissa á Gyđingahatri ţessara ára eftir ađ hafa horft á hana. Ađ ţessi svćsna, hatursfulla samsuđa hafi hriniđ á einfaldar og móttćkilegar sálir, svo ţetta fólk hafi snúist af heift gegn Gyđingum, eđa í ţađ minnsta veriđ ósárt um örlög ţeirra. Sér í lagi ef höfđ er í huga sú efnahagslega viđreisn sem Hitler tókst ađ koma á í Ţýzkalandi.

EN: Getur veriđ ađ viđlíka áróđur heyrist ennţá hér og ţar á ţví herrans ári 2007, ţó í öđru samhengi sé? Ég held ađ ţađ sé hollt ađ líta sér nćr í ţeim efnum. 

Wikipedia:
http://en.wikipedia.org/wiki/The_Eternal_Jew_%28film%29


Bloggfćrslur 30. ágúst 2007

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.