Leita í fréttum mbl.is

Var þetta það EINA sem gerðist á Austurvelli í dag?

monkey-with-banana.jpgAlveg mátti reikna með þeim vinnubrögðum hinna háðu fjölmiðla á Íslandi sem þessi frétt ber vitni um!

Þó svo maður hingað til haldið að þeir kynnu einfaldlega ekki að telja, þá er nú komið í ljósað þeir eru sjónskertir, með rörsýn, og illa heyrnarskertir líka, fyrst þeir heyrðu ekkert af þeim þrusugóðu ræðum sem fluttar voru og sáu ekki allan þann fjölda friðsamra borgara sem mótmælti líka.

Nei, aðeins lítill hópur óróaseggja fær umfjöllun.

Mér blöskrar.

Ekki aðgerðir unga fólksins, sem eru vel skiljanlegar, heldur sjón- og heyrnarleysi fjölmiðlanna.

En hvers er að vænta í ríki þar sem allt er falt fyrir peninga?

Ísland er bananalýðveldi, það má öllum vera augljóst sem mættu á fundinn.

Það er stöðugt reynt að gera lítið úr almenningi þessa lands, hvað sem öllu talinu um samstöðu líður.


mbl.is Eggjum kastað í Alþingishúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Sammála. Það þarf kannski að fara að beina reiðinni að fjölmiðlum líka. Annars birti Morgunblaðið ræðuna hans Einars Más í dag. Ljós í myrkrinu!

María Kristjánsdóttir, 8.11.2008 kl. 21:51

2 Smámynd: Bergur Thorberg

Þú hittir naglann á höfuðið.

Bergur Thorberg, 8.11.2008 kl. 21:58

3 Smámynd: Baldvin Mar Smárason

Hvað með að vera reitt út í þá örfáu vitleysinga sem voru með skrílslæti og tókst með sínum einstöku hæfileikum, að draga alla athygli frá mótmælunum?

Ef þetta "lið" fær að vaða uppi, þá geta ég bara sagt eitt... "hjálpi okkur"

Það er mjög stutt í ofbeldi og veruleg skemmdarverk.

Það er ekki stjórnmálamönnum að kenna, heldur þeim sem lamdi og skemmdi.

Þetta fólk sem er að kasta eggjum í ráðhúsið og lemja að lögreglunni. Eru þeir sömu og mótmæla stríðsreksti bandaríkjana með skiltum sem á stendur "Make love not war", "Boming for peace is like fucking for virginity" osf.

Ég myndi kalla þá einfalda hræsnara.

Þetta eru Anarkistar og aðrir slíkir minnihlutahópar.

Flestir þarna voru í friðsömum og ópólitískum mótmælum, en þeir verða að átta sig á því að svona óeyrðaseggir skemma fyrir fjöldanum.

Finnst skammarlegt hvað það er margir sem eru að réttlæta hegðun þeirra.

Það var verið að rífa niður þjóðfánan af flagga bónus fánanum í staðin.

Þjóðþing okkar íslendinga var grítt af einhverjum fámennum skríl og þetta finnst mér vera virðingarleysi, sem er enganvegin hægt að réttlæta.

Skammir vikunar fá þessir ofbeldisseggir og þeir sem reyna að réttlæta gjörðir þeirra.

Baldvin Mar Smárason, 8.11.2008 kl. 23:18

4 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Því miður mun margt af þessu unga fólki, búi það ekki ennþá heima hjá pabba og mömmu, ekki hafa lengur efni á því að kaupa skyr og egg til að henda í Alþingishúsið eftir nokkra mánuði, eða vikur, ef svo fer fram sem horfir. Ef það hefur efni á að kaupa slíkar vörur mun það frekar leggja sér þær til munns.

Vonandi færir það sig þá ekki yfir í Molotoffkokteila. Þá væri fyrst ástæða fyrir það til að dulbúast við aðgerðirnar, og betur en með einfaldan skýluklút fyrir vitum.

Greta Björg Úlfsdóttir, 9.11.2008 kl. 00:21

5 identicon

Ég er hræddur um að það sé ekkert svo langt í Molotoffkokteilana á Austurvelli. Það eru margir búnir að fá meira en nóg og sætta sig ekki við hvernig stjórnvöld eru að taka á málunum. Margir eru í ansi vondum málum þrátt fyrir að hafa ekki tekið þátt í eyðslufylleríinu og fólk verður ansi reitt þegar allt sem það á hverfur vegna aðgerða eða aðgerðarleysis annarra. Ég er í námi erlendis um þessar mundir en er enn með tekjur frá íslandi í krónum. Þökk sé genginu á krónunni duga launin mín rétt fyrir íbúðarleigunni, rafmagni og öðrum álíka reikningum, en ekki fyrir mat. Leigan ein og sér hefur hækkað um 50 þúsund út af gengisþróun síðustu mánuði. Ég á smá varaforða sem ég er að brenna upp til að kaupa mat fyrir núna, en það eina sem ég get raunverulega gert í stöðunni er að hætta að vinna fyrir íslenskt fyrirtæki (og þar af leiðandi hætta að borga skatt á Íslandi) og byrja að vinna hér til að fá tekjur í mynt sem er ekki verðlaus (og þá hugsa ég líka að ég kæmi ekkert aftur heim að námi loknu), eða að hætta í námi og flytja heim til að blanda molotoffkokteila...

Davíð Arnar (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 08:03

6 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Það er sorglegt að óróaseggir komist upp með að koma óorði á heiðarleg mótmæli og hirða alla athyglina.

En grátbroslegt yrði að sjá þá rænda matvælunum af svöngu fólki í næsta eða þarnæsta skipti þegar þeir mæta með fulla poka af matvælum til þess að kasta í hús og annað...

Kolbrún Hilmars, 10.11.2008 kl. 16:46

7 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Seggðu, Kolbrún...

Greta Björg Úlfsdóttir, 10.11.2008 kl. 18:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband