Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008
27.8.2008
La Vie en Rose
Ég var að horfa á "La Vie en Rose", myndina um Edith Piaf :
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.8.2008
Tanka
Nær hefði verið
að sofa þá löngu nótt
en að bíða hans
og horfa á mánaglóð
hníga að sjávaröldum.
Síst skyldi bíða
svefn er betri og draumar
en horfa á nótt
og sjá mánann sökkva hægt
í dimmblá sjávardjúpin.
Akazome Emon
(? -- 1027)
Þýðing eftir Pjetur Hafstein Lárusson
Þaðan sem röðull rís
Ljóð | Breytt s.d. kl. 21:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
12.8.2008
Bloggedíblogg
Um leið og ég þakka nýjasta bloggvini mínum kærlega fyrir að vilja vera bloggvinur minn bið ég þá sem ég kann að hafa sært eða móðgað hér um daginn með því að henda þeim út af lista fyrirgefningar og bið þá um að æskja vináttu aftur, hafi þeir enn áhuga á henni eftir aðfarir mínar. Málið er það að ég var að reyna að gera listann viðráðanlegri hvað varðar lestur og yfirsýn .
Einnig bið ég bloggvini mína forláts á því hversu léleg ég er að setja inn athugasemdir; þar er málið það að ég á fullt í fangi með að virkja nægilegt andríki til eigin bloggskrifa og orka varla meira. Ég veit ekki hvort samband er á milli þessa og ofursvefnsins sem ég sagði frá í seinustu færslu.
Nú er klukkan að verða átta og enn er ég farin að renna hýru auga til rúmsins míns , þó ég ætli að dóla mér enn um sinn hér heima, í þetta sinn við að...ég veit ekki hvort það er sorglegt eða hlægilegt að nú er ég komin í þann ham að hirða aftur upp úr pokum og kössum dót sem ég var búin að setja niður í gær og staðráðin í að losa um eignarhald mitt á næstkomandi laugardag ...ég keypti nefnilega ÆÐISLEGT stórt, kínverskt leirker í Góða Hirðinum í dag, og um leið hætti ég auðvitað við að selja sólhlífarnar mínar og blævængina og slatta af skrautdúkkunum ...æ, ég er víst ansi mikil vog þó ég sé fædd í meyjarmerkinu..jójó...
12.8.2008
Ofursvefn
Oft hefur svefnleysi plagað mig, en nú virðist hið gagnstæða láta á sér kræla, sem sé að ég að ég sofi endalaust...
Ég fór að sofa kl. 9 (já, kl. 21.00) í gærkveldi. Vaknaði upp um tvöleytið, fékk mér te og las svolítið, sofnaði svo aftur og vaknaði aftur, haldið ykkur fast,...kl. 10.32 í morgun! Ég sem hélt að ég þyrfti ekki að stilla vekjaraklukku þegar ég færi svona snemma að sofa, (því ég vil helst ekki sofa lengur en til 9.30, sér í lagi ekki á sumrin, á þeim árstíma þegar eiga má yndislega fundi við hina rósfingruðu morgungyðju við árvöku), - en svo virðist vera þessa dagana.
Í gær gerði ég ekkert sérstakt til að valda þessari miklu svefngetu, fór í Góða Hirðinn að skoða og spjalla, dundaði mér svo hér heima við að tína til dót sem ég ætla að selja á FLÓAMARKAÐI sem haldinn verður framan við KR-heimilið í Frostaskjóli, í Vesturbænum, laugardaginn 16. ágúst, kl. 12-17 (gott tækifæri til að grynna á jarðneska góssinu, nú eða afla sér nýs fyrir lítinn pening), eldaði mér góðan mat (gourmet-máltíð að vanda), horfði á fréttir og fór síðan sem fyrr segir að sofa, þegar ég gat hvorki haldið augunum opnum né líkamanum í lóðréttri stöðu lengur, svefninum mikla (ekki langa!) svo sem komið er á daginn.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Flogið frá Reykjavíkurflugvelli til Narssassuaq síðdegis. Við komu þangað tóku á móti okkur fararstjórarnir Invi Þorsteinssong og Pálína (að vísu vildi Ingvi að við kölluðum sig bara "farangursstjóra"). Svo var hópnum (34 manns) ekið niður á höfn og síðan tók við 6 klst. sigling með vélbátnum "Perlunni" út Eiríksfjörð til Qaqortoq (Julianehåb), þangað sem komið var seint um kvöldið. Þar fengum við gistingu á fínasta hóteli, því eina í bænum, held ég
23. júlí
Siglt með Perlunni í Hvalseyjarfjörð, þar sem skoðaðar voru rústir Hvalseyjarkirkju.
Síðan siglt til baka til Qaqortoq, sem er miðstöð menntunar í landinu (skólabær). Þar tók við gönguferð um bæinn, meðal annars var gamla kirkjan þeirra skoðuð og gengið niður á höfn.
Fjögur úr hópnum, við mæðgur, Ragna og Björn Guðbrandur, vorum svo lánsöm að þegar við slöppuðum af eftir göngutúrinn í sólskininu utan við veitingastað Eddu (sem ég segi frá hér síðar) tók okkur tali grænlensk kona, Kistine Hansen, sem hefur mikil tengsl við Ísland. Bauð hún okkur af mikilli gestrisni heim til sín, í rauða húsið á myndinni hér að ofan, að skoða garðinn sinn og sjá heimili sitt. Þetta er merkileg kona og gaman að tala við hana og fræðast um hugmyndir hennar um framtíð Grænlands.
Um kvöldið var snæddur kvöldverður (hreindýragúllas) á veitingastað sem hin íslenska Edda rekur þarna í bænum ásamt grænlenskum eiginmanni sínum. Þar var ýmislegt gert okkur til skemmtunar, tvær konur úr kirkjukórnum sungu fyrir okkur grænlensk lög, Kaj, maður Eddu, spilaði á gítar og söng, þar á meðal leyfði hann okkur að heyra grænlenskt "trommudanslag" eins og galdramennirnir þeirra sungu, og yngsta dóttir hjónanna, 12 ára gömul, söng við gítarundirleik föður síns. Einn úr hópi ferðalanganna var líka söngvinn vel og góður á gítar, svo úr öllu þessu varð hin besta skemmtun. Einnig gerði það mikla lukku þegar mamma afhenti Eddu íslenskan fána sem hún hafði tekið til í farteski sitt í þeim tilgangi, þegar hún frétti að íslensk kona myndi taka á móti okkur þetta kvöld.
Siglt með Perlunni inn Einarsfjörð í Garða (Igaliku), sem er innst í firðinum. Þar var snæddur málsverður, síðan voru staðhættir skoðaðir og minnst byggðar norrænna manna.
Mjótt eiði skilur að Einarsfjörð og Eiríksfjörð á þessum stað, hinir hraustari gengu þar yfir en hinir "latari" fengu bílfar. Þaðan var siglt á þremur hraðbátum aftur til Narssassuaq. En ef síðasta myndin er skoðuð má sjá að hafnaraðstað þarna er heldur bágborin, en allt bjargaðist samt með skammti af hugrekki og góðra manna hjálp. Enda eru það engir aukvisar sem á annað borð leggja á sig Grænlandsför!
(Því miður fáar myndir úr Görðum, því þar uppgötvaði ég að komið var að því að hlaða rafhlöðu myndavélarinnar!)
Um kvöldið var snæddur dýrindis kvöldverður á hótelinu í Narssassuaq, sem er til húsa í gamalli sjúkrahúsbyggingu Ameríkana frá stríðstímum, sem gerð hefur verið upp.
Siglt með Perlunni inn Eiríksfjörð í Brattahlíð, u.þ.b. 20 mín. sigling. Þar var minnst byggðar norrænna manna og skoðuð lítil kapella og hús sem reist hafa verið eftir þeirri vitneskju sem menn hafa um hana. Ekki spillti að þar tók á móti okkur skemmtileg leiðsögn umsjónarkonu safnsins, sem lifði sig mjög inn í hlutverk sitt svo úr varð, mátti segja, svolítill leikþáttur.
Siglt til baka og umhverfi Narassuaq skoðað, meðal annars flugminjasafn um dvöl Bandaríkjamanna á þessum slóðum, fram að brottför síðdegis aftur heim til Reykjavíkur. Á Reykjavíkurflugvelli lentu sælir ferðalangar, en þess má geta að veðurguðirnir léku við okkur allan tímann, með glampandi sól og sælu, hvað það snertir gátum við ekki verið lánsamari.
Það má skoða fleiri myndir úr ferðinn HÉR
Ég hefði gjarnan viljað skrifa betri lýsingu á ferðinni, en læt þetta duga. Vonandi gefur þó myndbandið sem ég fann á Youtube og læt fylgja hér tengil á einhverja hugmynd um hversu stórfengleg náttúra landsins er: Grænlandía
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Bloggvinir
- Valgerður Sigurðardóttir
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Bertha Sigmundsdóttir
- Birgitta Jónsdóttir
- Brattur
- Brynja skordal
- Brynjar Jóhannsson
- Calvín
- Dunni
- Egill Bjarnason
- Egill Jóhannsson
- Einar Bragi Bragason.
- Elías Stefáns.
- Gestur Guðjónsson
- Gullvagninn
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðjón H Finnbogason
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Haraldur Bjarnason
- Heidi Strand
- Heiða B. Heiðars
- Helgi Jóhann Hauksson
- Húmoristaflokkurinn
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur
- Isis
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jonni
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Jón Axel Ólafsson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Júdas
- Júlíus Valsson
- Karl V. Matthíasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kolbrún Hilmars
- Kristján G. Arngrímsson
- Kári Harðarson
- Linda
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Orgar
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Ragnar Freyr Ingvarsson
- Ragnar Geir Brynjólfsson
- Ragnheiður
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Rut Sumarliðadóttir
- Salmann Tamimi
- Sema Erla Serdar
- Signý
- Sigurður Sigurðsson
- Steinar Immanúel Sörensson
- Steingrímur Helgason
- Svanfríður Guðrún Gísladóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Ólafsson
- SM
- Thelma Ásdísardóttir
- Toshiki Toma
- Vefritid
- Viggó H. Viggósson
- Villi Asgeirsson
- Yousef Ingi Tamimi
- hreinsamviska
- molta
- Ágúst Hjörtur
- Ár & síð
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Þorleifur Ágústsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þórdís Katla
Myndaalbúm
4 dagar til jóla
Tenglar
myndefni
- Myndirnar mínar á flikr.com flestar fyrir fjölskylduna
- Ég á YouTube
blogg
- Dagbók Ástu Sólveigar Bloggað frá París
- Ingi, Allý og börn
- Welcome to my mind
- Uppi í háu húsi
- Jóhanna Kristjónsdóttir
- Vita Facilis
- Móa í Medford
- Tómas Atli Ponzi
- Waiter Rant
- Inspiratations and Creative Thoughts
- Castles in the sand
- hnakkus
- Jólin Ýmislegt dóladót
- Saumakistan Handavinna af ýmsu tagi
- Baldur McQueen
ýmislegt
- Global Voices Online
- Reporters Without Borders
- Amnesty
- Ísland Panorama
- Bergmál
- Le Droit Humain
- Explore Crete
- Félag CP á Íslandi
- OKUR
- Guðspekifélag Íslands
- Orkusetur
- Friendship Tapestry
- The Gnostic Gospels
- The Gnosis Archives
- Madame Blavatsky
- Tolle
- BC Recordings
- KIVA
- Koptíska kirkjan í Egyptalandi
- The Teachings of Jesus Christ
- Wikibók Völu
- Alþjóða Sam-Frímúrarareglan á Íslandi
- Alþjóðahús
- LAUF
- banksy
- Greinasafn Sigurfreys
- Halldór grín
Mið-Austurlönd
Stjórnmál
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.12.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar