Leita í fréttum mbl.is

"How to lie with Statistics"

...er bókartitill sem oft hefur flogið í gegnum huga mér í heitum trúmálaumræðum síðustu daga. Þetta er titill bókar sem fyrrverandi eiginmanni mínum áskotnaðist eitt sinn. Því miður kynnti ég mér ekki efni hennar að neinu leyti. Það hefði þó ef til vill getað komið sér vel að hafa gluggað í hana þegar kemur að því að skoða eitt og annað sem tínt er til í áðurnefndri umræðu.

Wikipedia: How to lie with Statistics 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Ég hef lesið þessa bók og þekki efni hennar vel.

Hvaða dæmi getur þú bent á sem þér þykir benda til að tölfræði sé misnotuð?

Ég hvet þig til að kynna þér gögnin áður en þú dregur ályktanir. 

Matthías Ásgeirsson, 11.12.2007 kl. 19:02

2 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Svo ég vitni enn og aftur í sjálfa mig:

"Það hefði þó ef til vill getað komið sér vel að hafa gluggað í hana þegar kemur að því að skoða eitt og annað sem tínt er til í áðurnefndri umræðu."

Af bloggi Baldurs (þarna er ég að tala við þig):

"Þú ættir að vera farinn að vita að í veraldlegum efnum trúi ég hlutum varlega án þess að sannreyna þá. Líkt og Tómas verð ég að þreifa á þeim til að trúa. Þetta ætti trúleysingi að skilja."

Ennfremur, af bloggi Svavars (þessu er beint til lesenda bloggsins):

"
"En etv. má segja að þarna höfum við náð að staðfesta að 52% segjast vera trúaðir og kristnir."

Mér sýnist þarna komin tala sem þjóðkirkjufólk og trúleysingjar geti verið sammála um. Hversu stórt hlutfall þeirra sem segjast kristnir eru í þjóðkirkjunni kemur hvergi fram, sýnist mér, sumir gætu verið kaþólskir, í Fríkirkjunni eða Krossinum."

Tilvitnunin inni í seinustu tilvitnunina í sjálfa mig er úr athugasemd Öddu Steinu. 

Ertu sáttur við þetta svar? 

Greta Björg Úlfsdóttir, 11.12.2007 kl. 19:13

3 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ég er nú svo alsæl með stefnu Siðmenntar í málefnum skólanna (vil reyndar ganga lengra) að ÉG SKRÁÐI MIG Í SIÐMENNT Í GÆR...öll þessi umræða hefur verið frábær og frábært að svona samtök séu til, nóg er nú af hinu!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 11.12.2007 kl. 19:16

4 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ég er sem sagt einfaldlega í þessari færslu að segja að ég hefði alveg viljað vera betur að mér í tölfræði (statistík) þessa dagana. Hvorki meira, né minna.

Því "How to lie with Statistics" er einfaldlega kennslubók, eins og þú veist, fyrst þú hefur kynnt þér efni hennar, sem tekur á því hvernig varast má þær gildrur sem fólk fellur í, meðvitað og ómeðvitað, þegar kemur að tölfræði (statistík).

Ég vona að þér sé enn efni bókarinnar ferskt í minni og þú nýtir þér þann lærdóm svo sem góðum nemanda sæmir. 

Greta Björg Úlfsdóttir, 11.12.2007 kl. 19:19

5 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Aths. 4 er vitanlega beint til Matthíasar í framhaldi af aths. 2.

Greta Björg Úlfsdóttir, 11.12.2007 kl. 19:21

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Til hamingju með skráninguna, Anna mín

Það er gott að þú ert ánægð og ég gleðst fyrir þína hönd.

Ég get alveg fallist á það að það hljóti að vera góð tilfinning að geta samsamað sig einhverjum vissum hópi. Í þeim efnum hef ég átt dálítið erfitt í gegnum tíðina, þar sem það má víst heldur telja mig til einfara heldur en að ég sé hópsál.

Greta Björg Úlfsdóttir, 11.12.2007 kl. 19:27

7 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Takk Gréta mín...en ég er líka einfari, þótt gaman sé að hitta skoðanasystur og bræður. Siðmennt harmóníar alveg við mína lífsýn og ég er svo fegin að siðmennt sé til...án hindurvitna trúarbragðanna (þótt þar sé nú líka gott að finna).  Það er einnig gott að lýðræði ríki á Íslandi, svo maður geti tekið eigin ákvarðanir! Kveðja

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 11.12.2007 kl. 19:38

8 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Knús til þín, Anna mín.

Ég á mér reyndar líka minn félagsskap, sem er í samræmi við mína lífssýn og ég ég finn mig í.  Erum við ekki lánsamar?

Greta Björg Úlfsdóttir, 11.12.2007 kl. 19:59

9 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Matthías, til stuðnings athugasemd númer 4 vil ég benda þér á vanburða tilraun mína til "skoðanakönnunar" hér til hliðar, vinstra megin á síðunni.

Greta Björg Úlfsdóttir, 11.12.2007 kl. 20:08

10 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Ég veit um fínt dæmi: Það hefur komið fram í umræðunni (t.d. í grein eftir formann KFUM) að "Að minnsta kosti 92% þjóðarinnar játar kristni,..."

Nú hef ég ekki lesið bókina, en þetta myndi líklega flokkast undir það að koma með réttar tölur en breyta því til hvers talan vísar. 92% eru skráðir í kristin trúfélög.

Það segir okkur hins vegar ekki hve margir játa kristna trú. 

Hjalti Rúnar Ómarsson, 11.12.2007 kl. 20:15

11 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Einmitt, Hjalti Rúnar!

"Tölfræði" og "tölfræði" er ekki endilega það sama. Þetta eru vandasöm vísindi og þarf kunnáttumenn til að kunna að varast leiðandi spurningar, og lesa úr tölum, - og þeir eru ekki einu sinni alltaf á eitt sáttir um það hvernig skuli túlka þær. 

Greta Björg Úlfsdóttir, 11.12.2007 kl. 20:28

12 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

hvaða félagsskap áttu?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 11.12.2007 kl. 20:33

13 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Greta Björg Úlfsdóttir, 11.12.2007 kl. 20:40

14 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Anna, komdu í ratleik og skoðaðu síðuna mína, svo skaltu senda mér tölvupóst.

Greta Björg Úlfsdóttir, 11.12.2007 kl. 20:43

15 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

ok...bergmálið og guðspekifélagið?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 11.12.2007 kl. 20:55

16 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Rétt!

Greta Björg Úlfsdóttir, 11.12.2007 kl. 20:57

17 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

til hamingju með það

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 11.12.2007 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Greta Björg Úlfsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir

...hvað er bak við yztu sjónarrönd?

gretaulfs@gmail.com 

                                                                                                                                                           Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly.

~ Martin Luther King, Jr.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband