25.10.2008
Góð heilsa er gulli betri
Ég bið ykkur að minnast þess á þessum síðustu tímum að góð heilsa er gulli betri.
Því þó á móti blási, fólk missi vinnuna og við mörgum blasi jafnvel gjaldþrot, þá er það alls ekki eins hræðilegt og ætla mætti ef fólk á ennþá góða heilsu, kjark og þor til að takast á við erfiðleikana, að maður tali nú ekki um ef það býr svo vel að eiga líka í farteskinu góða menntun og hugkvæmni,slíkt verður ekki frá neinum tekið, þó eignir fari fyrir lítið.
Þess þá heldur ef fólk á fjölskyldu, maka og börn, allt það sem gerir lífið ennþá frekar þess virði að lifa því, þrauka og berjast.
Gleymið ykkur ekki í reiði og ásökunum, áhyggjum eða barlómi. Látið ekki lýðskrumara sem sjá skrattakolla í hverju horni telja úr ykkur kjarkinn.
Berjist fyrir bættu þjóðfélagi, ekki með flumbrugangi og hávaða, heldur takið á málum af einurð og hófsemi. Það þýðir þó ekki að ráðamenn skuli ekki sæta ábyrgð. Það mun koma að skuldadögum.
Jesú sagði:
"Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufull um líf yðar, hvað þér eigið að eta eða drekka né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast. Er lífið ekki meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin? Lítið til fugla himinsins. Hvorki sá þeir né uppskera né safna í hlöður og faðir yðar himneskur fæðir þá. Eruð þér ekki miklu fremri þeim? Og hver yðar getur með áhyggjum aukið einni spönn við aldur sinn? Og hví eruð þér áhyggjufull um klæðnað? Hyggið að liljum vallarins, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna. En ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra. Fyrst Guð skrýðir svo gras vallarins sem í dag stendur en á morgun verður í ofn kastað, skyldi hann þá ekki miklu fremur klæða yður, þér trúlítil!
Segið því ekki áhyggjufull: Hvað eigum vér að eta? Hvað eigum vér að drekka? Hverju eigum vér að klæðast? Allt þetta stunda heiðingjarnir og yðar himneski faðir veit að þér þarfnist alls þessa. En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki. Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning."
Mattheus 6, 25-34.
Meginflokkur: Vinir og fjölskylda | Aukaflokkar: Bloggar, Stjórnmál og samfélag, Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 23:48 | Facebook
Bloggvinir
- Valgerður Sigurðardóttir
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Bertha Sigmundsdóttir
- Birgitta Jónsdóttir
- Brattur
- Brynja skordal
- Brynjar Jóhannsson
- Calvín
- Dunni
- Egill Bjarnason
- Egill Jóhannsson
- Einar Bragi Bragason.
- Elías Stefáns.
- Gestur Guðjónsson
- Gullvagninn
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðjón H Finnbogason
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Haraldur Bjarnason
- Heidi Strand
- Heiða B. Heiðars
- Helgi Jóhann Hauksson
- Húmoristaflokkurinn
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur
- Isis
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jonni
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Jón Axel Ólafsson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Júdas
- Júlíus Valsson
- Karl V. Matthíasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kolbrún Hilmars
- Kristján G. Arngrímsson
- Kári Harðarson
- Linda
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Orgar
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Ragnar Freyr Ingvarsson
- Ragnar Geir Brynjólfsson
- Ragnheiður
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Rut Sumarliðadóttir
- Salmann Tamimi
- Sema Erla Serdar
- Signý
- Sigurður Sigurðsson
- Steinar Immanúel Sörensson
- Steingrímur Helgason
- Svanfríður Guðrún Gísladóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Ólafsson
- SM
- Thelma Ásdísardóttir
- Toshiki Toma
- Vefritid
- Viggó H. Viggósson
- Villi Asgeirsson
- Yousef Ingi Tamimi
- hreinsamviska
- molta
- Ágúst Hjörtur
- Ár & síð
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Þorleifur Ágústsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þórdís Katla
Myndaalbúm
2 dagar til jóla
Tenglar
myndefni
- Myndirnar mínar á flikr.com flestar fyrir fjölskylduna
- Ég á YouTube
blogg
- Dagbók Ástu Sólveigar Bloggað frá París
- Ingi, Allý og börn
- Welcome to my mind
- Uppi í háu húsi
- Jóhanna Kristjónsdóttir
- Vita Facilis
- Móa í Medford
- Tómas Atli Ponzi
- Waiter Rant
- Inspiratations and Creative Thoughts
- Castles in the sand
- hnakkus
- Jólin Ýmislegt dóladót
- Saumakistan Handavinna af ýmsu tagi
- Baldur McQueen
ýmislegt
- Global Voices Online
- Reporters Without Borders
- Amnesty
- Ísland Panorama
- Bergmál
- Le Droit Humain
- Explore Crete
- Félag CP á Íslandi
- OKUR
- Guðspekifélag Íslands
- Orkusetur
- Friendship Tapestry
- The Gnostic Gospels
- The Gnosis Archives
- Madame Blavatsky
- Tolle
- BC Recordings
- KIVA
- Koptíska kirkjan í Egyptalandi
- The Teachings of Jesus Christ
- Wikibók Völu
- Alþjóða Sam-Frímúrarareglan á Íslandi
- Alþjóðahús
- LAUF
- banksy
- Greinasafn Sigurfreys
- Halldór grín
Mið-Austurlönd
Stjórnmál
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 121481
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gréta mín, ég tæki þetta til mín ef ég væri einu af liljum vallarins, en það er ég ekki. Ég er öryrki á Íslandi.
Rut Sumarliðadóttir, 25.10.2008 kl. 20:54
Ég er líka öryrki, og þar að auki öreigi, á Íslandi. Þar að auki er ég ein af liljum vallarins, sem mér finnst mun skemmtilegri nafnbót en hinar fyrri.
Ég hef ekki áhyggjur þar sem ég á ekki neitt. Ég hef alltaf verið fátæk og hræðist ekki að verða aðeins fátækari, þó ég ætli rétt að vona að lífeyrisgreiðslurnar skerðist ekki.
Sá sem hefur horft á raunverulega fátækt (ég bjó í Afríku í 3 ár) hræðist ekki þó harðni á dalnum hér heima og þó ekki takist að fá jólatré um næstu jól. Sá reyndar ekki betur en að búið væri að stilla út fullt af jóladóti í Blómaval þegar ég kom þar síðast.
Sonur minn sem er vel menntaður og í góðri vinnu sagði við mig í dag: "Mamma, þetta er bara gott fyrir sjálfstraustið mitt. Ég spurði nefnilega sjálfan mig stundum að því hvort ég væri svona vitlaus, fyrst mér fannst ég ekki hafa efni á að kaupa allt mögulegt þrátt fyrir góð laun. Í dag sé ég að það var ekki ég sem var vitlaus." Hann keypti sér þó sportbíl á árinu, sem hann var kominn á þá skoðun að selja fyrir hrunið, gleymdi að spyrja hann hvernig það gengi, kannski selur hann bílinn úr landi, hver veit.
Greta Björg Úlfsdóttir, 25.10.2008 kl. 21:56
Þessi orð þín og Mattheusar eru umhugsnar virði. Svo sannarlega.
Reiði fólks eru eðliegl viðbrögð við ástandinu. En það er mikilvægt að festa sig ekki í reiðinni. Reiður maður er heimskur maður var einhverstaðar skrifað og það er sannleikskorn í því. Með æðruleysi tekst okkur örugglega að fóta okkur aftur finna það besta í lífinu miðað við aðstæður, Eftir það liggur leiðin bara upp á við.
Dunni, 26.10.2008 kl. 08:55
Þörf áminning, maður er aldrei of oft minntur á að peningar eru ekki lífið og lífið ekki peningar. Hér á Seychelles er maður bara kátur ef það er til ostur í búðinni ég tala nú ekki um mjólk, annað en þurrmjólk, svo sýnin á heildarmyndina er alltaf jákvæð.
Þórdís Katla, 26.10.2008 kl. 20:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.