Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

A Family in Baghdad:

faiza2"Today is better than tomorrow"

Set hér línk á mjög athyglisverð skrif fjölskyldu frá Írak. Ég ætla ekki að fjölyrða um þau, að öðru leyti en að segja að mér finnst skrifin hennar Faizu segja manni miklu meira um hið raunverulega ástand þarna suður frá en nokkur fjölmiðlaumfjöllun hér uppi á ísa köldu landi getur gert.


Brúðkaup

Brúðhjónin Ásta og RikkiÍ dag var ég í brúðkaupi systurdóttur minnar. Það er alltaf jafn gaman að vera boðin í brúðkaup og þetta var alveg yndislegt. Ég ætla að birta hér að gamni mínu mynd sem ég tók í veislunni af þessum myndarlegu, nýgiftu hjónum .

Hjartanlega til hamingju, elsku Ásta og Rikki!


Tiltekt!

Ég hef ákveðið að taka aðeins til í bloggvinalistanum mínum, þar sem mér þykir hann orðinn full umfangsmikill. Ég ætla að takmarka hann við þá bloggvini sem ég þekki persónulega, þá sem kommenta reglulega á bloggin mín og þá sem hafa óskað eftir því að fyrra bragði að verða bloggvinir mínir. Aðra bið ég velvirðingar á að henda þeim út og ítreka að það er alls ekki gert af óvild Crying , heldur aðeins af fyrrgreindri ástæðu  Halo

Jæja þá...

guðm FR-118 ...komin með tölvu hér heima aftur, þökk sé vini mínum á myndinni hér til hægri (sú er að vísu ekki alveg ný af myndavélinni, maðurinn er dag ívið ljósari yfirlitum!), sem fannst algjörlega vonlaust að blessuð konan væri tölvuvana og gerði sér lítið fyrir og dreif í málum og skenkti mér eina gamla, en fullkomlega nothæfa, ásamt fylgihlutum. ADSL frá Vodafone komið í gagnið... Svo nú er bara að drífa sig og byrja að blogga enn á ný...!!! Tounge Takk, Guðmundur! Kissing

Speki

Whatever you do, you need courage. Whatever course you decide upon, there is always someone to tell you you are wrong. There are always difficulties arising which tempt you to believe that your critics are right. To map out a course of action and follow it to the end, requires some of the same courage which a soldier needs. Peace has its victories, but it takes brave men to win them. - Emerson

Í dag var mér alveg óvænt GEFIN tölva InLove, svo nú hyllir ef til vill undir að bloggfærslum fjölgi hjá mér... Wink (en þetta er hvorki loforð né hótun! Blush )


Á veröndinni


flugnasuð
þytur í grænu laufi

lít í bók
með svaladrykk við hönd

sýg brjóstsykur
og læt mig dreyma

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.