8.9.2007
Innlit og gestir
Nú sé ég á teljaranum að 168 manns hafa litið við á síðunni minni í dag. Nú ætla ég aðeins að herma eftir henni Ragnheiði bloggvinkonu og biðja um eitt: Mikið lifandis skelfing þætti mér gaman ef einhverjir af þessum gestum sæju sér fært að sjá af smá tíma til að kvitta fyrir komuna í kommentum, þó ekki væri nema einn broskall, eða fýlupoki, eftir atvikum, svo ég sjái hverjir það eru sem koma hingað.
Á sama tíma vil ég þakka Ásthildi Cesar bloggvinkonu minni fyrir það hvað hún kommentar oft á færslurnar mínar og líka bloggvinkonunum Heidi og Berthu og nýju bloggvinkonu minni henni Ragnhildi.
Bloggar | Breytt 9.9.2007 kl. 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
8.9.2007
Ha, ha, ha...Ratatouille...
Þessu hefði ég nú ekki trúað fyrirfram, en ég sat í bíó áðan og horfði alveg heilluð á mynd um...hvað haldið þið...af öllum dýrum...ROTTU! Rottu sem er meistarakokkur og heillar mann alveg upp úr skónum
. Þetta er alveg frábær mynd, falleg og vel gerð. Ég myndi segja, sérstaklega vegna allrar matreiðslunnar sem fer fram í myndinni, að hún sé fullt eins mikið, eða jafnvel frekar, fyrir fullorðna eins og krakka - en til til þess að geta notið hennar má maður þó til að gleyma því í bili að rottur eru í raun meindýr sem bera með sér bakteríur og alls kyns sóðaskap - ef maður gerði það ekki er ég hrædd um að það vekti manni einungis ógleði að sjá rottu við matargerð í eldhúsi fíns veitingastaðar. En Remy, meistarakokksrottan, má þó eiga það að hann/hún gengur alltaf upp á endann, á afturlöppunum, til þess, eins og hann segir bróður sínum, að óhreinka ekki loppurnar sem hann snertir matinn með!
Ég læt fylgja hér uppskrift að franska réttinum ratatouille, en hann gegnir mikilvægu hlutverki í myndinni eins og nafn hennar ber með sér. Þessa uppskrift fann ég á netinu og skelli henni hér; því miður kann ég ekki uppskriftina eins og Remy eldaði sinn rétt og heillaði matgæðingana með, en hún leit afar girnilega út á diskunum.
Túnfisk-ratatouille
4-6 msk olía
1 laukur skorinn í báta
2 söxuð hvítlauksrif
1 eggaldin skorið í teninga
1 kúrbítur í sneiðum
100g sveppir í sneiðum
400g niðursoðnir tómatar
1 msk óreganó
salt & pipar
100g brokkolí í vænum bitum
1 msk hveiti
400g túnfiskur úr dós vatnið sigtað frá
1 lítill poki af kartöfluflögum
Hitið ofninn 190¨C. Léttsteikið lauk, hvítlauk og eggaldin í 3 msk af olíu í 5-8 mín. Bætið kúrbít og sveppum út í og látið malla í 10 mín. í viðbót. Bætið tómötum og óreganó út í. Saltið og piprið. Sjóðið á meðan brokkkálið í 3 mín. og bætið á pönnuna (ég myndi nú bara skella því beint út í, þar sem ég vil hafa það stökkt). Hristið hveitið og 2 msk. af vatni og hellið út í (ég myndi sleppa þessu hveitisulli!). Hrærið þar til þykknar. Setjið helminginn af grænmetisblöndunni í eldfast mót og dreifið túnfisknum yfir. Síðan hinn helminginn af blöndunni ofan á það og loks kartöfluflögurnar (þeim myndi ég sleppa, fyrir minn smekk). Bakið í 20 mín.
Bloggar | Breytt 10.9.2007 kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.9.2007
Góð heilsa er gulli betri...

![]() |
Fannst á lífi eftir að hafa verið týnd í skóglendi í tvær vikur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.9.2007
Klikketí-klakk...
Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu eru í molum og ástandið fer bara versnandi.
Ég veit hvað við gerum: Gröfum bara göng frá Seltjarnarnesi og upp á Akranes og setjum í þau neðanjarðarlest (metró), og líka suður í Hafnarfjörð. Svo þarf að hafa nógu marga strætóa út frá lestarstöðvunum, svo það sé búið með að híma í kulda og trekki tímunum saman að bíða eftir strætó um vetur. Ég held að margir myndu leggja einkabílnum væri þetta svona. Og svo færum við flugvöllinn til Keflavíkur og setjum svo lestarstöð í flugstöðina og lestarspor með lest inn til miðborgar Reykjavíkur, eins og gert er í útlöndum. Einfalt, ekki satt? En kostar náttlega hellings rask og pening.......en hafa menn ekki í fullri alvöru látið sér detta í hug að grafa göng út í Vestmannaeyjar (þar sem mun færri búa, þar að auki)? Jarðskjálftar? Það eru lestarkerfi í Japan, ekki koma minni skjálftar þar en hér. Snjór og slabb? Er það ekki líka í t.d. Noregi og Svíþjóð, auk þess sem það kemur ekki lengur vetur á suðurlandi Íslands og fer versnandi eftir því sem jörðin hitnar
.
................
....segir kona sem elskar að ferðast með lest!....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.9.2007
Strætó
Eins er bjánlegt að fá bara öryrkjaafslátt með því að kaupa kort, en ekki ef maður staðgreiðir, og líka að strætóstjórar skuli ekki gefa til baka ef maður til dæmis er bara með seðil í veskinu, þá reynir maður óhjákvæmilega að finna leið til að svindla, ef maður hefur ekki mátt vera að eða fattað að skreppa í sjoppu til að skipta, frekar en að borga 500 kall fyrir farið!
Mér finnst líka fíflalegt að vagnstjórarnir skuli vera hættir að selja strætókortin (alla vega öryrkjakortin, kannski selja þeir ennþá hin, held samt ekki), eins og var í gamla daga og að maður skuli þurfa að fara á einhverja af þessum "aðalstöðvum" til þess að kaupa þau. Sennilega eru þeir svo tímaknappir að talið sé að þeir megi ekki vera að því að afgreiða fólk á þennan hátt. Ég hef þó orðið vör við að greiðviknir vagnstjórar gefi erlendum ferðamönnum til baka, og reyndar til fyrirmyndar hvað þeir eru oftast viljugir að leiðbeina þeim, því má hrósa.
![]() |
Svindl með strætókort stóreykst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bloggfærslur 8. september 2007
Bloggvinir
-
Valgerður Sigurðardóttir
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Baldur Kristjánsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Brattur
-
Brynja skordal
-
Brynjar Jóhannsson
-
Calvín
-
Dunni
-
Egill Bjarnason
-
Egill Jóhannsson
-
Einar Bragi Bragason.
-
Elías Stefáns.
-
Gestur Guðjónsson
-
Gullvagninn
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Gunnlaugur B Ólafsson
-
Guðjón H Finnbogason
-
Guðmundur Helgi Helgason
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Haraldur Bjarnason
-
Heidi Strand
-
Heiða B. Heiðars
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Húmoristaflokkurinn
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingólfur
-
Isis
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Jonni
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Jón Axel Ólafsson
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Júdas
-
Júlíus Valsson
-
Karl V. Matthíasson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kolbrún Hilmars
-
Kristján G. Arngrímsson
-
Kári Harðarson
-
Linda
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Marinó G. Njálsson
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
Orgar
-
Pjetur Hafstein Lárusson
-
Ragnar Freyr Ingvarsson
-
Ragnar Geir Brynjólfsson
-
Ragnheiður
-
Ragnhildur Jónsdóttir
-
Rut Sumarliðadóttir
-
Salmann Tamimi
-
Sema Erla Serdar
-
Signý
-
Sigurður Sigurðsson
-
Steinar Immanúel Sörensson
-
Steingrímur Helgason
-
Svanfríður Guðrún Gísladóttir
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
Sveinn Ólafsson
-
SM
-
Thelma Ásdísardóttir
-
Toshiki Toma
-
Vefritid
-
Viggó H. Viggósson
-
Villi Asgeirsson
-
Yousef Ingi Tamimi
-
hreinsamviska
-
molta
-
Ágúst Hjörtur
-
Ár & síð
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Þorleifur Ágústsson
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þórdís Katla
Myndaalbúm
192 dagar til jóla
Tenglar
myndefni
- Myndirnar mínar á flikr.com flestar fyrir fjölskylduna
- Ég á YouTube
blogg
- Dagbók Ástu Sólveigar Bloggað frá París
- Ingi, Allý og börn
- Welcome to my mind
- Uppi í háu húsi
- Jóhanna Kristjónsdóttir
- Vita Facilis
- Móa í Medford
- Tómas Atli Ponzi
- Waiter Rant
- Inspiratations and Creative Thoughts
- Castles in the sand
- hnakkus
- Jólin Ýmislegt dóladót
- Saumakistan Handavinna af ýmsu tagi
- Baldur McQueen
ýmislegt
- Global Voices Online
- Reporters Without Borders
- Amnesty
- Ísland Panorama
- Bergmál
- Le Droit Humain
- Explore Crete
- Félag CP á Íslandi
- OKUR
- Guðspekifélag Íslands
- Orkusetur
- Friendship Tapestry
- The Gnostic Gospels
- The Gnosis Archives
- Madame Blavatsky
- Tolle
- BC Recordings
- KIVA
- Koptíska kirkjan í Egyptalandi
- The Teachings of Jesus Christ
- Wikibók Völu
- Alþjóða Sam-Frímúrarareglan á Íslandi
- Alþjóðahús
- LAUF
- banksy
- Greinasafn Sigurfreys
- Halldór grín
Mið-Austurlönd
Stjórnmál
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar