Leita í fréttum mbl.is

Óvægnar innheimtuaðgerðir

bjorgun_ur_olfusa.jpgTalandi um óvægnar innheimtuaðgerðir: Munið þið eftir fréttinni frá Selfossi þar sem verktakar (iðnaðarmenn) fóru inn í nýfrágengna björgunarmiðstöð Björgunarfélagsins Árborgar og rifu allt út aftur, vegna vangoldinna reikninga?

Mér fannst undarlega lítið veður gert út af þessari frétt.

Líklega eru engir þeirra karla sem stóðu fyrir endurheimtingunni á því sem þeir höfðu rétt lokið við að koma fyrir útivistarmenn, sem gætu þurft að láta gera leit að einhvern daginn. Vonandi lenda þeir heldur ekki í því að einhver úr fjölskyldunni missi stjórn á bílnum og endi úti í Ölfusá.

Myndin með færslunni er tekin af heimasíðu félagsins og sýnir björgun bíls úr Ölfusá.


mbl.is Mótmæla innheimtuaðferðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

sællt veri fólkið en ég er aðilinn sem bíllinn var tekkin af og við erum að mótmæla hvernig lýsing er að vinna sína vinnu, ég gerði mér fulla grein fyrir því að geingis trigð lán fara fram en ég skal bara seigja ykkur dæmið eins og það er frá upphafi.

 í ágúst 2007 kaupi ég þennan umræda bíl á 2.200.000. krónur

ég borga strax út 1.000.000 kr

eftirstöðvarnar bið ég lysingu um að lána mér fyrir semsagt 1.200.000 til 2 ára þar sem ættlaði mér að eignast bíllinn þar sem mig lángaði ekki að vera með skuldir á eftir mér í mörg ár.

í ágúst 2008 hætti ég að geta greit af þar sem ég var bæði ekki að fá borgað og vinnan var farinn að dragast  verulega saman en ég reyni samt að gera mitt besta til að reyna að fá mína peninga inn og einig að skapa mér meiri vinnu til að geta greit af mínum lánum en ef þið hafið kíkt út þá er ekki míkið verið að framkvæma svo það var nú ekki hægt að velja úr verkefnum en ég gat feingið að vinna fyrir aðila sem hafa það orð á sér að vera ekkert sérstaklega duglegir að greiða sína reykninga svo ég ákveð að vera ekkert að taka þá vinnu.

Í oktober 2008 fer ég á fund lysingar og seigi stöðuna ekki góða því það sé erfit að fá peninga og ég spir hvort sé möguleiki að geta tekið þær afborganir sem eru komnar í vanskil og setja þær afturfyrir og frista lánið svo ég borgi vexti í vetur á meðan þetta versta er að líða hjá. Svarið sem ég fékk var nei ekki nema ég myndi byðja pabba og mömmu um að gánga í veð fyrir skuldunum og afborganir færu aldrey niður fyrir það sem ég var að borga fyrir ári.

En það vill svo skemtilega til að það virðist ekkert vera sama árferði og var í firra því ver og miður svo ég tek þá ákvörðun heldur en að gánga að þessu og setja mömmu og pabba í veð þá fer ég með tækin til þeira og skila þeim inn til þeira.

bíllin var metinn sem uppítökuverð frá heklu 3.400.000

aðfinslur til niðurfellingar 2.958.585

svo verðmat bílsins sem eftir stendur 441.411

eftirstöðvar 2.209.853

bíll til lækunar því 441.411

það sem ég á eftir að borga þeim 1.768.442

og þá er eftir vagnin og Hjólagrafa

ég kaupi tæki fyrir 11.000.000 í firra borga út 4.500.000

nú er búið að taka þetta allt og ég á að borga þeim ca 9.400.000

ef ég hefði lagt upp með það í upphafi að borga þetta ekki þá hefði ég stofnað EHF.

Jón Heiðar (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 16:20

2 identicon

Hæ Gréta mín.

Já, þetta er bara fáránlegt, þ.e. hvernig þessir innheimtumenn haga sér. Ég meina, fólk er í erfiðleikum statt. Hvað á það að gera? Nei ég bara spyr. Hvað ætla bankarnir og lífeyrissjóðirnir að hafast við, taka eignirnar af fólki og sitja uppi með þær sjálfir? 

Nei þetta er bara fáránlegt.

Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 16:55

3 identicon

Smá dæmisaga um fáránleika innheimtumanna og starfsemi líeyrissjóða, þetta er raunverulegur gjörningur sem snýr að mér sjálfum og því ekki hægt að véfengja . Ég verð seint talinn til stuðningsmanna sjóðasukks og haf því lent í vanskilum með greiðslur í lífeyrissjóð fyrir mig sjálfan persónulega, mér hefur alltaf fundist greiðslur í lífeyrissjóð  vera sóun á fjármunum og næsti bær við að hreinlega henda peningum, því til sönnunar fæ ég reglulega bréf frá sjóðnum þar sem mér er tilkinnt að haldi ég áfram að borga sjóðnum fram á elliár, ef maður verður þá ekki dauður áður, muni ég fá heilar 2300 krónur á mánuði, JIBBÍ, FRÁBÆRT. Bréfin sem þessi vesalings sjóður sendir mér kosta trúlega annað eins, þegar pappírspésarnir eru búnir að sitja sveittir og útúrmenntaðir með reikningsstokkinn sinn.Svo er fáránleiki innheimtumannanna við að ná í þessa aura því vissulega er ekki um miklar upphæðir að ræða í fyrstu, en þegar innheimtubatteríið er búið að grautast með kröfuna verður hún gjarna þreföld, ég vesaling sveitamaðurinn hryngdi náttúrulega og vildi fá einhverjar skýringar á þessu öllu saman, jú sjáðu til einhverjar fáránlegar útskýringar komu um tilkominn kostnað, pappírskostnaður ofl var skýringin , hefði ekki verið nær að segja sannleikann GRÆÐGI.Ég vildi einnig fá útskýringar á hvernig í ósköpunum stæði á því að betra væri fyrir mig að geyma peningana undir koddanum heldur en að láta þá í hendurnar á starfsmönnum lífeyrissjóðanna, því þannig er það einfaldlega .

gunnar pálmi (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 18:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.