Leita í fréttum mbl.is

Hörður Reykjalín

Hörður ReykjalínÞann 13. maí eignaðist ég aftur nýjan frænda.

Hann er þó alls ekki síðasta barnið sem von er á í stórfjölskyldunni á þessu ári, því systrabörn mín eru svo dugleg við framleiðsluna Wink.

Velkominn í heiminn, Hörður litli! Heart


This is my life : Be a Winner !

 
 
Er þetta myndband ekki bara flottara en "okkar" ? Tounge
 
Smá sannleikur í því líka Wink...
 
Persónulega finnst mér Friðrik Ómar bara flottur...InLove
Hann hefur "charisma" á sviði, nokkuð sem ekki er öllum gefið,...samanber blaðamannafundinn sem sýnt var brot úr í Kastljósinu, þar sem hann sýndi vel hvað í honum býr, með því að grípa tækifærið, vinda upp á allar útlistanir og bresta í söng á íslensku! LoL

Hvað er

...Er "nytjastuldur" eitthvað frábrugðinn öðrum stuldi? Og af hverju er mönnunum ekki refsað fyrir athæfið? Furðuleg frétt.
mbl.is Ekki gerð refsing fyrir nytjastuld og þjófnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Víkingalottó

Það eru 465 milljónir í pottinum í Víkingalottó þessa vikuna. Aldrei þessu vant keypti ég mér miða, í gær um leið og ég tók bensín, það má alltaf láta sig dreyma...Halo

Ég verð barasta mjög hissa ef eitthvað af þessari upphæð rennur ekki til MÍN (ef ekki öll, vá, þá þyrfti maður nú aldeilis að leggjast undir feld!).

Er ekki sagt að jákvæð hugsun vinni kraftaverk, þess vegna sleppi ég því að setja hýsteríska hláturskallinn í færsluna og bíð spennt eftir úrslitum kvöldsins...Wizard


Úlfur Fróði

Úlfur FróðiLitli frændi í París verður 3ja mánaða 9. maí. Eins og sjá má dafnar hann vel og brosir svona líka fallega í myndavélina. Hann kemur í heimsókn til Íslands í júlí með pabba sínum og mömmu, þá verður hann skírður.

Tiltekt

Tók aðeins til í bloggvinalistanum mínum til að stytta hann aðeins og gera hann auðveldari. Vona að enginn móðgist. Ef einhver sem ég eyddi út hefði vill vera á listanum áfram bið ég viðkomandi um að biðja mig um að verða bloggvinur áfram, það er minnsta mál.

Vörubílstjórar

truckdriverOft hefur mér verið um og ó vegna aksturs stórra trukka í umferðinni hér innanbæjar. Nú er mér enn meira um og ó, eftir að hafa séð hversu geggjaðir menn sitja bersýnilega undir stýri sumra þeirra, samanber átök undangenginna daga...

Feneyska höfnin í Chania, Krít

100_0385-2100_0393-2Þegar ég sá að Steini Briem, nýjasti bloggvinur minn, er búinn að setja inn sem höfundarmynd af sér mynd sem tekin var af honum við feneysku höfnina í Chania, Krít, rifjaðist upp fyrir mér yndislegur dagur og kvöld sem ég átti einmitt á þeim stað síðast liðið haust, með foreldrum mínum og Lindu vinkonu minni. Þetta var 84. afmælisdagur pabba heitins, 29. september, og jafnframt hans síðasti í þessu lífi. Minning sem yljar mér um hjartarætur og er mér mjög dýrmæt.

100_0397-2100_0396-2100_0399-2100_0401-2

Á þessum litla bar á myndunum hér fyrir neðan, sem er í einni af litlu götunum í gamla hverfinu upp af höfninni, fengum við okkur hressingu seinna um kvöldið, áður en við héldum heim á hótelið.


This is My Life

north-by-northwestHér var komin kveðja áður en ég færði textann í færsluna hér fyrir neðan, svo þessi færsla er endurbirt í breyttu formi...LoL

Góða nótt! Heart Sleeping

<- P.s.  Þessa frábæru mynd horfði ég á í kvöld í boði Sólheimabókasafns... Wink

North by Northwest á YouTube 


This is My Life...

 
...og this is my life (tengill)...

...já, this is my life...(tengill)

og þetta líka...This is My Life(tengill)... 

...og svo auðvitað þetta: 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband