Leita í fréttum mbl.is

Lok, lok og læs

Fyrir skömmu varð hræðilegt banaslys þegar ekið var á lítinn dreng við mikla umferðargötu. Það vita allir sem fylgjast með fréttum hvaða slys ég á við - ætla ekki að vera með málalengingar um það.

Nú veit ég ekkert um nánari kringumstæður í þessu ákveðna slysi, en það rifjaðist upp fyrir mér, við að heyra um þetta, að þegar ég bjó í Bretlandi fyrir mörgum árum síðan birtust í sjónvarpinu (BBC og ITV) auglýsingar (man ekki frá hvaða samtökum) sem var beint til fjölskyldna ungra barna sem bjuggum við miklar umferðargötur. Þessar auglýsingar brýndu fyrir fólki að gæta þess að hafa útidyr ALLTAF lokaðar og læstar, svo ekki væri hætta á að börnin færu út án þess að foreldrarnir (eða aðrir sem gættu þeirra) yrðu þess vör.

Ég veit að þetta er mjög viðkvæmt mál, en kannski væri í lagi að birta svipaðar auglýsingar í fjölmiðlum hér á landi? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Þetta er hræðilega sorglegt.Kveðja María

María Anna P Kristjánsdóttir, 6.12.2007 kl. 08:31

2 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

En hvað finnst ykkur um svona auglýsingar - ég meina kannski ekki alveg núna strax, en í framtíðinni?

Greta Björg Úlfsdóttir, 6.12.2007 kl. 10:10

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já mér finnst það af hinu góða.  Í leikskólum er fólki uppálagt að loka dyrunum eftir sér, svo börnin fari ekki eftirlitslaus út.  Það má alveg víkka það hugtak út, inn á heimilin.  Sjálfsagt mál.  Og tala nú ekki um, ef það getur komið í veg fyrir svona sorgaratburð. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.12.2007 kl. 13:35

4 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ég þakka ykkur fyrir að segja álit ykkar. Góð hugmynd að gera leiknar stuttmyndir um hinar ýmsu hættur sem að börnum okkar steðja í umhverfinu.

Spurning um hver ætti að standa fyrir því að gera þær - var ekki Herdís Storgård hjá Rauða Krossinum þegar hún var svo ötul að koma í sjónvarp og vara fólk við einu og öðru í þessu sambandi? Held að hún sé hætt þar - hver ætli gegni þeirri stöðu sem hún var í núna? Veit einhver þetta?

Greta Björg Úlfsdóttir, 6.12.2007 kl. 14:39

5 identicon

Þetta slys er svo mikill harmleikur.Og allt í kringum þetta mál er svo hræðilegt.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 17:17

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Það er það Birna, bæði fyrir aðstandendur barnsins og þann sem ók og hans aðstandendur. Forvarnir eru brýnar bæði hvað varðar að umferðarmenningu og að fyrirbyggja að börn verði fórnarlömb slysa.

Bestu leiðina til að bæta umferðarmenninguna tel ég vera að höfða til siðferðiskenndar allra bílstjóra og að þeir viðhafi það ökulag sem þeir myndu vilja að aðrir hefðu gagnvart sínum ættingjum, í þeim götum sem þeir búa í og á þeim vegum sem þeir aka.

Þar að auki þarf svo auðvitað að gæta að umhverfisþáttum, eins og skipulagi gatnakerfis, merkingar og hraðahindranir o.s.frv.

Greta Björg Úlfsdóttir, 6.12.2007 kl. 19:04

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ja það er gott mál, þessu má beina til umferðarstofu. Þeir eru með flottar auglýsingar um umferð og hættur þar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.12.2007 kl. 19:36

8 Smámynd: Blómið

Þetta er sorglegt mál fyrir alla sem að því koma.  Mjög góð hugmynd sem hér hefur komið fram að gera einhverjar góðar stuttmyndir.  Mætti vel vera gert þannig að það væri gert í góðu samstarfi við barnastarf bæði hjá RÚV og Stöð 2.   Efast ekki um að það væri vel tekið á móti góðum hugmyndum á þeim stöðum.   Mætti kannski reyna að tala við Sveppa og fá hann til að koma góðum ráðum til barnana

Blómið, 6.12.2007 kl. 22:34

9 Smámynd: Ingólfur

Það er nú samt spurning hvort það verði ekki allt brjálað ef svona auglýsing er birt.

Mér dettur nú bara í hug auglýsingin frá umferðarstofu þar sem barn var að leika sér á svölum án handriðs.

Ef ég man rétt að þá var boðskapurinn að sýna fólki hvað það var vítavert að hafa börn laus í bílum, en það urðu allir brjálæðir því barn var sýnt í hættulegum aðstæðum. 

Ingólfur, 6.12.2007 kl. 23:19

10 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Hm, Ingólfur, eigum við nokkuð að vera svartsýn (mála Skrattann á vegginn!), þó eitthvað hafi gerst einu sinni er ekki þar með sagt að það endurtaki sig endilega! Eða hvað - er ekki óhætt að láta reyna á "allt er þegar þrennt er" ?

Greta Björg Úlfsdóttir, 7.12.2007 kl. 00:06

11 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Takk sömuleiðis, Valgeir minn. 

Greta Björg Úlfsdóttir, 7.12.2007 kl. 09:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir