Leita í fréttum mbl.is

Um stíga, stiga, lyftur og gryfjur

menntavegurinnMér datt í hug,...varðandi stiga, sem eins og kunnugt er, má oftast ganga bæði upp og niður...

Fyrir ofan gamla samkomuhúsið á Akureyri (núverandi leikhús) stendur Menntaskólinn á Akureyri. Stígur liggur upp hlíðina og nefnist "menntavegurinn". En sé þessi sami stígur genginn niður í móti nefnist hann "glötunarvegurinn".

(Vonandi leiðréttir mig einhver ef ég fer hér rangt með).

Í augum hins ofur-lofthrædda getur stigi, sem öðrum sýnist auðgenginn, vafalaust virst álíkur illkleifu einstigi.

Woman_in_the_Dunes_posterSums staðar eru lyftur í háhýsum. Til er fólk sem þjáist af lyftufóbíu, og getur þess vegna ekki notað slíka samgöngubót, nema því fylgi svo mikill angist að því liggur við andláti af hennar völdum. 

Það hlýtur að vera mjög erfitt að þjást bæði af lyftufóbíu og lofthræðslu. Þá verður fólk að halda sig við jörðina. - Eða leita svara ofan í henni, eins og maðurinn í japönsku kvikmyndinni "Konan í sandinum" (sem er sú bíómynd sem, af mörgum ástæðum, hefur orðið mér minnisstæðust um dagana).

Myndina af börnum á leið upp menntaveginn fékk ég lánaða (tók traustataki!) af opinberri Picasa-Google-síðu HILDAR 


Jólalambið

jesus the good shepherd-1"Jólalambið meig svo sannarlega í munni."

Svona hef ég aldrei áður um dagana heyrt tekið til orða. Hefur þó þetta guðslamb lifað 56 jól!

Er þetta orðatiltæki ættað úr Aðaldalnum, eins og blóðbergið sem sérann kryddaði lambið með í tilefni jólanna, eða hvað?

Ég fékk nánast klígju þegar ég las þessa setningu. Mér fannst verulega ósmekklegt af presti að taka svona til orða um jólalambið. En það er sjálfsagt bara vegna þess að ég er jurtaæta.


...hafið...bláa hafið...

100_0280-5

 

 Ekki missa trúna á mannkynið.  

  - Það er eins og hafið -

 - þó nokkrir dropar

þess séu óhreinir,

er það ekki allt óhreint.

- Mohandas Gandhi


Bloggfærslur 26. desember 2007

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.