15.12.2007
Prestur í hlutverki leikstjóra
Það rifjaðist upp fyrir mér í kvöld, að einu tilvikin sem ég man eftir um að séra Gísli, sóknarpresturinn á Klaustri, hafi haft hönd í bagga með starfi Kristjönu, kennslukonunnar okkar, voru þegar hann aðstoðaði hana við leikstjórn skólaleikritanna. Það er samt ekki alveg rétt, því hann var líka prófdómari í lestrarprófum hjá okkur.
Á vorin, þegar skólanum lauk, voru haldnar sýningar á verkum nemenda yfir veturinn og skemmtun í sambandi við hana. Þar voru lesin upp ljóð og leikin leikrit. Þegar við höfðum lært hlutverkin okkar sómasamlega, og sæmilegu rennsli var náð, mætti presturinn og gagnrýndi árangurinn. Það var okkar generalprufa.
Ég naut þess að leika Grasa-Guddu. Gleraugunum fékk ég að fela á bak við skýluklút. Prestinum líkaði bærilega túlkun mín. Ég vakti mikla lukku í sveitinni og litlu læknisdótturinni var óspart hælt og talin upprennandi stjarna og prímadonna af bændum og búandliði. Sukksess, sem sagt.
Árið eftir syrti þó heldur í álinn. Þá var ég valin til að leika ljúfa og blíða álfkonu. Þetta hlutverk hæfði mér engan vegin, enda vakti úthlutun þess til mín mér litla kæti. Ég neyddist þó til að taka það að mér, vegna þess að engar af hinum stelpunum voru með eins sítt hár og ég. Þegar búið var að leysa úr fléttunum náði það niður á mitt bak. Það leyndist líka ljón á vegi mínum. Til þess að falla inn í hlutverkið neyddist ég að taka niður gleraugun, áður en ég steig á svið, því þau þóttu ekki hæfa fagurri ásjónu álfkonu.
Séra Gísli, sem vorið áður hafði haft lítið út á túlkun mína á Grasa-Guddu að setja, var ekki hrifinn af hinni þungbúnu álfkonu sem drattaðist inn á sviðið. "Greta Björg, ljúf og blíð álfkona á að vera brosleit og léttstíg, en ekki þramma eins og fjósakona að koma frá mjöltum".
Einhvern veginn klóraði ég mig í gegnum sýninguna, með slegið hár og gullspöng um enni, gleraugnalaus og þreifandi mig inn á sviðið. Sem betur fer þurfti ég ekki að hreyfa mig mikið eftir að inn var komið og ekki að segja nema þrjár setningar. Svo féll tjaldið - að vísu var ekki um tjald að ræða í samkomuhúsinu Kirkjuhvoli, sem þjónaði sem skólahús þeirra 9-11 barna sem í skólann gengu. Ég hafði unnið annað leiklistarafrek, þó í þokumóðu væri.
- - -
Þegar ég flutti til Reykjavíkur fékk ég að leika vitring í jólaleikriti. Litlum sögum fer af frammistöðu minni, enda aðalleikkonan komin í aukahlutverk og man ekki einu sinni hver leikstjórinn var.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Menntun og skóli, Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 15:37 | Facebook
Bloggvinir
- Valgerður Sigurðardóttir
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Bertha Sigmundsdóttir
- Birgitta Jónsdóttir
- Brattur
- Brynja skordal
- Brynjar Jóhannsson
- Calvín
- Dunni
- Egill Bjarnason
- Egill Jóhannsson
- Einar Bragi Bragason.
- Elías Stefáns.
- Gestur Guðjónsson
- Gullvagninn
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðjón H Finnbogason
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Haraldur Bjarnason
- Heidi Strand
- Heiða B. Heiðars
- Helgi Jóhann Hauksson
- Húmoristaflokkurinn
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur
- Isis
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jonni
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Jón Axel Ólafsson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Júdas
- Júlíus Valsson
- Karl V. Matthíasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kolbrún Hilmars
- Kristján G. Arngrímsson
- Kári Harðarson
- Linda
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Orgar
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Ragnar Freyr Ingvarsson
- Ragnar Geir Brynjólfsson
- Ragnheiður
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Rut Sumarliðadóttir
- Salmann Tamimi
- Sema Erla Serdar
- Signý
- Sigurður Sigurðsson
- Steinar Immanúel Sörensson
- Steingrímur Helgason
- Svanfríður Guðrún Gísladóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Ólafsson
- SM
- Thelma Ásdísardóttir
- Toshiki Toma
- Vefritid
- Viggó H. Viggósson
- Villi Asgeirsson
- Yousef Ingi Tamimi
- hreinsamviska
- molta
- Ágúst Hjörtur
- Ár & síð
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Þorleifur Ágústsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þórdís Katla
Myndaalbúm
39 dagar til jóla
Tenglar
myndefni
- Myndirnar mínar á flikr.com flestar fyrir fjölskylduna
- Ég á YouTube
blogg
- Dagbók Ástu Sólveigar Bloggað frá París
- Ingi, Allý og börn
- Welcome to my mind
- Uppi í háu húsi
- Jóhanna Kristjónsdóttir
- Vita Facilis
- Móa í Medford
- Tómas Atli Ponzi
- Waiter Rant
- Inspiratations and Creative Thoughts
- Castles in the sand
- hnakkus
- Jólin Ýmislegt dóladót
- Saumakistan Handavinna af ýmsu tagi
- Baldur McQueen
ýmislegt
- Global Voices Online
- Reporters Without Borders
- Amnesty
- Ísland Panorama
- Bergmál
- Le Droit Humain
- Explore Crete
- Félag CP á Íslandi
- OKUR
- Guðspekifélag Íslands
- Orkusetur
- Friendship Tapestry
- The Gnostic Gospels
- The Gnosis Archives
- Madame Blavatsky
- Tolle
- BC Recordings
- KIVA
- Koptíska kirkjan í Egyptalandi
- The Teachings of Jesus Christ
- Wikibók Völu
- Alþjóða Sam-Frímúrarareglan á Íslandi
- Alþjóðahús
- LAUF
- banksy
- Greinasafn Sigurfreys
- Halldór grín
Mið-Austurlönd
Stjórnmál
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kæri Valgeir, ég vona að þér batni fljótt og að þú munir eiga gleðileg jól.
Bestu kveðjur til þín.
Greta Björg Úlfsdóttir, 15.12.2007 kl. 10:36
Elsku Gréta mín, þetta hefru verið erfitt hjá litlu stúlkunni. Og svo hefur öfundinn líka haft sitt að segja, augngotur og framkoma sem maður getur ímyndað sér.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.12.2007 kl. 13:32
Nei, veistu það Ásthildur mín, ég varð aldrei vör við neina öfund. Kannski var það ég sem var svona glöð í hjarta, eða þá það að Skaftfellingar eru manna rólegastir í tíðinni á landinu.
Greta Björg Úlfsdóttir, 15.12.2007 kl. 14:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.