Leita í fréttum mbl.is

Framtíðarsýn

eldliljurÉg fann tengilinn á myndbandið hér á eftir í athugsemd Einars á bloggi Egils Austurlandafara. Mig langar til að setja hann hér inn svo fleiri geti hlustað á það sem sagt er á því því um íslam og múslima.

Bara ef allir gætu tileinkað sér hugsunarhátt frjálslynda rithöfundarins Dhiyaa Al-Musawi frá smáríkinu Bahrain á Arabíuskaga, sem rætt er við á þessu myndbandi. Halo

Hér má lesa viðtalið (á ensku). 


Velferðargrísirnir

stress relieveFrétt, sem breska dagblaðið The Sun birti 1. október, 2005,  um svína-dagatölin, svína-leikföngin, svína-glerfígúrurnar og tissjúboxið með mynd af Bangsímon og grislingnum sem starfsmenn á velferðarsviði borgarstjórnar í Dudley (íbúatala 2001: 194,919) í Mið-Englandi höfðu skreytt skrifstofur sínar með, en urðu að að breiða yfir eða fjarlægja af skrifborðum sínum af tillitssemi við múslímskan vinnufélaga sinn, má lesa HÉR

Múslímskur starfsmaður hafði kvartað við yfirmenn sína yfir því að sviðinu hefðu borist svo kallaðir "stress relievers" það er að segja gúmmíkúlur, í þessu tilviki bleikar og í laginu eins grísir, sem á að kreista til að slaka á (kreista-slaka-kreista-slaka o.s.frv.), á þeim tíma sem Ramadan (mestu hátíðahöld múslima) fór í hönd. Eins og kunnugt er mega múslimar ekki borða svínakjöt, því samkvæmt trú þeirra eru svín óhrein dýr.

Mjög viðeigandi og fyndin gjöf til starfsmannanna. Það undarlega var að umræddur starfsmaður tók sína gjöf ekki með bros á vör og kreisti hana, eins og vinnufélagarnir, heldur fór og klagaði þá fyrir yfirmönnunum.  Sem ber auðvitað vott um algjört vanþakklæti og skort á skopskyni. Þó var svo sem ekki við öðru að búast,  það er öllum kunnugt að sumt fólk er einfaldlega óalandi og óferjandi og kann ekki að taka saklausu gríni.

Þetta alvarlega mál urðu auðvitað þau bresku blöð sem hafa snefil af sjálfsvirðingu að taka til umfjöllunar, og fréttin um bönnuðu gúmmígrísina á  velferðarsviði borgarstjórnarinnar í Dudley fór eins og eldur í sinu um hinn vestræna heim, að minnsta kosti yfir Ermasundið, til "hinnar íhaldssömu raddar Evrópu" og yfir Atlantshafið til grísa-elskandi föðurlandsvina þar í álfu.

Nema á litlu eyjunni í norðri, Íslandi, þangað barst fregnin um þennan merka atburð ekki fyrr en  seint og um síðir með frétt í Morgunblaðinu 27. febrúar, 2008, og var þá aðeins greint frá honum í þessum (ríflega) tveimur línum:

"Þá liggur nú fyrir tillaga um það í bæjarráði Dudley að banna allar myndbirtingar af grísum á vegum hins opinbera en í tillögunni er Gríslingur úr sögunni um Bangsímon nefndur sem dæmi um grís sem ætti að banna."

Svona seinagangur nær náttúrulega ekki nokkurri átt! Crying

(Heyrði ég einhvern segja EINELTI?)

Danska skáldið H. C. Andersen samdi á sínum tíma ævintýri um fjöður sem varð að fimm hænum. Mér sýnist að af þeirri sögu sem ég hef sagt ykkur hér að framan megi draga þann lærdóm að litlir gúmmigrísir geti líka blásið út og fjölgað sér meira en margan grunar.


Bloggfærslur 29. febrúar 2008

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.