Leita í fréttum mbl.is

Matarsóun ?

rotinandi_avextir_og_graenmeti.jpgÁ þessari mynd sem Jóhann Þröstur Pálmason tók á mótmælafundinum í dag má sjá að það er greinilega ekki vert að býsnast mikið yfir matarsóun þeirra sem hentu matvælum í Alþingishúsið. Mómælendur hafa fengið matvöruna gefins einhvers staðar. Kannski voru eggin líka komin fram yfir síðasta söludag?

Vonandi þurfum við ekki að leggja okkur til munns rotnandi ávexti og myglað grænmeti í framtíðinni, hvað þá fúlegg.



Vonandi...

hungry-children.jpg...fara leikar aldrei þannig að þessi sömu blessuðu börn eigi eftir að standa í þeim sporum að hugsa með söknuðu til matarins sem þau hentu í Alþingishúsið í dag. Tæplega eru þau öll komin af ríkisbubbum? Fyrir utan það að fljótt skipast veður á lofti þessa dagana, frá ríkidæmi til örbirgðar.

Samlandar, takk fyrir góðan mótmælafund í dag!

Sérstaklega ber að þakka Herði Torfasyni hans stórkostlega framtak og prúðmannlegu stjórn og því góða fólki sem með honum starfar að því að gera þessa fundi mögulega.

Guð blessi Ísland og íslensku þjóðina.

Myndin er héðan: old-photos.blogspot.com/.../hungry-children.html


mbl.is Örsmár hópur ungmenna grýtir þinghúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. nóvember 2008

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband