Leita í fréttum mbl.is

Blindandi markmið?

polarbearHvað í skrattanum á Mogginn við með "blindandi markmið"? Þýðing á hverju er það nú hjá þeim? hugsaði ég fyrst þegar ég las þessa frétt og í dágóða stund á eftir velti ég þessu stíft fyrir mér...ég verð að reyna lesa greinina aftur og vandlegar til að komast að þessu (svo sem ekert nýtt fyrir mér) hugsaði ég svo og byrjaði á henni aftur: Bindandi markmið...ha, ha, ha, ég held ég ætti bara að fara snemma í háttinn svona einu sinni...


mbl.is Bindandi markmið samþykkt?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölmiðlarnir bera líka ábyrgð

Grein eftir Lisbeth Knudsen, aðalritsjóra Berlingske Tidende, sem birtist á bloggsíðu hennar sunnudaginn 24. febrúar, 2008.

Brunnir bílar. Logandi ruslagámar. Órói á götum annars friðsælla bæja á landsbyggðinni. Nú einnig brunnar sólbaðsstofur. Það hefur verið erfitt að þekkja okkar litlu, friðsælu Danmörku síðustu vikurnar, þegar allir eru venjulega í vetrarfrí. Að hópar hörðustu óeirðaseggjanna skuli samanstanda af unglingum á aldrinum 14-17 ára gerir ekki auðveldara að skilja hvað er að gerast í kringum okkur. Stjórnmálamennirnir ræða aðgerðaáætlanir um mannafla til að hafa stjórn á unga fólkinu. Lögreglan talar um hvernig fjölmiðlar miðla fréttum, og þau áhrif sem umfjöllun þeirra hefur á það að atburðirnir smitast á milli og dreifa úr sér.

Sama hvað manni finnst um það hvort það sé viðeigandi að lögreglan beini því til sjónvarpsstöðvanna að skrúfa niður í "fyrst með fréttirnar - dramatíkinni", þá er nauðsynlegt að það komi fram að það getur verið fjölmiðlaumfjöllunin sjálf og áhrifin af henni sem gefur þeirri slæmu hugmynd að kveikja í bílum byr undir vængi til að breiðast út til allra krummaskuða á landinu. Ef maður á ekki möguleika á að verða ein af topp-stjörnunum í X-Factor eða einhverjum öðrum  áhugamaður-verður-stjarna-þætti má reyna að fanga athyglina með öðru móti. 

Eins og fréttaritari Berlingske Tidende í París, Bjørn Willum skrifaði nýlega í blaðið, þá fá ungu brunavargarnir ekki hugmyndina frá heimabæ fjölskyldunnar í Túnis eða á tyrknesku hásléttunni. Þeir hafa nefnilega alist upp sem hluti af hinum vestræna heimi. Hugmyndin kemur úr vestrænum tölvuleikjum á netinu, þar sem unga fólkið nú, í staðinn fyrir "game-score", skiptist á sms-um um fjölda "skoraðra" bíla, gámabruna og fréttaskota. Árið 2005 tók ég þátt í hinni stóru árlegu, alþjóðlegu NewsXcange ráðstefnu um rafræna fréttamiðlun.

Það var rétt eftir óeirðirnar miklu í frönsku úthverfunum. Dauði tveggja ungmenna á flótta undan lögreglu kom af stað margra vikna öldu skemmdaverka og olli 10.000 bílaíkveikjum. Fjölmiðlaumfjöllunin um atburðina gekk allar nætur og morgna í stóru fréttamiðlunum með dramatískum upptalningum á nýjum íkveikjum. Sérfræðingur eftir sérfræðing var dreginn inn í sjónvarpsstúdíóin til að útskýra, hvað væri að gerast. Á ráðstefnunni var komið á umræðu milli eins fulltrúa frá CNN og tveggja fulltrúa fréttamanna franskra sjónvarpsstöðva.

Á ákveðnum tímapunkti á meðan á þessum miklu óeirðum stóð ákváðu frönsku sjónvarpsstöðvarnar að sýna ekki beinar fréttir frá atburðunum kvöld eftir kvöld, en birta frekar áreiðanlegar tölur um atburði næturinnar næsta morgun. Þær fundu nefnilega út að brunarnir og skemmdarverkin stóðu í nánu samhengi við gífurlegan fjölda sjónvarpsbíla á svæðinu. Það var ekki kveikt í fyrr en bílarnir voru komnir á staðinn og gátu tekið myndir. CNN og BBC World héldu áfram sínum nákvæmu beinu útsendinum frá atburðunum.

Nú færðist fjör í umræðurnar. Ber sjónvarpsstöðvunum ekki skylda til að flytja áhorfendum fréttir af atburðum, sama hversu stórt hlutverk þeirra sjálfra verður við það, eða eiga þeir að axla pólitíska ábyrgð með þeirri sjálfsgagnrýni sem það getur leitt af sér? Flest okkar tóku þá afstöðu á þessum tíma að það væri ekki hlutverk fjölmiðla að taka tillit til stjórnmála. Að það væri hlutverk okkar að flytja fréttir af því sem gerist, lýsa afleiðingunum og greina sjónarhornin.

En þegar nú það að komast í fjölmiðlana er takmark sumra brennuvarganna, og þegar það er töff að skiptast á upplýsingum um það á samskiptasíðum internetsins, getum við þá firrt okkur ábyrgð? Það getum við ekki lengur. Þess vegna verða fjölmiðlarnir - og ekki hvað síst sjónvarpsstöðvarnar - að taka þátt í umræðunni um það þegar fréttafjölmiðlarnir skapa sjálfir fréttirnar og miðla síðan þeim fréttum sem þeir hafa sjálfir skapað. 

Þýð. G.B.Ú. 

Á bloggsíðu Lisbeth Knudsen má lesa fjölda (50+) athugasemda við greinina, þó auðvitað allar á dönsku. 


Mjá!

 bilde

Það er hollt að eiga kött Heart (tengill)


Danskt samsæri - !

Jótlandspósturinn birti í grein 18. febrúar hluta úr dreifibréfi sem Hizb ut-Tahrir sendi út í tilefni atburða síðustu daga, þar sem kemur fram að þeir telji að ætlun Dana sé að kúga múslima:

"Málið er það að þeir ætla sér - annars vegar - aðeins að kúga múslima með hræðsluáróðri, ógnarstjórn og einræði og þvinga þá til að viðurkenna hina fölsku menningu Vesturlanda, þar með talið veraldarhyggjuna, lýðræðið og "tjáningarfrelsið", og að hrella múslima í þeim tilgangi að afvegaleiða þá frá Íslam, Kóraninum og virðingunni fyrir Múhameð (saaws) og að fylgja Sharialögunum. Þetta síðast nefnda er einmitt það sem danska stjórnin lítur á sem hina stóru hindrun í veginum fyrir því að hin pólitíska aðlögunarstefna gangi í gegn."

Þvílíkar þversagnir sem hér ber fyrir augu! Þetta heitir á hundamáli að bíta í hendina sem gefur þér.

Ég segi nú bara eins og Villy Søvndal formaður Sósíalíska Þjóðarflokksins (SF) sagði í bloggfærslu sinni 19. febrúar: "Ef þeir eru svo heimskir að vilja sjá kalífadæmi og sharíalögum komið á, þá eru þeir einfaldlega í vitlausu landi. Þeir hafa ekkert að gera í Danmörku og þeir munu ekki öðlast það sem þeir berjast fyrir".

Þetta segir Villy svo í niðurlagi bloggfærslu sinnar 22. febrúar:

"Í mínum augum er það alveg afgerandi að núna er meiri gróska í kringum spurninguna en sést hefur lengi:  Við erum í fullri alvöru komin á þann stað að skilin milli fólks [hafa skýrst, að þeir] sem vilja lýðræði, rétt til frelsis og friðsamt líf í Danmörku verða að taka afstöðu á móti þeim sem vilja trúarlegt einveldi án réttinda til frelsis fyrir einstaklingana.

Og að auki höfum við fengið það að athyglin hefur beinst að því að ekki er hægt að leyfa að trúarhiti (det stærkt religiøse) skilgreini afstöðu meirihluta múslima til trúar sinnar eða danska samfélagsins eða danskra stjórnmála.

Þetta tvennt er mikilsverður árangur af umræðunni þessa viku. Það birtir.

Villy - " 

Til umhugsunar:

Ég vona að Danir geri sér ljósa grein fyrir því að ef að finnst flötur á því í lögum að leysa Hizb ut-Tahrir upp, þá er fylgir því sú hætta  - því þessir menn gefast ekkert upp og þeir eru ekkert að fara (til þess hafa þeir það of gott í lille Danmark!) - að samtökin gerist neðanjarðarhreyfing í Danmörku og fari að stunda "moldvörpuhernað" þar - þá eru þeir fyrst orðnir hættulegir í alvörunni, - sem síðan myndi kalla á að leyniþjónusta í landinu yrði efld - vilja menn það? Er þá ekki skárra að leyfa þeim að skottast opinberlega í mótmælagöngum og að þeir séu allir undir eftirliti á einum stað? Hmm...


Bloggfærslur 25. febrúar 2008

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.