23.2.2008
Léttlestir
Eitt þeirra atriða, auk annarra umhverfivænna, sem ég sé sem stóran kost við það að fá léttlestarkerfi (metro) hér í Reykjavík, fram yfir að nota strætó, er sá að þá myndi maður sleppa við að norpa skjálfandi á biðstöðvum og bíða eftir vagni. Maður myndi fara á neðanjarðarstoppistöð, jafnvel akandi á bílnum sínum og leggja honum yfir daginn við stöðina, eins og margir gera í úthverfum erlendis, og bíða svo inni í hlýju og notalegheitum!
Að eiga kost á þessu tel ég að yrði, miðað við það veðurfar sem við búum við hér á landi, mjög hvetjandi þáttur í átt til þess að menn myndu nýta sér almenningssamgöngur meira en gert er í dag, auk þess ávinnings að það myndi gera fólki mögulegt að spara útgjöld til bensínkaupa, og jafnvel gera það ónauðsynlegt að hafa marga bíla á einu heimili, sem hlýtur að leiða til umtalsverðs sparnaðar. Með þessu móti sleppur fólk líka við stressið í umferðinni og leit að bílastæðum, sér í lagi í miðborginni, sem gæti í framhaldinu leitt til afslappaðra þjóðfélags . Ekki veitir nú af.
Miðað við hvað við framleiðum mikið af ódýru rafmagni hér á Íslandi er ég sannfærð um að þessi framkvæmd er mjög hagkvæm lausn í samgöngumálum okkar borgarbúa til framtíðar litið og þegar heildarmyndin er skoðuð, miðað við það sem nú er, þegar umferðarþungi og útblástur bifreiða er orðið vandamál í borginni. Að grafa stokka fyrir lestarkerfi undir borgina ætti heldur ekki að vera verkefni sem væri okkur ofviða, fyrst menn hafa látið sér detta í hug í fullri alvöru að grafa göng út í Vestmannaeyjar.
Gott mál!
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Ferðalög, Lífstíll | Breytt s.d. kl. 14:58 | Facebook
Bloggvinir
- Valgerður Sigurðardóttir
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Bertha Sigmundsdóttir
- Birgitta Jónsdóttir
- Brattur
- Brynja skordal
- Brynjar Jóhannsson
- Calvín
- Dunni
- Egill Bjarnason
- Egill Jóhannsson
- Einar Bragi Bragason.
- Elías Stefáns.
- Gestur Guðjónsson
- Gullvagninn
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðjón H Finnbogason
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Haraldur Bjarnason
- Heidi Strand
- Heiða B. Heiðars
- Helgi Jóhann Hauksson
- Húmoristaflokkurinn
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur
- Isis
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jonni
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Jón Axel Ólafsson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Júdas
- Júlíus Valsson
- Karl V. Matthíasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kolbrún Hilmars
- Kristján G. Arngrímsson
- Kári Harðarson
- Linda
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Orgar
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Ragnar Freyr Ingvarsson
- Ragnar Geir Brynjólfsson
- Ragnheiður
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Rut Sumarliðadóttir
- Salmann Tamimi
- Sema Erla Serdar
- Signý
- Sigurður Sigurðsson
- Steinar Immanúel Sörensson
- Steingrímur Helgason
- Svanfríður Guðrún Gísladóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Ólafsson
- SM
- Thelma Ásdísardóttir
- Toshiki Toma
- Vefritid
- Viggó H. Viggósson
- Villi Asgeirsson
- Yousef Ingi Tamimi
- hreinsamviska
- molta
- Ágúst Hjörtur
- Ár & síð
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Þorleifur Ágústsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þórdís Katla
Myndaalbúm
39 dagar til jóla
Tenglar
myndefni
- Myndirnar mínar á flikr.com flestar fyrir fjölskylduna
- Ég á YouTube
blogg
- Dagbók Ástu Sólveigar Bloggað frá París
- Ingi, Allý og börn
- Welcome to my mind
- Uppi í háu húsi
- Jóhanna Kristjónsdóttir
- Vita Facilis
- Móa í Medford
- Tómas Atli Ponzi
- Waiter Rant
- Inspiratations and Creative Thoughts
- Castles in the sand
- hnakkus
- Jólin Ýmislegt dóladót
- Saumakistan Handavinna af ýmsu tagi
- Baldur McQueen
ýmislegt
- Global Voices Online
- Reporters Without Borders
- Amnesty
- Ísland Panorama
- Bergmál
- Le Droit Humain
- Explore Crete
- Félag CP á Íslandi
- OKUR
- Guðspekifélag Íslands
- Orkusetur
- Friendship Tapestry
- The Gnostic Gospels
- The Gnosis Archives
- Madame Blavatsky
- Tolle
- BC Recordings
- KIVA
- Koptíska kirkjan í Egyptalandi
- The Teachings of Jesus Christ
- Wikibók Völu
- Alþjóða Sam-Frímúrarareglan á Íslandi
- Alþjóðahús
- LAUF
- banksy
- Greinasafn Sigurfreys
- Halldór grín
Mið-Austurlönd
Stjórnmál
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sammála þér, held að þessi útreikningur á kostnaði við lest til Keflavíkur á sýnum tíma, hafi verið svona owerkill útreikningar til að skjóta þetta í kaf.
Þorsteinn Valur Baldvinsson, 23.2.2008 kl. 21:17
Eins þarf líka að taka með í þann reikning að það hefur margt breyst á ekki lengri tíma en þessum sex árum síðan sú kostnaðaráætlun var gerð.
Greta Björg Úlfsdóttir, 23.2.2008 kl. 21:22
Já, ég hugsa að þetta sé framtíðin og hljóti að eiga eftir að verða að veruleika.
Sömuleiðis Valgeir.
Greta Björg Úlfsdóttir, 23.2.2008 kl. 22:05
Já, lýst vel á þessa hugmynd!
Sigríður Hafsteinsdóttir, 24.2.2008 kl. 01:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.