3.10.2007
Næturkviss
You Are Pretty Logical |
![]() While you don't have perfect logic, you logic is pretty darn good Keep at it - you've got a lot of natural talent in this area! |



Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2007
Myndir
Ég er búin að tína myndir í albúm hér fyrir neðan til vinstri (14 stk.), en á heilmikið eftir til að setja inn. Reyni að vanda mig, til að hafa tímaröðina rétta, því ég get ekki séð að gefinn sé möguleiki á að raða myndunum seinna, eins og t.d. er hægt á Flikr.com .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.10.2007
Jarðarber með rjóma
Eitt kviss fyrir svefninn :
You Are Strawberries with Cream |
![]() You're confident in who you are. You don't need a facade to feel better about yourself. |
Góða nótt!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.10.2007
Heima
Þá er ég komin til fósturjarðarinnar, eftir dýrlega daga á Krít. Ísland heilsaði okkur með rigningu og roki, en samt er gott að koma aftur heim. - En það er alveg öruggt að ég á eftir að heimsækja "hina eyjuna mína" sem fyrst aftur
.
Ég bý fljótlega til albúm með myndum úr ferðinni, ef einhver vill skoða. Það verða samt sem áður mest myndir af foreldrum mínum og okkur Lindu vinkonu á hinum ýmsu veitingastöðum og á ströndinni, því þetta var mestmegnis afslöppunarferð hjá okkur, - en líka vegna þess að ég náði tæpast að fanga fegurð eyjarinnar með litlu imbavélinni minni. Svo var ég líka rólegri í tíðinn varðandi skoðunarferðir vegna þess hversu ákveðin ég er í að fara aftur til Krítar - það er gaman að eiga eitthvað til góða, í stað þess að reyna að borða alla molana úr öskjunni í einu!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.9.2007
Dómskerfið
Stundum getur verið ánægjulegt að sjá að það er ekki alltaf harkan sex sem gildir við uppkvaðningu dóma.
En ansi skýtur samt tímalengdin sem maðurinn þyrfti að sitja inni, ryfi hann skilorð, skökku við þá dóma sem kveðnir eru upp í nauðgunarmálum. Það er ljóst að ekki er sama hvort um auðgunar- eða ofbeldismál er að ræða þegar kemur að því að dæma, fyrst dómur fyrir að stela hangikjötslæri slagar hátt upp í dóma fyrir að svívirða líkami og sálir kvenna eða barna (hversu margir karlmenn kæra annars nauðgun?). En líklega verður þó að skoða þennan dóm í ljósi fyrri dóma sem maðurinn hafði á sér.
![]() |
Þrettán mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela hangikjötslæri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.9.2007
Salat, 2
![]() |
Neysla grænmetis og ávaxta dregur úr líkum á lungnakrabba |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.9.2007
Salat
Ég er nýbúin að "fatta uppá" salati, sem mig langar til að deila hugmyndinni að með ykkur, því það er svo æðislega gott:
Klettasalat (rucola), radísur, gul melóna og "salatblanda" (ristuð fræ og hnetur, frá Gott fæði í Kópavogi), extra virgin ólífuolía, ferskpressaður sítrónusafi og salt, í "hæfilegum" hlutföllum, eftir smekk.
Setjið slatta af klettasalati í skál. Skerið radísur og melónu í bita og setjið yfir. Stráið vænum skammti af fræjum og hnetum þar yfir, hellið slatta af ólífuolíu yfir þetta og að endingu nokkrum dropum af sítrónusafa. Setjið salt af hnífsoddi út í og blandið vel. Borðist ferskt. Bon appetit!
Því miður gleymdi ég að taka mynd af herlegheitunum áður en ég át þau, svo engin mynd skreytir færsluna!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.9.2007
Inni

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
12.9.2007
Trú
You are Agnostic |
![]() For you, there's no true way to figure out the divine. You rather focus on what you can control - your own life. And you tend to resent when others "sell" religion to you. |

Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2007
Heppni
Your Luck Quotient: 76% |
![]() More often than not, you've felt very lucky in your life. You may be randomly lucky, but it's probably more than that. Optimistic and open minded, you take advantage of all the luck that comes your way. |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.9.2007
Heilalitur

Your Brain is Blue |
![]() Your thoughts are realistic, fresh, and honest. You truly see things as how they are. You tend to spend a lot of time thinking about your friends, your surroundings, and your life. |

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
11.9.2007
Mengun og óhreinindi
Þessi "frétt" kemur því miður ekki á óvart. Hvenær ætlar mannkynið, eða öllu heldur þeir sem fara með stjórn í mannheimum og einhverju ráða, að fara að takast á við vandann, í staðinn fyrir að klemma aftur augun og skella skollaeyrum við svona fréttum? Til dæmis einn tiltekinn Búskur í BNA, en þeir eru svo sem fleiri búskarnir um alla veröld, smáir og stórir. Við íslendingar mættum alveg taka okkur smá í gegn og hætta að taka hreinu lofti og vatni og ósnortinni náttúru sem sjálfgefnum hlutum, það gæti farið svo að við glötuðum þeim verðmætum, ef svo fer sem horfir.
Rofið bloggfrí, ég veit, en þessi frétt snerti mig bara svona inn að beini!
Viðbót: Loftslagsbreytingar - efasemdamenn, takið ykkur 10 mínútur til að horfa á þetta.
![]() |
40% allra dauðsfalla tengd mengun og óhreinindum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
9.9.2007
Hann Úlfur minn
Ég var áðan að bæta myndum í "bræðra"albúmið mitt, og datt þá í hug að leyfa ykkur, þó ég eigi að vera komin í bloggfrí, að lesa fallegt ljóð sem að pabbi minn orti um yngri strákinn minn þegar hann var í pössun hjá afa sínum og ömmu einu sinni. Mikið gladdi þetta ljóð mig á sínum tíma, og gerir enn, eins og þessi sonur minn sem ljóðið er um hefur líka alltaf gert:
Afagaman
Ljáðu afa ljúflingskæti
litli sólskinsvin
Bakvið tímans látalæti
ljómar eilífðin
Undir niðri ákaflega
ævintýragjarn
hýsir afi heimsins trega
hláturmilda barnMá hann afi kannski kíkja
í kankvís augu þín?
Skuggar allir undan víkja
Aftur ljósið skín
Ævintýr er allt sem lifir
Ævintýr ert þú
sjórinn, landið, loftið yfir
líf í glaðri trúUpp með fjörið, glens og gaman
Gæfan ríkti ef
allir bara syngju saman
svona glaðvær stef
Á hvítasunnu 1981
Úlfur Ragnarsson
Svo er hér mynd af sama dreng fullorðnum, með vinum sínum . Eins og sjá má er hann ennþá brosmildur og ljúfur. Myndin var tekin í dýragarði í Thailandi í sumar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
9.9.2007
Bloggfrí



Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.9.2007
Von
Fann þetta í einu af gömlu bloggunum mínum og ákvað að skella því hér inn áður en ég dríf sjálfa mig loksins í háttinn, ég er nefnilega alltaf að lofa sjálfri mér því að fara snemma að sofa:
"May the laughter that you find in your tomorrow wipe away the pain you find in your yesterdays." Anonymous
Góða nótt!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.9.2007
Innlit og gestir
Nú sé ég á teljaranum að 168 manns hafa litið við á síðunni minni í dag. Nú ætla ég aðeins að herma eftir henni Ragnheiði bloggvinkonu og biðja um eitt: Mikið lifandis skelfing þætti mér gaman ef einhverjir af þessum gestum sæju sér fært að sjá af smá tíma til að kvitta fyrir komuna í kommentum, þó ekki væri nema einn broskall, eða fýlupoki, eftir atvikum, svo ég sjái hverjir það eru sem koma hingað.
Á sama tíma vil ég þakka Ásthildi Cesar bloggvinkonu minni fyrir það hvað hún kommentar oft á færslurnar mínar og líka bloggvinkonunum Heidi og Berthu og nýju bloggvinkonu minni henni Ragnhildi.
Bloggar | Breytt 9.9.2007 kl. 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
8.9.2007
Ha, ha, ha...Ratatouille...
Þessu hefði ég nú ekki trúað fyrirfram, en ég sat í bíó áðan og horfði alveg heilluð á mynd um...hvað haldið þið...af öllum dýrum...ROTTU! Rottu sem er meistarakokkur og heillar mann alveg upp úr skónum
. Þetta er alveg frábær mynd, falleg og vel gerð. Ég myndi segja, sérstaklega vegna allrar matreiðslunnar sem fer fram í myndinni, að hún sé fullt eins mikið, eða jafnvel frekar, fyrir fullorðna eins og krakka - en til til þess að geta notið hennar má maður þó til að gleyma því í bili að rottur eru í raun meindýr sem bera með sér bakteríur og alls kyns sóðaskap - ef maður gerði það ekki er ég hrædd um að það vekti manni einungis ógleði að sjá rottu við matargerð í eldhúsi fíns veitingastaðar. En Remy, meistarakokksrottan, má þó eiga það að hann/hún gengur alltaf upp á endann, á afturlöppunum, til þess, eins og hann segir bróður sínum, að óhreinka ekki loppurnar sem hann snertir matinn með!
Ég læt fylgja hér uppskrift að franska réttinum ratatouille, en hann gegnir mikilvægu hlutverki í myndinni eins og nafn hennar ber með sér. Þessa uppskrift fann ég á netinu og skelli henni hér; því miður kann ég ekki uppskriftina eins og Remy eldaði sinn rétt og heillaði matgæðingana með, en hún leit afar girnilega út á diskunum.
Túnfisk-ratatouille
4-6 msk olía
1 laukur skorinn í báta
2 söxuð hvítlauksrif
1 eggaldin skorið í teninga
1 kúrbítur í sneiðum
100g sveppir í sneiðum
400g niðursoðnir tómatar
1 msk óreganó
salt & pipar
100g brokkolí í vænum bitum
1 msk hveiti
400g túnfiskur úr dós vatnið sigtað frá
1 lítill poki af kartöfluflögum
Hitið ofninn 190¨C. Léttsteikið lauk, hvítlauk og eggaldin í 3 msk af olíu í 5-8 mín. Bætið kúrbít og sveppum út í og látið malla í 10 mín. í viðbót. Bætið tómötum og óreganó út í. Saltið og piprið. Sjóðið á meðan brokkkálið í 3 mín. og bætið á pönnuna (ég myndi nú bara skella því beint út í, þar sem ég vil hafa það stökkt). Hristið hveitið og 2 msk. af vatni og hellið út í (ég myndi sleppa þessu hveitisulli!). Hrærið þar til þykknar. Setjið helminginn af grænmetisblöndunni í eldfast mót og dreifið túnfisknum yfir. Síðan hinn helminginn af blöndunni ofan á það og loks kartöfluflögurnar (þeim myndi ég sleppa, fyrir minn smekk). Bakið í 20 mín.
Bloggar | Breytt 10.9.2007 kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggvinir
-
Valgerður Sigurðardóttir
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Baldur Kristjánsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Brattur
-
Brynja skordal
-
Brynjar Jóhannsson
-
Calvín
-
Dunni
-
Egill Bjarnason
-
Egill Jóhannsson
-
Einar Bragi Bragason.
-
Elías Stefáns.
-
Gestur Guðjónsson
-
Gullvagninn
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Gunnlaugur B Ólafsson
-
Guðjón H Finnbogason
-
Guðmundur Helgi Helgason
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Haraldur Bjarnason
-
Heidi Strand
-
Heiða B. Heiðars
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Húmoristaflokkurinn
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingólfur
-
Isis
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Jonni
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Jón Axel Ólafsson
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Júdas
-
Júlíus Valsson
-
Karl V. Matthíasson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kolbrún Hilmars
-
Kristján G. Arngrímsson
-
Kári Harðarson
-
Linda
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Marinó G. Njálsson
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
Orgar
-
Pjetur Hafstein Lárusson
-
Ragnar Freyr Ingvarsson
-
Ragnar Geir Brynjólfsson
-
Ragnheiður
-
Ragnhildur Jónsdóttir
-
Rut Sumarliðadóttir
-
Salmann Tamimi
-
Sema Erla Serdar
-
Signý
-
Sigurður Sigurðsson
-
Steinar Immanúel Sörensson
-
Steingrímur Helgason
-
Svanfríður Guðrún Gísladóttir
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
Sveinn Ólafsson
-
SM
-
Thelma Ásdísardóttir
-
Toshiki Toma
-
Vefritid
-
Viggó H. Viggósson
-
Villi Asgeirsson
-
Yousef Ingi Tamimi
-
hreinsamviska
-
molta
-
Ágúst Hjörtur
-
Ár & síð
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Þorleifur Ágústsson
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þórdís Katla
Myndaalbúm
197 dagar til jóla
Tenglar
myndefni
- Myndirnar mínar á flikr.com flestar fyrir fjölskylduna
- Ég á YouTube
blogg
- Dagbók Ástu Sólveigar Bloggað frá París
- Ingi, Allý og börn
- Welcome to my mind
- Uppi í háu húsi
- Jóhanna Kristjónsdóttir
- Vita Facilis
- Móa í Medford
- Tómas Atli Ponzi
- Waiter Rant
- Inspiratations and Creative Thoughts
- Castles in the sand
- hnakkus
- Jólin Ýmislegt dóladót
- Saumakistan Handavinna af ýmsu tagi
- Baldur McQueen
ýmislegt
- Global Voices Online
- Reporters Without Borders
- Amnesty
- Ísland Panorama
- Bergmál
- Le Droit Humain
- Explore Crete
- Félag CP á Íslandi
- OKUR
- Guðspekifélag Íslands
- Orkusetur
- Friendship Tapestry
- The Gnostic Gospels
- The Gnosis Archives
- Madame Blavatsky
- Tolle
- BC Recordings
- KIVA
- Koptíska kirkjan í Egyptalandi
- The Teachings of Jesus Christ
- Wikibók Völu
- Alþjóða Sam-Frímúrarareglan á Íslandi
- Alþjóðahús
- LAUF
- banksy
- Greinasafn Sigurfreys
- Halldór grín
Mið-Austurlönd
Stjórnmál
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar